Alþýðublaðið - 06.12.1967, Blaðsíða 7
sigla má um vötnin, nema að
vetrarlagi. Eyjar eru og marg
ar meðfram vogskorinni strönd.
Frægt er Finnland fyrir mikla
skóga, sem eru undirstaða einn
ar mestu atvinnugr. landsins
skógarhöggs og framleiðslu úr
timbri. Er meðal annars fram
leitt mikið af pappir í Finn-
landi, en trjávörur eru mikil
útflutningsvara. Undanfarin
misseri hefur verðlag á trjá-
vöru verið óhagstætt og leiddi
það til þess, að Finnar lækjkuðiu
gengi marksins fyrr á iþessu
hausti.
Finnar hafa komið sér upp
margs konar öðrum iðnaði á
siðari árum, svo sem málmiðn-
aði, skipasmíðum og fleiru. Þá
er raforkuframleiðslan allmikil
og ýmiss konar framleiðsla
byggð á orkunni.
Hin fimmtíu fullveldisár hafa
Finnar notað mjög vel til að
hyggja upp land sitt og atvinnu
vegi. En þeir hafa ekki borið
gæfu til að lifa í friði. Nábýlið
við Sovétríkin hefur reynzt
þeim örlagaríkt. Eftir að Stalín
og Hitler höfðu gert hið ill-
ræmda samkomulag, gerðu
ftússar mikiar kröfur á hendur
i'innum og réöust inn í iand
þeirra, er þeim var ekki sinnt.
Vorðust Finnar þá af mikilli
hugprýði, svo lengi verður í
minnum haft. 1 hundrað daga
tókst þeim að hefta sókn stór
veldisins, en þó hlaut aö fa,a
svo um síðir, að þeir létu und
an síga. Þeir urðu að láta af
hendi mikil landssvæði.
Þegar Þýzkaland réðist á So-
vétríkin 1941, drógust Finnar
aftur inn í átökin, og í lok ó-
friðarins urðu Finnar enn að
láta af hendi landssvæði. Um
400.000 manns bjugggu á þeim
svæðum, sem Sovétríkin tóku,
og hafa Finnar fundið þessu
fólki ný heimkynni í landi sínu
og fundið fyrlr i»a® Btvinn
Er það hið mesta afrek, hvern-
ig þetta hefur tekizt, hjá ekki
stærri þjóð, þegar Finnar hafa
á sama tíma greitt stórar fjúr
hæðir í stríðsskaðabætur til
Sovétríkjanna.
Utanrikisstefrta Finna hefur
eftir ófriðinn mótazt jöfnum
höndum af nábýli við Sovétsam-
bandið og Norðurlöndin. Hafa
Finnar að sjálfsögðu tekið upp
vináttusamband við hinn yold-
uga granna, en þeim hefur tek
izt að vera óháðari en fléstum
öðrum ríkjum, sem liggja að So
vétríkjunum. Á hinn bóginn er
norrænt samstarf hyrningar-
steinn í utanríkispólitík Finna.
Menningarleg afrek, sem
Finnar hafa unnið, eru mun
meiri en ætla mætti af ekki
stærri þjóð. Þeir njóta aðdá-
unar um víða veröld fyrir lista
menn eins og Sibelíus, og þeir
eru í röð fremstu húsameist-
ara, sem uppi hafa verið með
síðustu kynslóðum. Má sjá þess
mörg merki á athyglisverðum
byggingum í Finnlandi, þótt hús
eftir finnska meistara séu raun
ar um allan heim.
íslendingar bera í brjósti vin
áttu í garð Finna og hafa reynt
að auka sem mest viðskipti við
>á og menningarleg samskipti.
Þess vegna munu margir hugsa
hlýtt til Finna á fimmtugsaf-
mæli lýðveldisins þar eystra og
óska þeim alls hins bezta í fram
tfðinni..
m i
Verzlunarfólk
Nú gefst yður kærkomið tækifæri að auka
þekkingu yðar og færni í starfinu:
Nýjar námsgreinar við Bréfaskóla SÍS og ASÍ:
Almen'n búðarstörf .. Námsgjald kr. 400,00
Kjörbúðin Námsgjald kr. 300,00
Bréfaskóli SÍS og ASÍ.
Aðalsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur Nessóknar í Reykjavík
verður haldinn mánudaginn 11. desember n.k.
kl. 8,30 síðdegis í Félagsheimili Neskirkju.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf
3. desember 1967.
SÓKNARNEFND NESSÓKNAR.
TILKYNNING
Vegna breytingar á gengi gullfrankans,
sem gjöld fyrir símtöl, símskeyti og telex-
þjónustu til útlanda fara eftir, hafa þessi gjöld
nú hækkað hlutfallslega.
Nánari upplýsingar um gjöldin fást á sím-
stöðvunum.
Reykjavík, 4. desember 1967.
Póst- og símamálastjórnin.
Barnafataverzlunin
Hverfisgöu 41 auglýsir:
Hjá okkur fóið þið jólakjólinn á dóttur-
ina, fáir af hverri gerð, fást aðeins hér,
Einnig terylen — skokkar, hvítar blússur og
undirkjólar, drengjaskyrtur, úlpur, nærföt,
náttföt og allan ungbarnafatnað.
PÓSTSENDUM.
Barhafataverzlunin
Hverfisgötu 41. — Sími 11322.
Lausar
lögregkiþjónsstöður
2 lögregluþjónsstöður í lögregluliði Hafnar-
fjarðar og Gul3.brih.gu- og Kjósarsýslu eru
lausar til umsóknar.
Byrjunarlaun samkv. 13. fl. launasamnings
opinberra starfsmanna auk 33% ;álags á nætur-
og helgidagavinnu.
Upplýsingar um starfið gefur undirritaður eða
yfirlögregluþjónn og skulu umsóknir hafa
borizt embættinu fyrir 20. des. n.k.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Sýslumaðurinn í Gullbrmgu- og Kjósar-
sýslu, 30. nóv. 1967.
EINAR INGIMUNDARSON. -
6. desember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7