Alþýðublaðið - 23.12.1967, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 23.12.1967, Blaðsíða 4
liKtewa •v. - ^kt^'RþvT.íÚ-lN'S wsjvv;’ ■ S'i'íS^ýííí&^öv^ fi'VV';'- '- -v' IB8tefflTOragfclp& lúlÖMÍÍÉ HERRADEILD Herrapeysur Herravestl Herranáttföt Herrasloppar Vasaklútar KLröWIE! w EJtstjóri; Benedikt Gröndal. Simar 14900—14903. — Auglýsingasiml: 14906. — AOsetur: AiþýSuhúsiO viC Hverfisgötu, Hvik. — Prentsmiðja AlþýCublaCslns. Simi 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — i lauaa* Bölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Washkansky ÞAÐ' VAR mikill viðburður er læknum í Suður- A£- ríku tókst að færa hjarta úr nýlátinni konu og græða í Louis Washkansky', sem var dauðvona af hjarta- sjúkdómi. Vakti þetta afrek að sjálfsögðu heimsat- hygli og minnti á hinar miklu framfarir læknavís- indanna og þau kraftaverk, sem nú eru unnin á sviði þeirra. Því var það harmað, er Washkansky fékk lúnabólgu og lézt. Læknar munu fyrir alllöngu hafa náð valdi á þeirri tækni að flytja hjarta og tengja það við nýjan Ííkama. Hefur það verið gert á dýrum í mörg ár. Hitt er óleyst þraut, hvernig unnt er að fá líkamann til að samlagast aðkomuvefjum, en af náttúrunnar hendi hefur mannslíkaminn ótrúlegt mótstöðuafl og snýst til varnar gegn hverskonar aðskotaverum. Án þessa eiginleika, yrði meðalævi mannsins stutt. Hver sem framvindur þessara ihála verður, nýtur lækna- stéttin þakklætis og aðdáunar. Og þó á hún eftir að ráða marga þraut á næstu árum, sem virðast óleysan leg í dag. Bækur og menn VIÐ AFGREIÐSLU FJÁRLAGA á Alþingi cr mikið að gera í þingsölum og talað fram á nætur, en þó mun rneira á seyði að tjaldabaki. Þar er tekizt á og samið í nefndum, milli flokka, við ráðherra og flutningsmenn tillagna. Reynir bver þingmaður að koma sínum áhugamálum fram, sem von er. Austri segir í Þjóðviljanum frá einni af smá- orrustum þessa stríðs og lét sér nægja hluta af sann leikanum eins og oft áður. Svo er mál með vexti, að á elleftu stundu hófu nokkrir menn harða baráttu til að fá ríkið til að kaupa bókasafn Boga heitins Ólafs- sonar og fyrst forsetasetrið á Bessastöðum. Verðið var ná-lægt tveimur milljónum kr. Magnús Kjartans son reyndist hafa mikinn áhuga á þessu máli. Ekki skorti á góðvilja þingmanna í garð aðilja þessa máls. En það var fiutt eftir að þingmenn höfðu í mörgum tilfellum barizt árangurslaust fyrir fé til skóla, hafna, íbúða, sjúkrahúsa og annarra nauð- synja í kjördæmum sínum. Þótti þeim illt, að eftir ótal svnjanir á öðru,' skyldi allt í einu til fé í ríkis- sjóði til slíkra bókakaupa. Þess vegna kvaðst Bragi Sigurjónsson til dæmis telja sig óbundinn um af- stöðu til fjöimargra annarra mála, ef ráðherrar og þingmenn knyðu þetta mál fram. Út af þessu ræðst Austri á Braga og sakar hann um brot á stjórnar- skránni og hvaðeina. Það er auðvitað þvættingur, en menn sáu að sér og tóku tillöguna til baka. Geta ekki einhverjir fjársterkir menn gefið Bessastöðum þetta ágæta bókasafn? GEFJÖN- IÐUN N ÁUSTURSTRÆTI HERRA HERÐATRE Góð jólagjöf HANSABÚÐIN Lauffaveg-; 69 - Sími 21800 ORÐSENDING FRÁ LOFTLEIÐUM Vegna jóla og áramóta verða eftirtaldar breytingar á venja- legri síma- og afgreiðsluþjónustu Loftleiða í Reykjavík: 1. Farþegaafgreiðslur og símavörzlur verða lokaðar frá kl. 4 e. h. á aðfangadag til kl. 10 f. h. annan jóladag, 2. Farþegaafgreiðslur og símavörzlur verða lokaðar frá kl. 4 e. h. á gamlársdag til kl. 10 f.h, 2, janúar, 3. Almennar skrifstofur Loftleiða í Reykjavík verða ekki opnaðar fyrr en kl. 1 e. h. 2. janúar n.k. Um Ieið og Loftleiðir biðja hina mörgu og góðu viðskipta 1 vin félagsins afsökunar á þessum frávikum vcnjulegrar þjónustu, vill félagið nota tækifærið til að þakka þeim ár- ið, sem nú er að ljúka, og árna allra heilla á þvi, er senn fer í hönd. Gleðileg jól OFTLEIUlR MUNIÐ 4 23. desember 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.