Alþýðublaðið - 20.01.1968, Blaðsíða 5
Njósnarinn sem kom inn úr kuldanum
* * * *
The spy 'who came in from the
cold. Bandarísk frá 1965, crerð
eftír sögn John le Carré. Fram
leiðandi og leikstjóri: Martín
Ritt. Tónlist: Sol Kaplan.
Njósnajrinn, sem kom inn
kuldannjn er vissulega engin
vejuleg njósnamynd einsog
flestum er víst kunnugt um.
Söguhetjan, Alex Leamas, njósn
ari í brezku leyniþjónustunni,
er fertugur maður, drykkfelld-
ur. Hann er einungis peð í ref
skák stórveldanna, sitt raun-
verulega hlutverk fær hann
ekki að vita um.
Richard Burton fer frábær-
lega með hlutverk Leamas, og
sannar enn, að hann stendur
líklega fáum kvikmyndaleikur-
um að baki. Claire Bloom leik-
ur ástmey hans, einföld og sak
laus kommúnistastelpa. Leikur
Bloom er mjög náttúrlegur og
þokkalegur í alla staði. Oskar
Werner og Peter van Eyck fara
og bærilega með sín hlutverk;
þá stendur Cyril Cusack fyrir
sínu að vanda, en hann leikur
hér yfirmann Burtons.
Martin Ritt er leikstjóri, sem
vert er að fylgjast með. Fyrir
nokkrum árum sýndi Háskóla-
bíó eftir hann mjög athyglis-
verða kvikmynd, Ilud frændi.
Ég hef ekki séð nema bessar
tvær myndir eftir Ritt, en stíll
þessarar kvikmyndar minnir
mjög á Hud. Ritt leiðist aldrei
út í þá hættu að ofdramatísera
atburði, hvergi er of hátt
spennt. Yfirleitt er myndin í
vandaðara lagi; gráleitu um-
hverfinu er vel lýst með ágætri
kvikmyndatöku og fellur dável
að efninu, tónlistinni er stillt
í hóf og í flestum tilvikum not
uð á réttum augnablikum, að
því er mér virtist — og allt á
þetta sinn þátt í að gefa mynd
inni raunsærri blæ.
Aðeins eitt að lokum: Efnis-
skrá kvikmyndahússins er mjög
handahófslega unnin, þar sem
efnið er þrívegis upp tuggið.
S.J.Ó.
Rafvirkjar
Fotoselluofnar,
Rakvélatenglar.
Mótorrofar
Höfuðrofar, Rofar, Tenglir.
Varhús, Vartappar.
Sjálfvirk rör, Vír, Kapall,
margar gerðir.
Lampar í baðherbergi,
ganga, geymslur. í
Handlampar
Vegg-, loft og lampafalir
inntaksrör, járnrör,
1“ ly4“ 1W‘ og 2“.
Einangrunarband, margir
litir og önnur smávara.
— Allt á cinum stað, — .
— Rafmagnsvöru- —
— búðin sf. —
Suðurlandsbraut 12.
Sími 81670.
— Næg bílastæði. —
Uppkast að
samþykkt um
kjamorkubann
Genf 18. 1. (ntb-reufer)
Sovétríkin og Bandaríkin lögðu
samþykkt gegn frekari útbreiðslu
tveggja ára af samningaviðræðum,
Uppkastið var lagt fram í Genf
en þar standa nú undirbúnings
fundir fyrir afvopnunarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í New
York. Meðal annars eru í upp
kastinu ákvæði um hvernig skuli
að farið verSji eíftir 3amþykk|t
inni en það er einmitt um þetta
atriði, sem mestu deilurnar bafa
staðið.
Þau ríki, sem undirrita sam
þykktiná, skuldbinda sig til að
vinna að stöðvun vígbúnaðarkapp
hlaupsins og reyna að koma á
fullkominni aik'opnun. Lögð er
áherzla á að öll lönd og ríki séu
í gær fram fullbúið uppkast að
kjarnorkuvopua. Er það árangur
aðildarhœf að samþykktinni. Þá
er hvatt til þess að vísindamenn
allra þjóða skiptist á upplýsing
um um kjarneðlisfræði.
Ekkert þessara atriöa hefur
fyrr verið í slíkum afvopnunar
frumvörpum heidur ekki ákveðið
um að samþykktin skuli gilda í
25 ár.
Greini um eftirlit með að farið
sé eftir samþykktinni segir að
hin einstöku ríki skuli hafa sam
ráð við Alþjóða kjanrorkustofn
unina í Vín (IAEA), hvert fyrir
sig eða mörg í sameiningu, um
framkvæmd alsherjareftirlits.
Sjötug:
Anna Björg
Dalvík
NORÐUR á Dalvik fyllir mæt
kona sjötugsaldurinn í dag. Það
er Anna Björg Arngrímsdóttir,
fædd á Brúarlandi í Deildardal
1898, þar sem foreldrar hennar
bjuggu þá, sem bæði voru
svarfdælsk að ætt og uppmna,
þau Arngrímur Jónsson, bónda
á Göngustöðum Sigurðssonar,
og Ingigerður Sigfúsdóttir,
bónda á Grund Jónssonar, og
eíginkvenna þeirra, Inuíoar
Hallgrímsdóttur og Önnu Sig-
ríðar Björnsdóttur. En bráölega
fluttust þau til heimahaganna
í Svarfaðardai og bjuggu þar
æ síöan.
En Arngrímur Jónsson varð
ekki gamall. Hann hvárf í haf-
ið með skipi sínu vorið 1910, —
ágætur maður að dug og drengi-
legri gerð. En ekkjan átti örð-
uga daga með sinn barnahóp,
sem þó komst allur upp vegna
frábærs dujjnaðar hennar og
ráðdeildar, og aðstoðar góðra
manna. Enda fóru börnin
snemma að vinna fyrir sér, sem
þá var títt, og skorti þá hvorki
vaskleik né vinnuhug.
Svo var um Önnu Björgu Arn-
grímsdóttur. Hún var snemma
vinnufús og vinnuglöð, lijálp-
söm og skemmtileg í sambúð, —
góðviljuð greindarkoná, skpp-
föst og viljasterk. En nærri lá
eitt sinn að snemma væri klippt
á æviþráð hennar, og er mér
það atvik í fersku minni, sem
vænta má, og þótti þá sannast
sem oftar, að ekki yrði ófeipum
í hel komið. Mó það gjarnan
geymast og því hér rifjað upp.
Var þessu svo háttað, að
Anna frænka mín átti að vera
hjá mér á Flateyri veturinn
1913 — 14, kom vestur með skipi
til ísafjarðar seint að hausti,
fékk ferö með bát til Súganda-
fjarðar, gisti þar \im nótt og
ætiaði með bát þaðan til Flat-
eyrar, er ferð félli, sem oft bar
við á þeim árum. Og þá férð
bar brátt að morguninn eftir.
Vitja þurfti læknis til Flateyrar
og bátúr sendur i þeim erind-
um, sem Anna ætlaði með. En
svo mikill asi var á þeim ferð
húnaði öllum, að örlítil töf,
sem engu máli virtist skipta,
varð of löng. Báturinn fór, án
Önnu, — og kom aldrei fram.
Þótti mörgum sem til þekktu,
að þessi undarlega tilviljun, eða
hvað sem á að kalla það, miniiti
á hið fornkveðna, að eigi ipá'
sköpum renna.
En Anna Björg varð vinsæl mcð
al jafnaldranna vestra þennan
vetur, og yndisauki í heimjli
okkar hjóna, hélt svo heim í
Svarfaðardalinn aftur og gift-
ist síðar góðum og greindum
bóndasyni, Kristjáni Jóhannes-
syni frá Ytra-Holti, og hafa þau
búið á Dalvík alla tíð og farn-
azt vel. Hefur Kristján verið
hreppsstjóri Dalvíkurhrepps síð
an sá hreppur varð til, — há'-
vaðalaus heiðursmaður. Og
vissulega hefur lians myndai-
lega og skörulega kona reyns.t
traust og hyggin húsfreyja og
ágæt móðir, svo sem liún á kyn
til, ósérhlífin og hjálpsöm, virt
og vinsæl kona í samfélaginu.
Þeim hjónum, Önnu Björgu
og Kristjáni, vai’ð fjögurra
barna auðið og lifa öll. Þau eru:
Þ ó r a r i n n , verzlunarmaðui',
kvæntur Ásu Bergmundsdóttur,
H r ö n n , gift Jóhannesi Jóns-
syni skipstjóra, I n g u n . giit
Jóhannesi R. Kristjánssyni iull-
trúa og B i r n a , gift JTelgn
Jakobssyni skipstjóra. Fóstvu-
dóttir þeirra, G u ð 1 a u g Þor-
bergsdóttir, er gift Gunnaii
Tómassyni. Öll eiga þau aíkom-
endur. f
Þetta örstutta afmælisskeyti
læt ég nægja. Það á að flytja
afmælisbarninu,^ og óstvinum
þess, innilegustu hamingjuóskhr
og margfaldar þakkir frá mér
og mínum.
Sii. S.
Frá Gluggaþjónusfunni
Tvöfalt einangrunargler, allar þykktir af rúðugleri,
sjáum um ísetningar, leggjum mósaik og flísar og margt
fleira.
GLUGGAÞJONUSTAN,
Hátúni 27. — Sími 12880.
- ALÞÝÐUBLAÐID §
20. janúar 1968