Alþýðublaðið - 07.05.1967, Síða 2
2
7. maí 1967
Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÖ
stærstð stálskipið
Um næstu mánaðamót verSur
sjósett á Akureyri stærsta skip
eem smíðað hefur verið hérlendis
til þessa. Skip þetta, sem bygfft er
fyrir Eldborgu hf. í Hafnarfirði
er 530—540 lestir og kostar fullbú
ið um 26 milljónir.
Það er Slippstöðin hf. á Akur-
eyri sem sér um smíði skipsins
og fer byggingin fram í 32 þús.
rúmmetra stóru húsi, sem reist
var á síðastliðnu sumri.
Byrjað var á þessu skipi í sept
embermánuði sl. og hefur verk
ið gengið vel, ekki hvað sízt vegna
hinnar ágætu vinnuaðstöðu í nýja
liúsinu, en hefði þess ekki notið
við, má ætla að vetrarveðrin
hefðu tafið mjög fyrir framkv.
Hjá Slippstöðinni hf. vinna nú
um 140 manns, bæði við nýsmíði
og viðgerðir.
Þetta er annað stálskipið sem
Slippstöðin hf. byggir, en það
fyrsta var Sigurbjörg ÓF 1 sem
hleypt var af stokkunum á síð
asta sumri, og hefur Iþað reynzt
mjög vel í hvívetna. Nú er hafinn
undirbúningur að byggingu
þriðja skipsins, sem gert verður
fyrir Sæmund Þórðarson skip-
stjóra, og verður það af svipaðri
stærð og það, sem nú er í smíð
um og er áætlaður byggingar
tími 8—9 mánuðir.
Þess má að lokum geta, að
Slippstöðin hf. á Akureyri hefur
aðstöðu til að byggja innanhúss allt
Hús Slippstöðvarinnar á Akureyri er mjög stórt og er hæð þess álíka og 8—9 hæða fbúðarhúss, eða
rúmlega 20 metrar.
að 2000 lesta skip ok kæmi því vel
til greina að hún tæki að sér
smíði á einhverjum af þeim skut
togurum, sem ríkisstjómin ætlar
að láta byggja.
Samningafundur var haldinn á
föstudag í vinnudeilu lyfjafræð
inga, en árangurslaus og hefur
ekki verið boðað til nýs fundar.
Á fundi í Lyfjafræðingafélagi ís
lands sama dag var eftirfarandi
ályktun samþykkt ' með öllum
greiddum atkvæðum.
„Fundur í Lyfjafræðingafélagi
íslands þann 5. maí 1967 hvetur
sámninganefnd til að standa fast
á sanngjörnum kröfum félagsins
í vinnudeilu þeirri sem nú er háð.
Lýsir fundurinn furðu sinni og
hneykslun á ummælum og hegðun
apótekarafélagsins, sem skýrt hef
ir verið frá í blöðum og útvarpi
og telur þar birtast lítinn vilja
Togari tekinn
í landhelgi
Brezkur togari var tekinn að
meintum ólöglegum veiðum fyrir
Austurlandi, 2 mílur innan land
helginnar.
Gei’ðist þetta milli kl. 2 og 3
í fyrrinótt. Varðskipið Þór tók
togarann, þar sem hann var að
meintum ólöglegum veiðum innan
landlielgi og kom með hann til
Neskaupstaðar kl. 10 í gærmorg
un. Togarinn er frá Fleetwood og
lieitir Boston Kestral FD—256.
til að leysa sameiginlegan vanda
á sanngjaman og skynsamiegan
hátt. Skorar fundurinn á samn-
inganefnd að mæta óbilgimi svo
sem verðugt er, og sýna þeim mun
meiri festu sem apótekarafélagið
gerir sig líklegra til að draga
deiluna á langinn.
Fundurlnn telur að með ástandi
því, sem nú hefir skapazt í lyfja
búðum og látið er gott heita, sé
almenningi sýnd slík lítilsvirðing
og ábyrgðarleysi að furðu gegni,
enda vofi sífellt yfir sú hætta,
sem læknastéttin hefir talið sér
skylt að vara við og kunnugir vita
bezt, hve geigvænleg verður að
teljast.
Fundurinn fordæmir þá van-
virðu, að yfirvöld heilbrigðismála
skuli leyfa sér að skakka leikinn
í vinnudeilu þessari með því að
nema úr gildi mikilvæg lagaá-
kvæði og halda vikum saman
verndarhendi yfir því ófremdar-
ástandi í lyfjabúðum, sem menn
ingarþjóðfélagi er allsendis ósam
boðið og jafnt apótekurum sem
yfirvöldum til minnkunar.
Læknafélag Reykjavíkur hefur
sent heilbrigðismálaráðherra, Jó
hanni Hafstein tvö bréf þess efn
is að hann hlutist til um, að bráð
ur bugur verði undinn að lausn
vinnudeilu lyfjafræðinga þar eð
mikil vandræði eru að fá jafnvel
nauðsynlegustu lyf á vissum tíma
sólarhringsins, þar sem engar vakt
ir erU í lyfjabúðum borgarinnar
um nætur og helgar og telur
stjórn L.R. að núverandi ástand
geti hvenær sem er orsakað al
varleg slys vegna rangrar af-
greiðslu lyfja, auk þess sem
ið er að bera á skorti á sumum
tegundum lyfja.
Stjórn Læknafélags íslands hef
ur einnig sent heilbrigðisyfirvöld-
unum bréf þar sem segir að stjórn
Læknafélagsins telji að vinnu-
stöðvun lyfjafræðinga í lyfjaverzl
unum geti valdið því, að Iyfsölu
þjónusta og eftirlit með lyfjagerð
og afgreiðslu verði ófullnægjandi
eins og starfshættir eru nú. Stjórn
in beinir því þeim tilmælum til
réttra aðila að hlutast verði til Hið nýja skip Eldborgar er með yfirbyggðu þilfari, sem er meira
um að bundinn verði endir 'á en mannhæðar hátt, og sést hér á skipshliðinni inngangurinn á
vinnustöðvun hið bráðasta. þilfarið. Lengd skipsins er 42 metrar.
Ráðstefna um vinnslu
siávarafuröa hefst á morgun
Verkfræðingafélag íslands efn-
ir til gagnmerkrar ráðstefnu dag-
ana 8.-9. og 10. maí næstkomandi
á Hótel Sögu. Fjallar ráðstefnan
um vinnslu sjávarafurða. Þetta er
þriðja ráðstefnan, sem Verkfræð-
ingafélag íslands efnir til síðan
árið 1960. Árið 1960 efndi félagið
til ráðstefnu um tæknimenntun og
vélvæðingu, en árið 1962 efndi fé
lagið til ráðstefnu um orkulindir
og iðnað. Ráðstefnan um vinnslu
sjávarafurða er því þriðja ráð-
stefna Verkfræðingafélags ís-
lands, en tvímælalaust cr þessi
ráðstefna sú viðamesta, enda fjall
ar hún um mikilvægasta þátt ís-
lenzkra atvinnumála.
Helztu ráðamönnum sölusam-
taka fiskiðnaðarins auk annarra
aðila, sem að sjávarútvegi og fisk
iðnaði starfa, er boðið til réðstefn
unnar. Fulltrúum stjórnarvalda
er og boðið til þátttöku í ráðstefn-
unni. Þess skal getið að öllum
félögum í Verkfræðingafélagi ís
lands er heimilt að sitja ráðstefn
una.
Á ráðstefnunni flytja erindi
þrír erlendir aðilar, sem eru kunn
ir af alþjóðavettvangi um þau
mál, sem ráðstefnan fjallar um.
Framhald á 3. síðUy
VERKFALL LYFJAFRÆÐINGA
SIENDUR ENNÞá YFIR