Alþýðublaðið - 01.12.1967, Side 11
t=RitstiórTÖrn Eidsson;
Hér eru tveir skíðakappar að leggja af stað í lyftu nni.
Skíbalyfta tekin í
notkun á Akureyri
EINS og skýrt er fr*á á síðunni
verður skíðalyftan í Hlíðarfjalli
við Akureyri tekin í notkun á
morgun. Hér birtum við reglur
um notkun lyftunnar:
1. Stólar skíðalyftunnar ganga
viðstöðulaust, meðan lyftan er í
notkun. Farþegar fara því í og
úr stólunum meðan þeir eru á
ferð.
2. Farþegar koma að lyftunni
norðan frá að miðasölu í lyftu-
húsinu við forstöð lyftunnar. —
Fara skal í biðröð, ef slíkar að-
stæður skapast vegna fólksfjölda.
, Þegar gengið hefur verið frá far-
miðum, bíðlai fatyþegar eftir a)ð
röðin kcmi að þeim. Fara iþeir
' þá tveir í veg fyrir stólana,. bíða
samhliða og snúa í sömu átt og
stólarnir fara <þ. e. í vestur, þeg-
ar farið er upp). Þegar stólarnir
koma að þeim, setjast farþegar
samtímis í þá, taka niður örygg-
isslána og þá um leið þverslá (fót
stig), þar sem hægt er að tylla
fótum á meáan farið er upp.
3. Ef einn farþegi fer í stólinn
skal hann setjast vinstra megin
í hann (nær möstrunum).
4. Á leiðinni upp skulu far-
þegar sitja kyrrir, og bannað er
að gera tilraunir til að sveifla
stólunum til hliðar eða fram og
til baka. Skíðum og stöfum skai
einnig haldið kyrrum og rétt er
að minna á það hér, að skíðafólk
hafi ávallt skíðaútbúnað sinn í
lagi, svo að hann verði ekki til
trafala við notkun skíðalyftunn-
ar.
5. Þegar nálgast er endastöð
uppi, eru fæturnir teknir af fót-
stiginu og öryggisslánni lyft upp.
Farþegar með skíði á fótum eiga
að halda skíðabeygjunum vel
uppi og hafa skíðastafi tilbúna.
Þegar komið' er á endastöðina,
renna skíðin eftir snjónum, far-
þegarnir standa upp og renna sér
niður aflíðandi brekku fram og
til hægri frá stólunum.
Þegar komið er á endastöð uppi,
stíga skíðalausir farþegar fram
sinn til hvorrar hliðar, það langt,
að stóllinn komist áfram milli
Framhald á 15. síðu.
N O K K RI R leikir fóru fram í
Evrópubikarkeppninni í knatt-
spyrnunni á miðvikudag. — í
keppni meistaraliða urðu úrslit
þessi:
Eintracht Braunshweig, Vestur
Þýzkalandi vann Rapid, Vín með
2:0. Austurríkismenn unnu fyrri
leikinn 1:0, svo að Þjóðverjar
fara í þriðju umferð.
Real Madrdi vann Hvidovre 4:1
í síðari leik liðanna í Madrid.
Jafntefli Varð i fyrri leiknum
2:2, svo að Real Madrid heldur
áfram.
Manchester Utd. sigraði Sara-
jevo, Júgóslóvíu 2:1 í Mancliester.
Fyrri lefknum lauk með jafn-
tefli 0:0, svo að Manchester fer
í þriðju umferð.
Síðari leik Dynamo Kiev, Sov-
étríkjunum og Krakaow, Póllandi,
lauk með jafntefli 1:1. Pólverjar
unnu fyrri lejkinn 2:1, svo að
pólska liðið fer í þriðju umferð
Áður hafði Dynamo sigrað Celtic,
meistarana frá í fyrra.
Sparta Prag vann Anderleclit,
Belgíu 3:2 í fyrn Kúk tiðanna,
en leikurinn fór fram í Prag.
Úrslit í keppni bikarmeistara:
Sandard Liége, Belgíu, vann
Aberdeen, Skotlandi 3:0 í fyrri
leik liðanna, sem fór fram í
Liége.
SV Hamborg vann Wizla, Pól-
landi með 4:0 og 5:0 í báðum
leikjunum. — Loks sigraði Card-
iff NAC Breda, Hollandi 4:1- Sam
anlagt vann Cardiff 5:2.
R-ví
ur háð 9. desemb.
FLOKKAGLÍMA Reykjavikur
fer fram að Hálogalandi laugar-
daginn . 9. desember kl. 4 síð-
degis, en ekki 3. desember eins og
áður heíur verið auglýst. Þátt-
tökutilkynningar skal senda Óm-
ari Úlfarssyni Mávahlíð 32, og
skulu þær hafa borizt eigi síðar
en fimmtudaginn 7. desember.
Mótanefnd.
LYFTUNNAR
LAUGARDAGINN 2. des. verð-
ur skíðalyftan í Hlíðarfjalli vígð
og hefst sú athöfn kl. 1,30 e.h. Frá
þessu skýrði íþróttaráð Akureyrar
á fundi með blaðamönnum sl.
mánudagskvöld. Til vígslunnar hef
ur verið boðið mörgum gestum,
m.a. fjármálaráðherra, stjórn
ÍSÍ, íþróttafulltrúa ríkisins, stjórn
Skíðasambandsins, forráðamönn-
um skíðafélaga út um land og
þingmönnum kjördæmisins, auk
þess blaðamönnum og fleiri gest-
um. Ræður verða fluttar, en síðan
gefst gestunum kostur á að fara
í skíðalyftuna. Klukkan 3 e.h. hef-
ur bæjarstjórn Akureyrar kaffi-
Framhald á biaðsíðu 15.
Óvænt úrslit í
Evrópukeppninni
Haustmót TBR
ÁRLEGT haustmót Tennis- og
badmintonfélags Reykjavikur fór
fram sl. laugardag í íþróttphúsi
Vals. Haustmótið er innanfélags-
mót og eingöngu kcppt í týíliða-
leik og gefin forgjöf. ;
Alls kepptu 24 lið í þremur
flokkum.
Úrslit urðu sem hér segir:'
1. MEISTARA- OG
FYRSTI FLOKKVR
Sigurvegarar urðu og hrepptu
þar með Walbomsbikarinn, þeir
Jón Árnason og Viðar Guðjóns-
son. (höfðu — 10 í forgjöf). Til
úrslita léku þeir við Garðar Al-
fonsson og Steinar Petersen (— 6
í forgjöf) og unnu þá léttílega í
tveimur lotum.
Framhald á blaðsíðu 15.
• t
Fyrsta stólalyftan hérlendis í Hlíðarf jalli við Akur ayri.
1. desember 1967 - ALÝÐUBLAÐIÐ ^
■ —‘L’i 4*~