Alþýðublaðið - 22.11.1967, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 22.11.1967, Qupperneq 8
1 verá fróðlegur í hvívetna þótt færri sætu liann en búast hefði mátt við. Síðdegis á miðvikudag snæddu sjórnarmenn S. U. J. og fleiri 'kvöldverð með Reiulf Steen og var honum þá færð lítil gjöf frá S. U. J. í kveðju- og þakkar- skyni. Um kvöldið hélt hann ræðu á almennum fundi í Lind- arbæ um Norræna jafnaðar- stefnu andspænis nýjum viðhorf um. Rakti hann þar greinilega þær kröfur sem þjóðfélag nú- tímans gerir á hendur þegnun- um og hverra ráða jafnaðar- mannaflokkarnir verða að grípa til, eigi þeir að geta vísað áfram veginn fram. — Að er- indinu loknu vóru fjölmargar fyrirspurnir bornar fram jafn- framt því sem athugasemdir voru gerðar. Tók Reiulf eðli- lega mikinn þátt í þeim mál- flutningi sem stóð til kl. 11 um Framhald á 10. síðu. HEIMSÖKN REIULF STEEN REIULF STEEN, varaformaður norska Alþýðuflokksins, dvaldi Ihér á landi í boði Sambands ungra jafnaðarmanna dagana 12. —15. nóvember s. 1. Heimsókn hans var ungum jafnaðarmönn- um fagnaðarefni. — Þann tíma sem hann dvaldi hér á landi átti hann ítarlegar viðræður við þá, einkanlegá þó forystu- menn þeirra og ljúka allir upp einum munni um gagnsemi þeirra viðræðna. Þá ræddi Rei- ulf einnig við forystumenn Al- þýðuflokksins, ráðherra, mið- stjórnarmenn og þingmenn flokksins og aðra frammámenn hans. Er enginn vafi 4 að mikið gágn hefur orðið af JSéssum við ræðum, enda Reiulf ungur mað- ur og líklegur til merkrar for- ysta í flokki sínum og með norsku þjóðinni er stundir líða. Reiulf flutti erindi á fundi miðstjórnar hinn 13. nóvember og fjallaði það um utanríkis- stefnu norska Verkamanna- flokksins. Var erindið fróðlegt mjög. Um kvöldið efndi stjóm S. U. J. til hringborðsráðstefnu í Átthagasal Hótel Sögu — og flutti Reiulf Steen þar erindi um nýjar hugmyndir og nýjar leiðir með breyttum tímum. í eríndinu rakti hann ástand mála og vék síðan að þeim viðfangs- efnum er hann taldi að biðu jafnaðarmanna á komandi tím- um. — Á þriðjudag fór hann til Þingvalla í boði S. U. J. í fylgd Helga Sæmundssonar rit- stjóra. Lét hann ‘hið bezta af því ferðalagi. Um kvöldið hélt hann ræðu á almennum stúd- entafundi í Háskóla íslands, þar sem hann fjallaði um norrænt samstarf á alþjóðavettvangi. — Að ræðu hans lokinni voru margar fyrirspurnir bornar fram sem Reiulf svaraði. Þótti fundurinn hafa telkizt 'vel og I. Frá Sambandsráðsfundi SUJ. Fyrir enda borðsins: Hörður Zóp haníasson, Karl Steinar Guðna- son, Örlygur Geirsson og Sigurð ur Guðmundsson. II. Nokkrir fulltrúar á Sambands ráðsfundi hiýða á umræður um stefnuskrána, sem fundurinn fjall aði um. II. Reiulf Steen varaformaður norska Verkamannaflokksins á fundi með miðstjórn Alþýðu- flokksins. IV. Varaformaður norska Verka- mannaflokksins með flokkstjórn Alþýðuflokksins Emil Jónssyni, fcrmanni flokksins, Gylfa Þ. Gísla syni, varaform. flokksins og Benedikt Gröndal, ritara flokks- ins. V. Þessi mynd var tekin af Reiulf Steen með Sigurði Guðinunds- syni, Karli Steinari Guðnasyni og Orlygi Geirssyni á blaðamanna- fundi, sem haldinn var í tilefni komu hans til íslands. 3 V nóvember 196.7. — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.