Alþýðublaðið - 19.01.1968, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 19.01.1968, Blaðsíða 1
Föstudagur 19. janúar 1968 — 49. árg. 14. tbl. — VerS kr. V Leigubílstjóri skotinn til bana Morðinginn hefurekki fundizt Reykvískur leigubílstjóri fannst skotinn til bana í bíl sínum snemma í gærmorgun. Telur rannsóknarlögreglan að um ránmorð sé að ræða, en talið er að peningaveski er hann var með á sér sé horfið. í bílnum fannst skothylki af skammbyssuskoti af stærðinni 32 kalíber og við krufningu kom í ljós, að hann hafði verið skot- inn með skoti af þeirri stærð. Telja læknar að hann hafi látizt samstundis af skotinu. Lögregl- an íeitaði morðingjans í allan gærdag, en í gær- kvöldi hafði enn ekkert komið fram, er benti til þess hver hann væri. Bílstjórinn sem myrtur var hét Gunnar Sigurður Tryggvason, til heimilis að Kambsvegi 8 í Reykjavík. Hann var fædd- ur 1325, ókvæntur og barnlaus. vegar, var hún með biðljósum og hreyfill í gangi. Vinstri afturhurð féll að stöfum, en ekki lokuð til fulls. Ökumaður sat undir stýri, helsærður á höfði. Virtist lög- reglumönnunum hann enn vera með lífsmarki og kölluðu þeg ar í stað á sjúkrabifreið, sem flutti manninn á slysavarðstof una. Þegar þangað kom vai Gunnar heitinn látinn. Við krufningu kom í ljós, að skotið liefur lent neðarlega í hnakka hægra megin. Kúlan fannst aftan vinstra auga, var hún ekki komin alveg fram i enni, en hún mun hafa farið inn um botn höfuðkúpunnar. Skotið reyndist vera 32 kalí- bera skammbyssuskot. Rannsóknarlögreglan fór þeg ar inn að Laugalæk, þegar lögreglumennirnir tveir létu Klukkan 7.15 í morgun til- kynnti leigubílstjóri á Hreyfli til lögreglunnar, að sér hefði virzt eitthvað athugavert við bSfreiðarstjóra leigubifreiðar- innar R-461, sem stæði við Laugalæk skammt frá horni Sundlaugavegar. Tveir lög- regluþjónar fóru starx á vett vang. Stóð fyrrgreind bifreið þar, u.þ.b. 80 — 100 metrum frá gatnamótum Sundlaugar- Bíll Gnnnars, sem rnorðið var framið í. Gunnar Trygrgvason, Ekkert leyfi til fyrir byssunni Blað'ið átti viðtal við Bjarka Elíasson yfirlögregluþjón I gær og spurði hann, hve m'argir Reykvíkingar hefðu byssuleyfi. Sagði hann að til dagsins í dag- hefði embætti Lögreglustýórans í Reykja vík veitt aíls 4642 byssuleyfi en á siðasta ásri hafi veriff veitt 224 byssuleyfi, en í sum um tilvikum væri um milli færslur að ræða, þannig; að sami maðurinn ætti í hlut. Kvað Bjarki, að leyfi væru veitt nær einvörðungu fyrir riffla og haglabyssur og svo loftbyssur. Það heyrði til und antekninga, ef veitt væru leyfi fyrir skambyssum og væri það þá aðeins til lögregluþjóna í starfi og með því skilyrði, að þeir hefðu þær aðeins undir höndum, meðan þeir störfuðu í lögreglunni, en leyfin væru innkölluð, hættu þeir störfum hjá lögreglunni. Þá sagði Bjarki að kindabyssur flokk uðust undir skammbyssur en leyfi fyrir kindabyssum fengju aðeins sláturleyfishaf ar og þeir bændur, sem nauð synlega þyrftu á slíkum byss um að halda. Aldrei væru veitt leyfi fyrir sjálfvi.kum skambyssum. Bjarki sagði, að lögrcglan hafi orðið þess vör aff skamm byssum væri smyglað imi í landið, en þær væru gerðar upptækar, þegar til þ--irra næðist. Náið samband væri milli lögreglu og tollgæzlu varðandi innflutning á ólög

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.