Alþýðublaðið - 02.02.1968, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 02.02.1968, Blaðsíða 10
SMURT BRAUÐ SNITTUR-ÖL - GOS Opið frá 9 til 23.3«. - Pantið tímanlega í veizlu/'. BRAUÐSTOFAN Vesturgötu 25. Sími 1-60-12. Réttingar Ryðbæting Bílasprautun. Tímavinna. — Ákvæðisvinna. BílaverkstæðiS VESTURÁS HF. Ármúla 7. — Sími 35740. Frá Gluggaþjónustunni Tvöfalt einangrunargler, allar þykktir af rúðugleri, sjáum um ísetningar, leggjum mósaik og flísar og margt fleira. GLUGGAÞJÓNUSTAN, Hátúni 27. — Sími 12880. /9092 og 18966 TIL LEIGU LIPRIR NÝIR 4 SENDIFERÐABÍLAR án ökumanns. Heimasími 52286. Sólþurrkaður saltfiskur BÆJARÚTGERÐ REYKJAVÍKUR við Grandaveg. Sími 24345. Ofnkranar, SERVÍETTU- Tengikranar. PRENTUN Slöngukranar, SÍMT 32-101. Blöndunartæki. Smíðum allskonar innréttingar. BurstafeU gerum föst verðtilboð, góð vinna, góðir skilmálar. byggingavöruverzlun Trésmíðaverkstæði Réttarholtsvegi 3. Sími 38840. Þorv. Björnssonar. Símar 21018 og 35148. 10 2. febrúar 1963 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ UNSER ADOLF Framhald af 5. síðu. liaft áhrif á Hifler á æskuár- um lians í Vínarborg, jafnaðar- menn, þjóðernissinnar og hinn kristilegi sósíalistaflokkur Liig- ers borgarstjóra, svo enn sé nefnt einfalt dæmi til slcýring- ar; á bls. 132-135 cr all vtarleg frásögn af Liiger. En enganveg- inn verður það jafn-glöggt hjá Þorsteini og öðrum höfundum í miklu stytfra máli hvað það raunverulega var sem Hitler nam af Liiger, aðferðir lians að reisa múg í flokk með sér, að fá á sitt band og notfæra sín- um málsfað rótgrónar þjéðfé- lagsstofnanir. kirkju, her og fjármálavald. Þorsteinn Thor- arensen fellir þungan dóm um Versala-samningana, hvatir bandamanna að setja Þióðv. siíka afarkosti, áhrif þeirra í Þýzkalandi; hann virðist hafa stæka óvild á Wilson Banda- ríkjaforseta og velur lionum og lilut hans í friðargerðinni öll hin hæðilegust.u orð. Vegna Versala-sámninganna var Weim- ar-lýðveldið dauíladæmt fyrir- fram að mati Þorsteins. þeir urðu langhelzti hvati hvers kon- ar öfgastefna í Þýzkalandi og þá einkum og sér í lagi hinnar iilvígustu þjóðerjiishyggju; — hins vegar fer hann mikiu lofi um foringja jafnaðarmanna sem tóku við stjórn í Þýzka- landi að hernum uppgefoum, keisaranum fiúnum, og lýðræð- issinnaða stjórnmálamenn Weimar-lýðveldisins yfirleitt. Þessar skoðanir eru ekki nýjar né nýstárlegar, — en þar fyrir eru þær að sjálfsögðu umdeil- aniegar. Jafnaðarmannastjórn- inni tókst að sönnu að forða Þýzkaiandi frá bolsévíkabyit- ingu 1918, Versalasamningarn- ir voru ekki að sönnu ranglátir en. í Weimar-lýðvcldinu var frá öndverðu hlaðið undir herinn og hinar svokölluðu fríliða- sveifir, gróðrarstíu afturhalds og einræðishyggju; aldrei reynt í alvöru að hnekkja veldi prússnesku júnkaranna né rótgrónu auðvaldi keisaratím- ans; sjálf bar Weimarstjórnin mesta ábyrgð á hinu gífurlega gengisfalli í Þýzkalandi og þeirri lausung sem hún olli í þjóðfélaginu. En upp úr þeim jarðvegi hófst nazisminn til vajda. Það er hætt við aö reyn- ist torvelt að úrskurða endan- lega sekt eða sýknu einstakra aðilja að þeim ófarnaðar ferli sem saga Weimar-lýðveldisins reyndist, og þó er enn til- gangslausari iðja að segja sögu í viðteningarhætti. En hvoru kostinn mundi Þorsteinn Thor- arensen velja, mætti hann sjálf- ur ráða efni sögu sinnar frá 1918, sovét-Þýzkaland eða Hifl- ers-Þýzkaland? Lof hans um þá stjórnvizku sem braut bylting- una á bak aftur í Þý/kalandi er jafnframt lof þeirra sem bjuggu í haginn fyrir valda- töku nazismans, lof hinnar lýð- ræðislegu forustumanna Weim- ar-lýðveldisins jafnframt lof þeirra stjórnvizku sem hins vegar samningaborðsins samdi afarkosti Versala-friðarins. ||vers vegna takast mern á hendur annað eins verk og ævi- sögu Adolfs Hitlers sem bossa? Þeirri spurn er Þorsteinn Thör- arensen vitaskuld einn fær um að svara fyrir sína parta, en ó- beinlínis svarar hann henni þcgar i fyx-sta kafld bókar sinn- ar. ,,Það vorum við allir sem gerðum það, allt mannkvnið,” segir hann þar um nokkur til- tekin „voðaverk” bandamanna í stríði þeirra við Hitler og Þýzkaland nazismans. Og á sama hátt vorum það ,,við allir" sem ólum Hifler af okkur, bár- um ábyrgð á honum, allt sam- félag Evrópu. Ásamt Jósef Stalín er Adolf Hitler höfund- ur nútíma-einræðis, alræðis- valds foringja, flokks og rí.kis í þessari tignarröð yfir þegnum sínum, líkama þeirra og sál; þetta í'íkisfor^m er í'ökrétt af- leiðing aldalangrar þróunar í áttina til „lýði'æðis” í senn og það er afurð þeirra sérlegu þjóðfélagshátta, kringumstæðna sem skópu þessa tvo tilteknu foringja. Adolf Hitler er „uns- er Adolf” enn í dag, varanleg táknmynd fyrra hélmings 20- ustu aldar í sögunni. Um skeið var það tízka að telja „foringj- ann” skapaðan af einhver.ium ópersónulegum, vélrænum þjóðfélagsöflum; liefði Adolf Hitler ekki verið t.il taks hefði annar maður jafngildur knmið í staðinn hans. Nú virðist þetta sjónarmið aflagt: nú er í stað- inn lagt upp úr skapandi hlut- deild hins einstæða foringja í framvindu sögunnar; Hitler og Stalin mótast af sínum sérstöku kringumstæðum í upphafi, komast þehra vegna til valda, en einstakur persónuleiki þeirra setur sinn svip á söguna síðan. Þessum skilningi skilin varðar öll saga Adolfs Hitler okkur öll enn þann dag í dag, til skilnings á sjálfum okkur og þeim heim, sem hefur skap- að okkur í sinni mynd, varðar hvert smáatriði nxiklu sem leitt geti til aukins skilnings á ferli Hitlers. Og í þeirri trú virð- ist saga Þorsteins Thorarensen samin. Saga Iíitlers og Stalíns er einstæð, og verður það enn um sinn, fyrir það hve nálæg hún hlýtur að vera höfundi sínum í tímanum, og okkur sem söguna lesum; og að því skapi er erf- itt að segja hana af lilutlægni. Öllum mun ljóst orðið að það sé heldur fánýt iðja að nxói'al- isera um Napóleon mikla, I.úð- vík 16da, Genghis Khan, Caes- ar. En er hægt að segja sögu Stalíns og Hitlers án þess að fella um leið yfir henni siðferði- legan dóm? Áreiðanlega ekki — frekar en yfii’leitt er unnt að segja sögu án siðferðilegrar afstöðu til liennar. En sagnrit- urum verður æ ljósara að fox-- dæming Hitlers er þegar um garð gengin og viðtekin, þeirra híutskipti er í staðinn að skýra þessa sögu, hvernig hún gerðist. Þetta er Þorsteini Thoraren- sen náftúrlega mætavel l.ióst, og áf þeirri viðleitni mótast öll sögugerð hans. Og lesanda virð- ist að hefði honum auðnazt að semja sögu Hitlers og þriðja ríkisins, ágrip af rannsóknum helztu fræðimanna um þessi efni, í einni bók, t.a.m. viðlíka stórri og þessi, hefði hann unn- ið íslenzkum lesendum hið þarfasta verk. Hitt er miklu ó- ljósara hvað knýr hann td að skrifa söguna í svo stórum stíl sem þetta upphaf hennar — enda verður ekki til þess ætl.azt að liann birti neina nýja könn- un né niðurstöður um efnið. Þorsteini Thorarensen er að vísu lagið að segja sögu; maður les bók hans um Hitler, a\la 25 kafla hennar, með eft- irtekt og áhuga nxeðan maður er að lesa. En hún rniðlar les- andanum svo sem engu sem ekki er auðsóttara lxjá öðrúm höfundum. Frásögn Þorsteins er miklu ýtarlegri, sjálfsagt. rétt- ari í smáatriðum en William Shirers til dæmis; en þrátt fyrir það veitir Shirer á 150 bls. miklu gleggri liugmynd um upphaf Hitlers en Þorsteinn á 462. Og hér gætir í stói’um stíl allra þeirra ókosta sem spilla prýðilegri rithöfundar- gáfu Þorsteins Thorarensen, og gera bækur hans leiðar aflcstr ar öðru sinni, óhægar til upp- sláttar, óhóflegrar mælgi, mærðar, óvandaðs orðaíars, glannalegri ályktana um flókin efni Evrópusögu en liann leyfir sér um íslenzk efni. Eins og bækur hans um íslenzka aida- mótasögu geldur Hitlerssagan þess að höfundur birtir efni sitt hálfmælt, hálfunnið — án þess að kunna, eða megna, að fá því það form frásögu sem eðli þess segir til um. Til hvers er hann að þessu? Það veit und vera að framhald sögunnar feli í sér einhverja réttlæting é vinnubrögðum Þorsteins Thor- arensen þó hún verði ekki greind að svo komnu. — Ó.J. Fólk ©g f leira Framhald af 4. síðu. sókn kom í ljós, að stjórnam Iestarjnnar liafði drukkið ,,óti fegt ny*gn af áfengi“. Hani verður ákærður' fyrir man dráp. SMURT BRAUÐ SNITTUR BRAUÐTERTUR BRAUDHVSin SNACK BAR Laugavegi 126. sími 24631. Sígurgeir Sigurjónsson Málaflutningsskrifstofa. Óðinsgötu 4 — Sími 11043.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.