Alþýðublaðið - 19.01.1968, Page 5

Alþýðublaðið - 19.01.1968, Page 5
Minningarord: GUÐMUNDUR BJARNASON Fæddur 7. fúlí 1908. Dáinn 13 nóv. 1967. Einar ríki. I. faindi: FAGURT ER t EYJUM Þórbergur Þóröarson skráði Helgafell, Reykjavík 1S67. 280 bls. Fagurt mannlíf hét fyrsta bindið í ævisögu séra Árna Þór- arinssonar sem kom út árið 1945. Þegar því sleppti var sögumaður orðinn seytján ára og fjögurra mánaða gamall, kominn suður til Reykjavíkur þar sem hann komst brátt í latinuskólann. — Fagurt er í Eyjum nefnist upp- hafið að „nýju stórvirki í ævi- sögustíl” sem Þórbergur Þórð- arson færist nú í fang, sögu Einars ríka Sigurðssonar., Að sögulokum fyrsta bindis er sögu- maður kominn suður til Reykja- víkur, sextá'n ára gamall og hef- . ur staðizt inntökupróf í Verzl- unarskólann. Og þar verður þráð- urinn væntanlega tekinn upp aftur að hausti. Nöfnifi segja til um hvað líkt er og ólíkt með bókunum. Hvort tveggja er æskulýsing sögu- manns, fagur tími í mínning- unni, báðar lýsa þær lífsháítum sem orðnir eru all-fjarlægir nú- tímanum. Að þessu leyti nýtur saga séra Árna þess náttúrlega að hann er hálfri öld eldri en Einar ríki og að því skapi fróð- legri nútímalesanda. Samt er annar munur veigameiri á sögu þeirra. Séra Árna er manniífið í Hreppum efst í hug þegar liann Segir frá æsku sinni og er óðara farinn að segja frá fólki, iýsa mönnum, frásagnir atburða, lýs- ing lífshátta lýtur jafnan mann- lýsingunum í sögu hans. Alveg öfugt er Einari farið: honum er fegurð Eyjanna sjálfra hugstæð- ust þegar hann tekur að segja frá sinni æsku, liefur meiri á- huga á lífinu, lífsháttunum þar en fólkinu. sem lifði þessu lífi. Staðreyndir eru hans mál í þess- um æskuminningum, ekki skoð- anir né annar hugarspuni. Einn- ig að þessu leyti er hann ólíkur sögumaður séra Árna Þórarins- syni. í ævisögu hans er að vísu samandregið firnamikið stað- reyndasafn um menn og málefni. En sögumaður einskorðar sig ekki við staðreyndir ævinnar, þær eru nánast jörðin sem liann stendur á, efniviður ævisögunnar tií að uppmála persónuleika sögumannsins. í samanburði við séra Árna er Einar ríki persónu- laus maður í þessu fyrsta bindi æviminninga sinna. Góður skáldsagnahöfuíidur, segir Halldór Laxness, lítur ckki á veröldina „eins og hólinn þar sem Opinberunin birtist, heldur plássið þar sem staðreyndir ger- ast; og hann gerir sér mat úr staðreyndum eftir því’-sem þær ber að, einni í senn. . . Sé gert ráð fyrir því að hverju starfi fylgi sérstök samvizka, eins og haft er eftir Sókratesi, þá mundi •ég segja að staðreyndin, hvaða sköpuð staðreynd sem er, komist næst því að vera skáldsagnahöf- undi rödd guðs.” Kenning Halldórs Laxness kemur mætavel heim við aðíerð- ir Þórbergs Þórðarsonar — með því fororði auðvitað að það éru ekki „skáldsögur” sem iiann semur. Allt síðan Þórbergur færði í letur ævisögu Árna Þór- arinssonar hafa staðreyndir efn- isins verið honum hughaldnar, efnismagnið er stöðugt að breiða út frásögn hans, teygja hana á' langinn í verkurn eins og Sálm- inum um blómið eða hans eigin æskuminningum úr Suðursveit. Þetta er vitaskuld ein aðferð höf- undar til að hverfa bak við, sam- samast efni sínu, að láta af því úrvali efnisins sem jafnan liefur þótt aðall sögumanns hvort sem hann segir „sanna” sögu eða „ó- sanna”; slikar bækur gera tiikall til að rúma „allt” lífið cins og það „er”; hver ,sköpuð . stað- reynd” þess er jafngild. Saman- burður við síðastnefndu bækur Þórbergs er að vísu óhepþileg- ur, þar sem hann kemur sjálfur við söguna þar, en cngu að síður virðist mér aðferð þeirra Einars Sigurðssonar í eðli sínu hin sama í sögu Einars,- Ef nokkuð cr gengur hún nú feti framar. Ein- ar Sigurðsson gerir sér ekkert íar um að greina frá hugarheimi sínum í bernsku, innra lífi eða hvað maður vill kalla það, og gerir slíkt einungis almennustu orðum ef svo ber við; og hánn metur sjaldnast eða dæmir eftir á staðreyndir frásögunnar; s1að- reýndin sjálf er honum eitt og allt. Að því skapi eru líka mann- lýsingar hans dauflegar, jafnvel föður hans, sem Örn Arnarson kvað um kvæði sitt um Sigurð formann, óg einna mest rælct er lögð við í bókinni. Á hinn bóg- inn er hér samandregið gríðar- mikið heimildasafn um lífs- háttu, uppvöxt unglinga í Eyj- um á öndverðri öldinni; sjaldan mun nokkur maður hafa tíundað barnleika sina af annarri eins nákvæmni og Einar ríki. Saga hans hefst eins og lög gera ráð fyrir með greinargerð um ætt og uppruna sögumanns; síðan er heimili hans gaumgséfiiega lýst herbergi fyrir herbergi; gerð grein fyrir foreldrum hans og fjölskyldu, og eru þar birtar frá- sagnir, eða vitnisburðir, fjöl- margra manna sem kúnnugir voru föður hans; áð öllu ]>essu loknu taka loks við fyrstu minn- ingar sögumanns sjálfs urn um- Framhald á bls. 11. Guðmundur Bjarnason, hús- vörður, lézt í Fjórðungssjúkra- húsinu á ísafirði 13. nóv. sl. eft- ir nokkurra vikna stranga sjúk- dómslegu. Guðmundur Bjarnason var fæddur 7. júlí 1908 að Miðhúsum í Reykhólasveit. Foreldrar hans sem þá bjuggu í Miðhúsum, voru hjónin Björg Magnúsdóttir og Bjarni Guðbrandsson. Þau voru bæði ættuð úr Strandasýslu. Tveggja ára að aldri fluttist Guðmundur með foreldrum sín- um til ísafjarðar. Hér átti liann síðan heima til dánardægurs. Á bernsku- og uppvaxtarárum Guðmundar heitins Bjarnasonar voru lífskjör daglaunamanna engin : sældarævi. Daglegt á- hyggjuefni verkamannsins var það að sjá fjölskyldunni fyrir allra brýnustu lífsnauðsynjum. Það verkefni var sannarlega mikil þolraun, þvi aðstæðurnar voru erfiðar. Annars vegar árs- tíðabundið og oft langvarandi at- vinnuleysi, en á hinn bóginn var , harðdrægt og skilningslítið pen- ingavald, aem taldi sér mestan hag í viðhaldi þess þjóðfélags- lega ranglætis, sem hélt almenn- ingi í úlfakreppu fátæktar og . öryggisleysis. Bjarni, faðir Guðmundar, var að sögn mesti elju- og dugncðar- maður. Börn þeirra hjóna voru sex, tvær dætur og fjórir synir. Meðan börnin voru í ómegð var fyrirvinna heimilisins aðeins ein. Það liggur því í augum uppi að þar muni ekki hafa verið mikill auður í garði, þrátt fyrir -dugnað og ráðdeild þeirra hjóna. Á þessum árum var það brýn nauðsyn, að börnin færu að vinna fyrir sér strax óg unnt var, enda þörf alþýðuheimilanna mikil til að drýgja kna’ppar vinnutekjur. Hlutskipti Guðmundar heitins og systkiná hans varð því það að Iétta undir með foreldrunum strax og kraftar leyfðu. Guð- mundur byrjáði því starfsævi sína næsta ungur að.árum, fyrst . við saltfisksþurrkun, sem á þeirri tíð var helzti atvinnuveg- ur bæjarbúa, og sem gat nýtt vinnuafl barna öðrum atvinnu- greinúm fremur. Eftir því, sem líkamsþroski og starfsgeta Guðmundar óx, urðu %'erkefnin fjölbrej'ttari og erfið- ari. Snemma bar á kappsfullum dugnaði hans. Hann varð því brátt eftirsóttur til starfa, enda harðduglegur. verklaginn og fjölhæfur mannskapsmaður. Árum sanian vann hann hjá sönni verkstjórum, bæði á fisk- vinnslustöðvum, í rækjuverk- smiðju, sem bærinn rak í Noðsta- kaupstað og víðar. Þá var hann í hópi þejrra harðduglegu verkamanna, sem unnu frábært starf við erfiðar aðstæður í sambandi við raforkú- framkvæmdirnar við Fossavatn og að Fossum í Engidal. Aðalstarí Guðmundar var þó húsvarzla í Alþýðuhúsinu. Því erfiða og vanþakkláta stai'fi gegndi hann um 30 ára jkeið af sérstakri árvekni og trúmennsku. Við fyrstu sýn og í augurn ó- kunnugra virðist Guðmundur Bjarnason ékki eiga að baki sér . atburðaríka eða stórbrotna sögu. En þegár dýpra er' skyggnzt og horft bak við hversdagslcikann, sem að sjálfsögðu ber í ríkum mæli svipmót þeirra lífskjara, sem uppvaxtarárin buðu upp á, blasir önnur og sannari mynd við. En það, sem skiptir þó mestu máli er sú staðreynd, að hér var um náttúrugreindan, fjölhæfan og heilsteyptan drengskapar- mann að ræða, sem vegna þióð- félagslegrar aðstöðu stéttar sinn- ar átti þeirra einna kosta völ á mqstu manndómsárum ævinn- ar, að taka hlutskipti sínu og lífs- baráttu af sannri karlmennsku, og reynast vandamönnum sínum og vinum drengur góður. Guðmundur heitinn var mik- i!I félagshyggjumaður. Brauð- strit æskuáranna kæfði ekki þau lífsviðhorf hans. Hann tók því virkan þát.t í margs konar fé- lagsstarfsemi. Hann var einn af stofnendum íþróttafélagsins Magna og mjög virkur starfs- kraftur þess lengi. Magni var um langt árabil helzti burðarásinn i fjölþættu félags- og skemmt- analífi bæjarins. Félagið hóf til vegs fimleika. í því efni naut það ötullar handleiðslu Gunnars Andrews, íþróttakennara. Guðmundur var fjölhæfur fim- leikamaður. Hann var í sýningar- flokki Magna í mörg ár, on sú úrvalssveit sýndi fimleika víða um landið við mikinn orðstír. Guðmundur Bjarnason var einn þeirra unglinga, sem stofn- uðu skátafélagið Einherjar. — Virkur meðlimur þess var hann í nokkur ár. Framhald á bls. 11. 19. janúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ g

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.