Alþýðublaðið - 06.12.1967, Blaðsíða 6
FINNAR halda í dag hátí£Slegt
50 ára fullveldisafmæli. Koma
þessi hátíöahöld í kjölfar rúss-
neska byltingarafmælisins, —
enda eru tengsl þar á milli. —
Finnar höfðu verið undir yf-
irráðum Rússakeisara í meira
en heila öld. Þegar keisarastjórn
inni var steypt, notufiu þeir
tækifærið og gerðust sjálfstæð-
ir. Tókst þeim að fá viðurkenn
ingu byltingarstjórnarinnar, en
nokkru síðar hófu finnskir
kommúnistar sína eigin bylt-
ingu og nutu við það stuðnings
rússneskra 'hersveita, sem voru
í landinu. Hófst nú finnska borg
arastyrjöldin, sem endaði með
því, að byltingarmenn urðu að
lúta í lægra haldi. En segja má,
að litlu hafi munað, er stjórn-
kerfi Finna var ákveðið á þess-
um örlagaríku tímum.
Enda þótt Finnar séu af öðru
bergi brotnir en hinar Norður
landþjóSirnar og mál þeirra ó-
skylt norrænum rrfálum, hafa ör
lög ráðið því, að Finnar hafa
tengzt nágrönnum sínum og orð
ið ein hinna norrænu þjóða.
Öldum saman var Finnland
hluti af ríki Svíakonunga og þá
oft vettvangur styrjalda milli
austurs og vesturs. Enn í dag
tala 8% þjóðarinnar sænsku og
er hún opinbert tungumál við
hlið finnskunnar.
Þjóðerniskennd Finna tók
mjög að vakna á 19. öld, eins
og gerðist í fieiri löndum. Fóru
þeir að líta á sig sem sérstaka
þjóð, þótt þeir hefðu öldum sam
an lotið öðrum, og tóku að
hugsa til fullveldis. Þá lifnaði
mjög yfir menningarlífi og list
ir blómguðust, enda eru Finn
ar listhneigðir með afbrigðum.
Þannig treystust þær stoðir,
sem hið fullvalda finnska lýð-
veldi síðar var reist á.
Finnland er mikið að flatar-
máli, meira en fjórum sinnum
stærra en ísland, enda þótt þaö
90 ekki þéttbýlt. Það er kallað
„þúsund vatna landið“, en bæk
ur herma, að nánar til tekið
séu í landinu um 60.000 stöðu
vötn. Eru mörg þeirra samhang
andi vatnasvæði og koma tþá að
notum sem samgönguæðar, því
MYND 1) Hreindýrahjörð lengst norffur í skógarauffnum. 2) Borgin Porve
í vetrarskrúða. Kirkjuturninn gnæfir þarna yfir gamla hverfið. 3) Kökar
í SkerjagarSinum. 4) Sauna, hið fræga finnska gufubað sem þekkt er
orðið um allan heim. 5) Loftmynd yfir vötn í Austur-Finnlandi. 6) Pappírs-
verksmiðja í Tampere, þriðju stærstu borg landsins.
g 6. desember 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ