Alþýðublaðið - 13.01.1968, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 13.01.1968, Blaðsíða 10
ttiijémplötur Fxamhald af 4, síðu, fiega samið fyrir. OÞá kemur röðin að óperum Greenfield velur í fyrsta lagi fcfadame Butterfly Puccinis með Scotto, Bergonzi og Panerai \mdir stjórn Barbirollis, HMV, Angel og svo Grímudansleikinn cftir Verdi undir stjórn Leins- dorfs, söngvarar Bergonzi, Le- •ontyne Price, Shirley Verrett og Robert Merrill allt úrvals- söngvui-um, útg. er RCA. Síð- <ast en ekki sízt telur liann plötu frá HMV með Daniel Baren- boim píanóleikara, sem ber ef tii vill hæst meðal ungra tón- flistarmanna að öðrum ólöstuð- um. Á þessari plötu leikur hann síðustu sónötu Beethovens op. 111 og ennfremur op. 81, Les Adieux og op. 49 nr. 1. Bretar draga auðvitað nokk- uð taum sinna eigin landa halda fram verkum sem minna eru kunn hér á landi, svo sem éftir Elgar, Vaughan Williams, Brittens og Holst .og virðist •relzt ástæða til að nefna Plá- neturnar eftir Holst á plötu frá HMV þar stjómar sir Adrían flouit Nýju fílharmoníusveit- inni, Jónsmessunæturdraum Brittens og The Burning Fiery Furnaee eftir Brittens að ó- gleymdum enskum söngvum frá H'MV, mezzósópransöngkonan Janet Baker, sem margir telja orftaka Kathleén Ferrier, syng ur lög allt frá Dozland og Pur cell til Brittens. Tveir ungir og efnilegir píanó fieikarar, sem íhöfðu ekki áður 'íeikið inn á plötur komu fram >á árinu þeir André Wafts og Bruno-Leonardo Gelber. Sá síð iarnefndi leiku^ fyrsta píanó- fl-onsert Brahms með Fílharmó- e íuhljómsveitinni í Munehen. RÍjórnandi er Franz-Paul Deck- er. Af þremur útg. á öðrum píanókonsert Brahms velur Trevor Harey Deceaútg. með töackhaus og Fílharmónruhljóm sveit Vínar undir stjórn Bölims. Kann lýkur einnig lofsorði á Daniel Barenboim og segir að með stjórn hans á þremur af síðari symfóníum Mozarts, nr. 32, 35 (Haffner og 38 (Prague) rkapi ihann nýtt mat á verkum Mozarts. HMV gefur plötuna út. Enska kammermúsikhljómsveit- in leikur. Söngkonurnar Elisabeth Sch- V/arzkopf og Victoria de Ios Aniáeles fá 'mikið hrci,. Sch- W.arzkopf fyrir plötu frá Colum •biá með ýmsum lögum úr ó'per utn m.a. Otello, Eugen Onegin, iSeldu brúðinni og úr óperum Puccinis, en de los Angeles .fyr i.r spönsk og frönsk sönglög (HMV.l. - G. P. íiþróttir Framhald af 7. síðu. Kveiinaflokkur félagsins efldist mjög á árinu ÍR-ingar fóru í fccppnisför til Norðurlanda í íyrrasumar, sem tókst vel. Félag i« var í öðru sæti í Bikarkeppni FRÍ, en árið áður voru ÍR-ingar j' iþriðja sæti. Mesti afreksmað- tir deildarinnar var Jón-Þ. Ölafs son, en mestar framfarir sýndi Erlendur Valdimarsson, sem setti 15 unglingamet. Hinn gamal- kunni þjálfari Guðmundur Þórar insson réðist til félagsins á síð asta ári og hann vann geysimik ið og gott starf. Formaður Frjáls íþróttadeildar ÍR er Karl Hólm. Körfuknattleiksdeild ÍR er ein öflugasta deildin innan ÍR. Starf ið var gott á sl. ári eins og mörg undanfarin ár. Félagið hlaut sig unægara bæði í íslands og Reykjavíkurmótum. í meistara- flokki karla var ÍR í öðru sæti á báðum mótunum. Á mótum sl. haust er greinilegt, að mfl. ÍR er í mikilli framför, sigraði t.d. í Hraðkeppni KR um jólin. Formaður Körfuknattleiks- deildar ÍR er Gunnar Petersen, en aðalþjálfari er Einar Ólafs- son. Starf Fimleikadeildar er ekki mikið og stjórn deildarinnar er í höndum aðalstjórnar. „Old boys“ /Og frúarfiokkar störfuðu á lárinu. Gutiníff Sjgurðáífon var ein- róma endurkjörinn formaður ÍR, en með honum í stjórn eru Hauk ur Hannesson, Gísli B. Kristjáns son, Ágúst Björnsson, Örn Harð arson, Pétur Sigurðsson og. Krist ■mann Magnússon. Borgarstjóri Framhald af 2. síðu. veittur eins og 1967 éða 6%. Hins vegar yrði um breyttar regl ur að ræða viðvíkjandi greiðslu eignaútsvara. Þá gat toorgarstjóri þess, að fyrir Alþingi lægi frumvarp að lögum um írádrátt á útsvarsgjöld um og væru það þess efnis, að til þess að útsvör séu frádráttar hæf verði nauðsynlegt, að menn hafi greitt fyrirframgreiðslur íyr ir 1 júlí ár hvert Þetta kæmi til með að gilda um tekjur, sem menn öfluðu á órinu 1968 Kvað borgarstjóri það nokkurt vandamál, að um það bii fjórð ungur allra útsvars- og aðstöðu gjaldstekna innheimtist ekki fyrr en í desemhermánuði en þá væru allar helztu framkvæmdir á ár- inu um garð gengnar ATVINNUMÁL: Borgarstjóri var að því spurð- ur á fiindinum í gær, hvernig atvinnuhorfur væru í Reykjavík um þessar mundir Tjáði borgar stjóri fréttamönnum, að stór nefnd starfaði að því að rann- saka atvinnumál í toorginni. Nefnd þessi muni þessa dagana skila ákveðnum þætti starfs síns, er tæki fyrst og fremst tii rann- sókna og fyrirspurna, sem sendar voru til verkalýðsfélaga og at- vinnurekenda í nóvembermánuði síðastliðnum. Þar sem þessi rárih sókn -hafi farið fram fyrir geng- isbreytingu, taldi borgarstjóri, að ekki yrði byggt á niðurstöðum rannsóknarinnar nema að tak- mörkuðu leyti. Upplýsti borgar- stjóri, að á hádegi í gær heíðu alls 69 menn óg konur skráð sig atvinnuleysingja Ihjá Ráðrjingar skrifstofu borgarinnar. Ennfrem- ur sagði borgarstjóri, að á með- an vertíð væri enn ekki hafin, væri ekki liægt að gera sér grein fyrir framtíðarþróun þessara mála. Gat hann þess', að múrarar hefðu haft samband við borgar- yfirvöld vegna hitaveitumála i Fossvogi, en eins og flestum er kunnugt, getur múrverk við hús ekki hafizt, fyrr en hiti hefur verið lagður í það. Kvað borg- arstjóri, að flest hús í Fossvogi nú liafa fengið eða geta fengið tengda hitaveitu. HITAVEITUMÁL: Borgarstjóri kvað enn ekki fullreynt um árangur nýrra bor hola og ekki væri hægt að dæma um hann. fyrr en full nýting væri komin á eldri borholur á borgarsvæðinu, og séð yrði, hvort nýju borliolurnar hefðu þau á- hrif á eldri liolurnar, að vatns- magn minnkaði í þeim með til- komu hinna nýrri. Enn væri ekki unnt að fullyrða endanlega um það, hvort samband sé á milli nýrri borholanna og þeirra eldri. Rannsóknir hafi farið iíram á því, til að nefna með efnagrein- ingu vatns, hvort svo sé, en rriargt bendi liL þess„ að svo sé ekki. Töluverður þrýstingur væri i nýju borholunum, og benti það til þess, að ekki sé samband á milli. Þá kvað borgarstjóri að unnið væri að því að setja upp hemla kerfi hitaveitunnar. Nú væru hemlar komnir á um það bil 1800 einföld kerfi í borginni og væru settir hemlar á um það bil 200 kerfi á mánuði og ráðgert væri að hraða þessu verki meira síð- ar, en alls væru um 6000 einföld hitaveitukerfj í borginni. Borgarstjóri kvað það æskilegt, að til væri varaafl fyrir toita- véituna, en það væri afara kostn aðarsamt að reka kyndistöðvar, þar sem vatnið væri toitað upp með olíu. Rekstr?(rkostnaður kyndistöðvar væri nú um 120 þús und krónur á mánuði. SKEMMDIR VEGNA FROSTA: Borgarstjóri upplýsti, að kunn ugt væri um, að u.þ.b. 150 aðil- m- óskuðu eftir aðstoð Hitaveit unnar eftir kuldakastið eftir ný- árið. í 14 til Va tilfella væri um að ræða leka og í sumum tilvik- um ivægan leka. Sagði bclrgar stjóri, að rétt væri að geta þess, að ekki hafi verið um að ræða skort á þjónustu Hitaveitunnar í næstum öllum þeim tilfellum, þar sem leki hafi komið. Hins vegar væri í sumum tilvikum því um að kenna. að óforsvaranlega liafi verið gengið frá leiðshim í húsakerfum, til dæmis vegna þess að leiðslur væru óeinangr- aðar eða lægju við óeinangraða veggi. í nokkrum tilvikum liafi Hitaveitan bókstaflega áður ver ið búin að aðvara viðkomandi aðila vegna ófullkominna hús- kerfa. Hins vegar yrðu öll til- vik skoðuð og metin, áður en á- kveðið j'rði, ihvort Hitaveitan sé skaðabótaskyld eða ekki. GÖTUR OG GATNAMÁL: Borgarstjóri var að því spurð- ur, tovort borgaryfirvöld sæju ekki fram á miklar skemmdir á götum í vetur vegna hinnar um- bleypingasömu tíðar að undan- förnu. Sagði liann, að álitið væri, að ástand gatnanna væri nú miklu betra en á sama tíma í fyrra, en búast yrði við ákveðn um ^kemmdum. Göturnar, sem látið hafa á sjá, eru einkum þær, sem ekki voru „yfirdekktar" í [fyrrasumar, sag\5i hanji. Gjöld vegna þess kostnaðar, sem yrði vegna skemmda á götum yfir vet urinn, mundi ekki að líkindum fara fram úr áætlun. Um 23 milljónum króna hafi verið var- ið til endurbóta á gatnakerfinu í fyrra, en þá liafi verið áæflað að verja til þess 22 milljónum króna, og á þessu ári væri áætl að að verja svipaðri upphæð til endurbóta á götum borgarinnar. Ofnar Framhald af 3. síðn. ur fengið heimild til að nota hér lendis Ofóar af þessu tagi eru nú framleiddir í tólf Evrópu- löndum, en í Evrópu hafa þeir verið framleiddir um 15 ara skeið. Runtalofnar eru byggðir ur flötum stálpípum og er hæð hverrar pípu 7 sm. Fást þeir i öllum hæðum með 7 sm. hæðar mun og í lengdum frá 50 sm. upp í 600 sm. með 10 sm. lengd armun. Gerir þetta að verkum, að hægt er að framleiða ofnana i svo til öllum hugsanlegum stærðum. Runtalofnar hafa náð tölu- verðri útbreiðslu liérlendis. Fyr irtækið hefur aðsetur í Síðumúla 17. Fiskverö Framhald af 1- síSu. ur. Allir þessir aðilar bíða sem sagt átekta þar til úrskurður yf irnefndar verður gerðum heyrum kunnur, sem væntanlega verður eínhvern tíma í dag. Síðdegis í gær barst blaðinu frétt frá LÍÚ þar sem boðað er til fundar þess, sem frestað var á miðvikudag, og verður fundur inn lialdinn á sunnudaginn. Lýst eftir manni Lögreglan í Reykjavík lýsti í græirkvöídi eftír manni, cr var saknað. IW|5ur Þessi var mið- aldra, Jóhann Bjarnason að nafni, Ijósskolhærður, í meðal- lagi hár, en áberandi boginn í baki. Hann var klæddur í brún an jakka, brúnar buxur og köfl- ótta peysu, og fór úr strætisvagni á leið úr Kleppsholtinu niður í Miðbæ, sjðast eir vitað var til hans. Þeir, sem liafa orðið varir við Jóhann, eru beðnir að láta lögregluna vita. Arnað heilla 75 ára er í dag Ólafur E. Bjarna- son frá ÞorvaldserU’I á Eyrar-< bakka. Heiðursmerki Forseti íslands sæmdi á nýárs dag eftirgreinda menn heiðurs- merkjum hinnar íslenzku fálka- orðu: .1. Herra Sigurbjörn Einarsson, biskup íslands, stjörnu stórridd- ara, fyrir embættisstörf. 2. Bjarna Snæbjörnsson, lækni, Hafnar- firði, stórriddarakrossi, fyrir lækn is- og félagsmálastörf. 3. Jónas Guðmundsson, fv. ráðuneytisslj. stórriddarakrossi, fyrir félags- málastörf. 4. Björn Fr. Björnsson sýslumann, Hvolsvelli, riddara- krossi, fyrir embættisstörf. 5. Gísla Bergsveinsson, útgerðar- mann, Neskaupstað, riddarakrossi fyrir störf að útgerðarmálum. 6. Helga Kristjánsson, bónda, Leir- liöfn, riddarakrossi, fyrir búnað ar- og félagsmálastörf. 7. Séra Jón Guðnason, riddarakrossi, fyr ir skóla- og ættfræðistörf. 8. Loga Einarsson hæstaréttardómara,, riddarakrossi, fyrir embættis- störf. 9. Stefán G. Björnsson, framkvæmdastjóra, riddarakrossi fyrir störf að tryggingamálum og störf í þágu skíðaíþróttarinnar. 10. Þór Sandholt, skólastjóra, ridd arakrossi, fyrir störf á sviði iðn fræðslu. Kvöldsímar Alþýðublaðsins: Afgreiðsla: 14900 Ritstjórn: 14901 Prófarkir: 14902 Prentmyndagerð: 14903 Prentsmiðja: 14905 Auglýsingar og framkvæmda sljórn: 14906 Ilöfum flutt skrifstofu okkar að Freyjugötu 43 gengið inn frá Mímisveg. / Björn G. Björnsson, heildv. s.f. Freýjugötu 43, sími 21765. 13. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.