Alþýðublaðið - 01.12.1967, Side 4
Bltstjörl: Benedlkt GrSndal. Simar 14900—14903. — Auglýslngaslml:
14900. — ACsetur: AlþýCuhúslO vlO Hverfisgötu, Rvflc. - PrentsmiBJa
AlþýBublaBslns. Slml 14905. — Askriftargjald kr. 105.00. — 1 lanna.
sölu kr. 7.00 elntakiO. — Útgefandi: AlþýBuflokkurinn.
Símakönnun
ALÞÝÐUBLAÐIÐ gerði örlitla símakönnun á
því í fyrrakvöld, bve m'argir hlustuðu á útvarpsum-
ræðurnar. Slíka könnun hefur blaðið gert tvívegis
áður. Var það eftir að sjónvarp var komið á þúsund-
ir heimila á Suðvesturlandi, áður en íslenzka sjón-
'varpið hófst. I bæði skiptin reyndist hlustað á stjórn
inálaumræður á rétt um helming heimila. Nú kom í
Ijós, að síðara kvöld umræðnanna var hlustað á 30%
heimila, en 50 % sögðu, að hlustað hefði verið fyrra
kvöldið.
í raun réttri geta stjórnmálamennirnir verið
ánægðir með þessar tölur, því 30% íslenzkra heimila
■eru 12-13.000. Það er ekki lítill þjóðmálafundur.
Hins vegar gefur lækkunin úr 50% í 30% til
kynna þróun, sem á eftir að vaxa. Þess vegna er tími
til kominn að breyta útvarpsumræðum á Alþingi
verulega og hafa þær styttri, einstakar ræður styttri
c.g fleiri umferðir til skoðanaskipta. f fyrravetur
samdi þingnefnd, sem allir flokkar áttu fulltrúa í
frumvarp um slíkar hreytingar. Er nú rétt að taka
1 það upp, fjalla um það og gera breytingar í þá átt,
sem nefndin lagði til.
I Gylfi og Callaghan
{
í FYRRADAG barst sú fregn, að James Call-
, aghan, fjármálaráðherra Breta, hefði sagt af sér.
Gengislækkun sterlingspundsins hvíldi aðallega á
i hans herðum, og sagði hann 'af sér hennar vegna.
1 Framsóknarmenn voru ekki lengi að grípa þessa
fregn á lofti og nota hana í útvarpsumræðunum.
Spurðu þeir, hvort einhverjir íslenzkir ráðherrar
gætu ekki af þessu lært.
Ekki sögðu framsóknarmenn sannleikann allan
um þessi tíðindi frekar en við var að búast. Þeir
slepptu þeirri skýringu Callaghansj að hann hefði
fullviss'að erlend ríki um, að inneignir þeirra í pund-
: um væru öruggar, en svo lækkað gengið. Þetta, en
•ekki innanríkispólitíkin, olli því, að ráðherrann sagði
af sér. Flér á íslandi er ekki um neitt slíkt að ræða,
engin erlend ríki voru blekkt í sambandi við gengis-
. -lækkun krónunnar. Að auki slepptu framsóknarmenn
því úr ræðum sínum, að Callaghan fer alls ekki úr
brezku stjórninni, heldur skiptir um starf við innan-
j ríkisráðherrann, Roy Jenkin. Callaghan situr áfram
| í. einu þýðingarmesta ráðuneytinu í London.
; Þessi fregn breytir engu um afstöðu íslenzkra
ráðherrr:. Það er engin ástæða til bess, að Gylfi Þ.
Gíslason og Jóhann Hafstein skiptist á störfum, þótt
stjórnin hafi lækkað gengi krónunnar við þær að-
stæður, sem ríktu.
4 1. desember 1967 — ALÝÐUBLAÐIÐ
Spyrfum uð 8eiksS&kum
ÆSISPENNANDI SAGA eftir metsöluhöfundinn ALISTAIK MAC-
LEAN. — Leynilögreglumanninum Philip Calvert er faliö að leysa
gátuna um skip hlaöin gulli, er hurfu meö dularfullum hætti af
yfirborði sjávar. Leynilegar athuganir brezku lögreglunnar og
eðlisávísun beindu athygli hans aö afskekktum stað á vesturströnd
Skotlands. Þar gerast margir undarlegir atburðir, en lausn gátunn-
ar virðist þó ekki á næsta leiti. Eftir hraða og viðburðaríka at-
burðarás koma svo hin óvæntu sögulok. -—Alistair MacLean er í
essinu sínu í þessari sögu. Ib. kr. 325,00.
Læknir kvenna
ENDURMINNINGAR MIKILHÆFS og gáfaðs læknis, FREDERIC
LOOMIS. — Hið mikilsvirta bandaríska tímarit, Saturday Review
of Literature, segir um bókina m. a. á þessa leið: „Konur, ungar
sem eldri, munu finna í þessari bók ótalmargt, sem þær þurfa að
vita og vilja gjarnan vita um sjálfar sig, og flest hugsandi fólk
mun finna óblandna ánægju í leiftrandi kímni hennar og glöggum
skilningi á mannlífinu." Ib. kr. 278,00.
SVÖRTU
MESTARNIR
Svörtu hestarsiir
RISMIKIL OG SPENNANDI ÁSTAR- OG ÖRLAGASAGA eftir
TARJEI VESAAS einn nafnkunnasta núlifandi höfund á Norður-
löndum. Með útkomu þessarar sögu hófst frægðarferill höfundar-
ins og náði hámarki, er honum voru veitt bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 1963. Óhaett má fullyrða, að persónur þessarar
sögu og örlög þeirra muni verða lesandanum eftirminnileg, svo og
þáttur hestanna, gæðinganna góðu, sem áttu ríkan þátt í að skapa
eiganda sínum örlög. Ib. kr. 275,00.
Beveriy Gray
ÞETTA ER FYRSTA BÓKIN UM BEVÉRLY GRAY eftir CLARIE
BLANK sem nú kemur út ööru sinni eftir að hafa verið ófáanleg og
mjög eftirspurð árum saman. Bækurnar um Beverly Gray eru
óskabækur allra ungra stúlkna, enda bæði skemmtilegar og góðar:
bækur. Ib. kr. 220,00.
Verð bókanna er tllfært án söluskatts. Sendum burðargjaldsfrítt
gegn póstkröfu um land allt.
I Ð U N IV Skeggjagötu 1 - Símar 12923 og 19156 - Pósthólf 561
Fögnuður á sjálfstæðisdaginn
Aden 30. nóvember (ntb-reuter)
Gathan Mohammed Al-Shaabi,
foringi þjódernissinnahreyfingar-
innar NLF, var í gær útnefndur
fyrsti forsti hins nýja Iýðveldis
í Suður-Jemen, sem fékk sjálf-
stæði í fyrrinótt eftir að lial'a
verið undir stjórn Brcta í 12S
ár. Al-Shaabi var veitt forseta-
tignin, þegar hann kom heim frá
Qenf, en þar hafa undanfarið
staðið yfir samningaviðræður
milli fulltrúa Breta og Jemenbúa
um tilhögun sjálfstæðisgjafarinn
ar og fjárhagsaðstoð þá, sem
Bretar h.vggjast veita Jemenbú-
um eftir sjálfstæðistökuna.
Mikil fagnaðarlæti urðu á
strætum úti í Suður-Jemen er
sjálfstæðinu var lýst yfir, en
skömmu áður liöfðu síðustu
brezku hermennirnir yfirgefið
Aden í flugvélum og herflutn
ingaskipum. í tilkynningunni um
útnefningu Al-Shaabis segir enn
íremur, að íúkisstjárn mcð 15
meðlimum muni vera honum til
Uáðuneytis um stjórn landslags.
Eins og fyrr segir er Al-
Shaabi foringi þjóðernissinna.
hreyfingarinnar NLF, en hún
var á sínum tíma bönnuð af Bret
um fyrir að beita ógnaráhrifurn
Al-Shaabi hélt blaðamanna-
fund á flugvellinum, þegar hann
kom frá Genf. Sagði liann Breta
hafa sýnt óbilgirni í samningavíð
ræðunum, meðal annars viljað
gera eyna Perim við mynni
Rauðahafs alþjóðlegt yfirráða-
svæði, en því hefði verið hafnað
af fulltrúum NLF.
mmmm
V