Alþýðublaðið - 22.11.1967, Page 7
í Ólafsvík
BISKUPINN, séra Sigurbjörn
Einarsson, vígði nýja kirkju á
sunnudaginn. Sóknarprestur,
séra Hreinn Hjartarson, préd
ikaði og þjónaði fyrir altari
með biskupi.
Víxluvottar voru: séra Þor-
grímur Sigurðsson, prófastur,
Staðarstað, sr. Magnús Guð-
mundsson, fyrrv. prófastur,
í Ólafsvík, séra Sigurður Lárus-
son, fyrrv. prófastur, Stykkis-
hólmi og séra Magnús Guð-
mundsson, Grundarfirði.
I upphafi athafnarinnar las
séra Árni Pálsson, Söðulsholti,
bæn, en í lokin flutti séra
Hjalti Guðmundsson, Stykkis-
hólmi, stutta bæn. Söngstjóri
var organistinn frú Björg Finn
bogndóttir. Formaður sóknar-
nefndar flutti ávarp og skýrði
frá byggingarsögu kirkjunnar.
Frumortur sálmur, eftir sér
Magnús Guðmundsson, var
sunginn við athöfnina.
Fjölmenni var við vígsluna,
þar á meðal fjölmargir burt-
fluttir Ólsarar, svo og gestir úr
nágrannabyggðum. Barnamessa
var á eftir og önnuðust hana
þeir séra Magnús Guðmundr-
son Grundarfirði og séra Hjalii
Guðmundsson. Var athöfn þessi
liin hátíðlegasta.
Kirkjusagan: Kirkja var
fyrst byggð í Ólafsvík 1892
en áður höfðu Ólafsvíkurbúar
sótt kirkjusókn að Fróðá í Fróð-
árhreppi, 5 km. innan við þorp
ið. Vígsla á þeirri kirkju átti að
fara fram 19. 11. 1892, en fórst
fyrir vegna veikinda prófasts.
Það liðu því rétt 75 ár, unz ný
kirkja var vígð. Hin gamla
kirkja var byggð á grösugum
bölum upp af Snoppu. Var sá
staður þá aðeins utan við byggð
ina og hinn ákjósanlegasti. En
er höfn var tekin í notkun í
skjóli Snoppunnar, þrengdist
mjög að kirkjunni og var svo
komið á árunum milli 1940
og 1950, að séð var, að kirkja
gæti ekki staðið þar til fram
búðar. í vísitasíuferð prófasts,
séra Jósefs Jónssonar, Setbergi
24.8 1946, hvetur hann til þess
að þegar sé farið að vinna að
gerð nýrrar kirkju, bæði sakir
þess, að kirkjan sé mjög úr
sér gengin svo og vegna þess.
að fiskvinnsluhús séu risin svo
að segja upp að kirkjunni.
Þetta ílrekaði prófastur Sig-
urður Lárusson á vísitasíuferð-
um sínum á árunum 1954 og
1957. Ásmundur Guðmundsson,
biskup kom hér 1956, lýsir
hann sig samþykkan héraðs-
prófasti og sóknarnefnd um það
að nauðsyn sé á því að hef.ia
byggingu nýrrar kirkju og lýs-
ir sig samþykkan staðarvali
skipulagsstjóra og skipulags.
nefndar þorpsins á svonefnd-
um Hólavöllum, þar sem var
hið forna bæjarstæði Ólafsvík
urbæjar, Formaður sóknar-
nefndar var þá Jónas Þorvalds-
son, fyrr. skólastjóri og odd-
viti hér.
A fundi sóknamefndar og
safnaðar 1957 og 1958 var sam-
þykkt endanlega að hefjast
handa um undirbúning kirkju-
byggingarinnar. Formaður sókn
arnefndar var þá Ásgeir Jó-
hannesson. Árið 1960 tók Há-
kon Hertervíg, arkitekt, að
sér að gera tillöguuppdrátt að
nýrri kirkju og lagði hann fyr
ir sóknarnefnd 18. 8. 1960
Hafizt var handa um bygging-
una i maí 1961, og tók þáver
andi safnaðarfulltrúi, Stefán
Kristjánsson, fyrstu skóflustung
una að hinni nýju kirkju við
hátíðlega athöfn. Stefán stjórn
aði einnig greftri og ýtu-
vinnu, sem fram fór þá um
sumarið. 1962 lágu framkvæmd-
ir niðri, að öðru leyti en því,
að platan var steypt. Böðvcvr
Bjarnason, húsasmíðameistari í
Ólafsvík, tók að sér smíði húss
ins. Hákon Hertervíg, arkitekt,
gerði allar teikningar og var
ráðgefandi um framkvæmdir
allar, járna- og burðarteikning
ar gerði Eyvindur Valdimars-
son, verkfr. Reykjavík, raf-
magnsteikningar gerði Björn
Einarsson, Kópavogi. Kirkjan er
hituð með rafmagni og reifgeisla
liitun í neðri hæð hennar.
Sigurbjörn Einarsson biskup ís
lands við vígsluna.
Kirkjan er sérstæð að útliti.
Hver flötur hennar er þríhyrn-
ingur og hinn þrístrendi turn
hennar er yfir 30 metrar að hæð.
Hún er 346 fermetrar en 2.541
rúmmetri. Kirkjan er öil
steypt, einnig þakið. Hún er
einangruð og veggir klæddir
viðurplötum. Hún tekur um 250
manns í sæti og hægt er að
koma þar fyrir um 100 sæt-
um til viðbótar. Á neðri hæð
er safnaðarheimili, sem tekur
milli 150 og 170 manns í sævi
Framhald á 15. síðu.
Fyrsta skírnarathöfnin í kirkjunni.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ T
Mt
22. nóvember 1967 —