Alþýðublaðið - 07.05.1967, Blaðsíða 5
7. maí 1967 - Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ
9
TŒmmm
EIMMOP-
Ritstjóri: Benedikt Gröndal. — Ritstjóri Sunnudagsblaðs: Kristján
Bersi Ólafsson. — Símar: 14900—14903. — Auglýsingasími 14906.
Aðsetur: Alþýðu'núsið við Hverfisgötu, ReyXjavifc. — Prentemiðja
Alþýðublaðsins. Sími 14905. —' Áskriftargjald: kr. 105,00. — í lausa-
sölu: kr. 7,00 eintakið. — Útgefaudl: AlJöýðuflokkurinn.
m
NEYÐARLEG ORLOG
Islenzkir kommúnistar héldu nýlega
fund í Austurbæjarbíói til heiðurs Ein
ari Olgeirssyni, þar eð hann lætur nú af
þingmennsku. eftir þriggja áratuga setu
á Alþingi. Kommúnistar á íslandi og
alþjóðakommúnisminn get-a þakkað Ein
ari Olgeirssyni að verulegu leyti fyrir
þau áhrif, sem þeir hafa náð á íslandi
Hins vegar hefur 'íslenzk alþýða lítið að
þakka honum fyrir. Hann hefur verið
hávær þingmaður, en ekki tillögugóður.
Einar Olgeirsson var einn af frum-
kvöðlum að stofnun Kommúnistaflokks
íslands. Hann hóf stjórnmálaferil sinn
með því að kljúfa Alþýðuflokkinn,
sundra verkalýðshreyfingunni. 1937
tókst honum að leiða sundrungina inn
í sali Alþingis. Hann predikaði, að leið
jafnaðarmanna til sósíalisma, leið lýð-
ræðis og þingræðis væri röng. Byltingin
og alræði öreiganna, að sovézkri fyrir
mynd, væri rétta leiðin. Nú munu þeir
fáir sem gera sér ekki ljóst, að hvert ein
asta orð, sem Einar Olgeirsson sagði á
þessum árum um þessi efni, var rangt
og ekki aðeiris það, heldur skaðlegt.
1938 lagði hann sig allan fram um að
kljúfa Alþýðuflokkinn öðru sinni, nú tii
þess að sameina þá alþýðu, sem hann
hafði byrjað að sundra átta árurn áður.
Hann sagði, að kommúnistar og jafnað
arnienn gætu vel verið saman í eimim
flokki. Héðinn Valdimarsson og fleiri
góðir menn trúðu honum. En ekki liðu
nema tvö ár, þangað til Héðinn sá, að
hann hefði ekki átt að trúa Einari. Það
sr ekki hægt .að vera í flokki með komm
únistum. Þess vegna fór Héðinn úr Sós
íalistaflokknum. Þegar Sósíalistaflokk
irinn hafði opinberað svo þjónustu sína
i?ið alheimskommúnismann, að erfitt
var að fá menn til þess að trúa því, að
Bósíalistaflokkurinn væri, þrátt fyrir
nafnið, nokkuð annað en venjulegur
kommúnistaflokkur, þá tók Einar enn
að freista ýmissa Alþýðuflokksmanna
til samstarfs undir nýju nafni, Alþýðu
bandalagsnafninu. Enn fengust nokkrir
til þess að trúa honum, og þá fyrst og
fremst Hannibal Valdimarsson. En hann
hefur nú komizt að sömu niðurstöðu og
Héðinn Valdimarsson. Hann telur ekki
hægt að starfa með Einari Olgeirssyni
og mönnum með sömu skoðanir og
hann. Þess vegna eru Hannibal og fylg
ismenn hans nú að kljúfa Alþýðubanda
lagið. Arftaki Einars og aðalræðumaður
þakkarfundarins hefur það að ræðu-
efni, hvort Alþýðubandalagið sé að
klofna. Eftir að Einar Olgeirsson hefur
sagzt hafa barizt fyrir sameiningu ís-
lenzkrar afþýðu í áratugi, er aðalum-
ræðuefni kveðjufundarins sundrung
flokks hans. Þetta eru neyðarleg örlög,
en þó ekki öðru vísi en til var stofnað.
HAFNARFJÖRÐUR
Flokksstjóra vantar við unglinga- og skrúð-
garðavinnu bæjarins í sumar. Skriflegar um-
sókriir sendist á Vinnumiðlunarskrifstofuna í
Hafnarfirði fyrir 19. maí — Upplýsingar gef
ur bæjarverkfræðingur.
Vinnumiðlunarskrifstofan
í Hafnarfirði.
SUMARRÝMINGARSALA
í VINNUFATAKJALLARANUM
hefst mánudaginn 8. maí. — Selt verður með
al annars:
Gallabuxur telpna á kr. 90.00
8 gerðir af innlendum og erlend
um gallabuxum barna og unglinga
seljast allar á kr. 125.00
Drengjaskyrtur á kr. 75.00
Vinnubuxur karla frá kr. 150.00
Köflóttar vinnuskyrtur
karla á kr. 10.00
Terylenebuxur drengja frá kr. 220.00
Terylenebuxur karla á kr. 540.00
Barnaúlpur og jakkar á kr. 250.00
Karknannaúlpur og jakkar kr. 695.00
Vinnusloppar karla á kr. 375.00
Notið tækifærið og útbúið börnin í sveitina.
VINNUFATAKJALLARINN
Barónsstíg 12.
ÚtgerSarBraenn — skipstjórar
Hollenzkir kókosdreglar og rayonteppi
fyrirliggjandi í úrvali. Tökum mál.
GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN
GrandagarÓi — Sími 14010
Kjallaragreinin er að þessu
sinni ræða, sem Kristján
Bersi Ólafsson flutti á mót-
mælafundi SUJ gegn valda
ráni gríska hersins, en sá
fundur var haldinn á upp
stigningardag. *
eins og látið hefur verið í veðri
vaka. Tilraunin til að hvítþvo
konung í þessu sambandi hefur
mörgum þótt tortryggileg, og
það ekki aðeins erlendis, heldur
líka í Grikklándi sjálfu, en jafn-
vel þó að það kunni að vera rétt
— að hann hafi reynt að tregðast
við á síðustu stundu, þá er þó
byltingin afleiðing af stefnu hans
og stjórnmálavafstri; það eru
fylgismenn konungs i baráttunni
gegn þingræði og lýðræðislegum
stjórnarháttum, sem gera bylt-
inguna, og því verður engan veg-
inn komizt hjá ábyrgð Konstan-
tíns konungs á atburðum síðustu
tveggja vikna í Grikklandi.
Ég ætla liér ekki að fara að
rekja stjórnmálasögu Grikklands
hin síðari ár, ég ætla ekki einu
sinni að rekja sögu byltingarinn-
ar sjálfrar. Það nægir að ég
bendi á að seint í þessum mán-
uði áttu að fara fram almennar
þingkosningar í Grikklandi. Allar
líkur bentu til þess, að í þeim
kosningum hefði miðflokkasam-
band Papandreous fyrrverandi
forsætisráeiierra unnið frækileg-
an sigur og konungi reynzt erf-
itt á eftir að koma í veg fyrir
að sigurvegarinn tæki að sér
stjórn Íandsins. Valdataka hers-
ins er gerð tii að koma í veg
fvrir þetta, gerð til að hindra
að nokkúð vprði úr kosningun-
um. 'iil þess voru e,kki lengur
önnur ráð tiltæk. Allt síðan
Konstnntín lconungur vék meiri-
hlutastjörn Papandreous frá
völdum í hitteðfyrra, hafa minni
hlutastjórnir íhaldsmanna, sem
konungur lamdi saman og lagði
blessun sína yfir, verið liarla
lítils megnandí og staðið á hálf--
gerðum brauðfótum; þcssar
stjórnir nutu ekki trausts gríska
þingsins og er þær féllu ein af
annarri varð stöðugt erfiðara að
standa gegn kröfunni um nýjar
kosningar. Kjördagur var ákveð-
inn maí, en af þessum kosn-
iiig...<< verður nú ekkert.
Byltingin er þannig beinlínis
gerð til þess að koma í veg fyrir
að landinu verði stjórnað í sam-
ræmi við viðurkenndar lýðræðis-
reglur, og þar er að sjálfsögðu
ein meginástæða þess hve víða
og almenna fordæmingu hún hef-
ur hlotið um heim allan. Þótt
lýðræði í þeirri mynd scm við
þekkjum það, sé oft’ ófullkomið
og stundum meira í orði en á
borði, þá þekkjum við þó ekki
annað stjórnarform skárra. Þetta
hafa sumir órðað svo að allar
stjórnir séu slæmar og öll stjórn-
arform gölluð, en lýðræðið þó
ekki út' af eins slæmt og ein-
ræði cða fámennisveldi. Því má
heldur ekki gleyma að lýðræðið
er annað og meira en stjórnar-
form éitt; það er í sjálfu sér
hugsjón, markmið. Menn ltunna
að búa við ófullkomið lýðræði í
sumum löndum, en lýðræðið
sjálft felur í sér möguleika til
endurbóta, möguleika á að full-
komna sjálft' sig. Sjálfsagt get-
ur aldrei orðið um fullkomið, ó-
takmarkað lýðræði að ræða, en
það er mark sem hægt er að
keppa að og nálgast, ef aldrei er
misst sjónar á því. Ekkert slíkt
er til i einræði.
Grísku byltingunni er þó varla
beint gegn lýðræðinu eingöngu
sjálfs þess vegna; hún er naum-
ast sprottin af því að herfor-
ingjar, sem hrifsuðu til sín völd-
in, telji að lýðræðisskipulagið
sé í sjálfu sér rangt og því verði
að kæfa það í fæðingunni,. Varla
mun þeim ganga til svo fílósóf-
ískar ástæður. Miklu fremur
eru það afleiðingar þess að lýð-
ræði festist í sessi í landinu,
sem liægri öflin óttast, , afleið-
ingar þess að samsteypa mið-
flokka og vinstri sinnaðra' flokka
færi þar með völd, eins og eðli-
legast væri, ef allt vævi með
felldu. Grikkland er nefnilega
vanþróað land um margt, hyldýp-
Framhald á 10. síðu.