Alþýðublaðið - 10.11.1967, Page 7

Alþýðublaðið - 10.11.1967, Page 7
NÆMT AUGA FYRIR LITUM OG FORMUM Finnur Fróffason, híbýlafræðingrur. ÞAÐ er ekki oft sem við fáum heimsókn frá dönskum blaða- blaðamanni frá Aktuelt. Einn slíkur, að vísu fyrrverandi blaða- maður, rakst samt um daginn inn til okkar. Hann hefur nú sezt að á íslandi og tekið sér íslenzkt nafn. Nú heitir hann Finnur Fróða- son og ástæðan fyrir vistaskipt- unum var kona eins og svo oft áður. „Leitið konunnar,” segja Frakkar og konan, sem við eig- um það að þakka, að Finnur Fróðason fluttist til fslands, er sjúkraþjálfari, María Ragnars- dóttir, eiginkona Finns. Finnur Fróðason er híbýla- fræðingur og vinnur hjá Raf- magnsveitu ríkisins, meðan hann er að koma sér fyrir á íslandi, en það er ekki alltaf auðhlaup- ið. — Hvar lærðir þú, Finnur? — Ég lærði á Interiörarkitekt- skolen í Kaupmannahöfn. — Hvað læra híbýlafræðingar? — Þeir læra allt um efni, tx-é- vefnaðarvöru og liti. Ljós og lýs- ingar innanhúss er einnig mik- ill hluti af námi okkar. Við verð- um að hafa næmt auga fyrir lit- um og formum, enda er oft til þess ætiazt af híbýlafræðingi, að hann geti sett saman gamalt og nýtt, svo að vel fari. Ef híbýlafræðingur fær það hlutverk að breyta inni'éttingu á íbiið, verður hann fyrst að l'á teikningu af henni og reyna svo í sainráði við eigendur að gei a úr öllu eina heild, bæði því, sem til er og eins því, sem áætlað er að kaupa. Teppi, gluggatjöid og litir skipta þar meginmáli — eiginlega meira, en menn geia sér gi-ein fyrir í fljótu bragði. — Hvenær er bezt að leita til híbýlafræðings viðvíkjandi inn- réttingu á íbúð? — Það er bezt að gera það, áður en farið er að byggja. Það er ekki alltaf, sem arkitektiim hugsar um innréttingu hússins. Þeim hættir stundum til að líta fyrst og fremst á útlitið. Sam- starf arkitekts og hibýlafræð- ings er því ákjósanlegt. Við teiknum allar innréttingar í eld- liús og baðherbergi, auk þess sem við aðstoðum fólk við að ákveða liti, gluggatjöid og teppi og raða niður húsgögnum. — Hvers konar verkefni taka Framhald á 12. síðu. DÖNSK FORM- ÍSLENZK VINNA - ÓDÝR enVÖNDUÐ AUÐBREKKU59 HÚSGAGNAVERZLUN KÖPAVOGI SiMI 41699

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.