Alþýðublaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 16
 Jólasvipur og hjartans lítillæti JÓLASVIPURINN er að byrja að, færast yfir með öllum þeim ólátum viðskiptalífsins sem hon- um fylgir. Það er sem óðast verið að setja upp jólaskreytingar í búðarglupg um, þvi að hver gluggi þarf að verða ómótstæðileg freisting. Fín gerðar útstillingar dömur tipia fram og aftur um suma glugg. annia og tylla einum hlutnnm þap og öðrum hér eftir einhverj- um kúnstarinnar reglum. En veg fafandinn kemst ekki hjá að hugsa hve glugginn væri miklu fallegri ef sjálfri útstillingardöm un-ni væri bara stillt út, en allt glingrið látið eiga sig. Upp í gluggana raðast gullið og •silfrað drasl sem kallast jóla- skraut rósir og blöð og grein- ar, og jólasveinar sem baða út öilum öngum eins og þeir séu að stæla afgreiðslufólk og við- skiptavini í jólaösinni, Jólatré eiga eftir að rísa á torgum og gatnamótum, en þau kváðu veva að uppruna úr evrópskri heiðni •og því sennilega ókristileg. Það er safnað fyrir fátæka á torgum og gatnamótum svo að menn geti með auðvVdu móti gert góðverk á þeim stöðum. Og þó að það isé ekki beinlínis verzlað í must- erum þá er það þó sannarleg.i gert allt í kringum þau, og þá er víst ekki margt eftir sem látið •er ógert af því sem mælt var kröftulegast á móti í Gyðingalandi fiéma einu sinni. Þetta eru víst jólin. Og þetta hefur stundum far- ið í taugarnar á alminlegu fólki, því finnst þetta allt saman ó- kristilegt. En þó að svo líti út Þá er alls ekki svo. Allt er þetta fiákristilegt, og er gert fyrir guðs •ástarsakir. Við skulum sjá hvernig stend- •ur á þvi: Menn verða að hafa tækifæri til að eyða gervöllum sínum jarð nesku f jármunum fyrir jól til þess •flð geta lifað upphafningu jóla- Hiátíðarinnar snauðir og auðmjúk ir. Hvernig í ósköpunum á sá mað ur áð vera auðmjúkur og af hjarta lítillátur sem er með veskið út- troðið af þúsundköIKim? Það er bókstaflega ómögulegt, stríðir á móti náttúrulögmálunum. Maður inn gæti hvenær sem hann vildi farið út og keypt sér bíl eða liús eða haldið veizlu fyrir höfð ingja, jafnvel farið suður á Spán og keypt þar syndaaflausn fyrir svo sem 50 peseta) og það er lít- ið dýrara þrátt fyrir gengislækk unina, því að Spánn lækkaði líka gengið). Maðurinn hefur bóksiní lega enga ástæðu til að vera auð mjúkur, þarf ekki einu sinni að eiga innhlaup í banka og pólitík usar verða að gera eitthvað til að vingast við hann ef hann á að gefa eitthvað til að styrkja flokk- inn. Nei, þessa manntegund skort ir ekkert nema auðmýkt. Og í nafni allra heilagra verður slík- um mönnum að fækka. Þess vegna hagaði forsjónin því þannig til af náð sinni að nokkr um mönnum, raunar ekki sér- lega fáum, var blásið í brjóst slíkri fórnarlund að vilja gofa öðrum kost á varanlegum jóla- friði. Og þeir settu upp verzl- anir, og þeir settu upp hvers konar verksmiðjur. Og svo kepp ast þeir við að búa til alls konar glingur og bjóða falt og berjast með auglýsingum við að telja mönnum trú um að þeir þurfi á að halda ýmsu sem þá vanhagar ekki um og langi til að eignast hluti sem þeim koma að alls engu gagni. Þannig atvikaðist það að vegna sáluhjálpar almennings varð til eitthvert óskaplegasta kaupsvall veraldarinnar. Spurningin er bara hvað langar menn ekki til að kaupa? Þetta hefur sem sagt tekizt prýðilega. Og það er fróðlegt að horfa á fólk sem er að fara að gera jólainnkaup. Það hvílir yfir því einhver sérstakur svipur. Það er afskaplega einbeitt og atork- an geislar frá því, veður snjó og krap og er blautt í framan, og það lætur ekki bugast þó að það finni kuldann læsa sig um ger. vallan kroppinn. Einhver dulvituð þörf fyrir að eyða bókstaflega öllu sem unnt er skín út úr for- kláruðu andlitinu. Þú getur ekki hnyndað þér hve glöð ég er að þú skulir færa mér blóm á liverjum degi. Ég hefði svo sem átt að ímynda MÉR hvers vegna. w Blessaður vertu rólegur maður, þetta er bara fyrsta lota. Þér skuluð ekkert verða illar frú mín góð, en hann finnur bara engan mun á yður og tófu. Eftir hálftíma stimabi*,ak er einasti útvegurinn að staulast inn — hættulcga kalinn og niðurbrotinn á sál og líkama — og fá leigubíl, til að geta mætt í vinnuna, úfinn og upp- stökkur, fáandi áminnandi augnaráð frá skrifstofustjór- anum (eða ritstjóranum). VÍSIR. ! Og prentararnir hættu við að fara í verkfall. — Þó hefur brennivínið hækkað nýlega. Eins og það sé af umhyggju fyrir okkur að það er alltaf gefið frí í skólunum 1. des. Nei, það er af því að kenn- ararnir eru svo þunnir eftir fullveldisfagnaðinn kvöldið áð Ég held að þeir misskilji orð- ið fullveldi, þessir veizluglöðu menn. Fullveldi þýðir alls ekki það að verðia fullur, án þess að spyrja nokkurn um leyfi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.