Alþýðublaðið - 03.02.1968, Blaðsíða 2
I
Frétta-
skeyti
Forsetakjör í USA
New York Ntb. Reuter.
Richard Nixon Iiyffgst ffefa
kost á sér til forseta við næstu
kosning-ar. Verður kosið á milli
hans og George Romney í New
Hampshire sem væntanlcgs
frambjóðenda Rebúblikana.
Fjármálaheimurinn.
■fc Ntb. Reuter. Johnson Banda
ríkjaforseti sagði í ræðu í dag
í fjárlaga nefnd bandaríska
hingsins, að ekki værí veitt
aukið fjármagn til að mæta
auknum út gjöldum kynuu
afleiðingarnar að verða hrun
hins alþjóðlega fjármálakerf-
is. Bandaríkin kynnu að þurfa
að taka upp einangrunarstefnu
og minnka hlutdeild sina á
heimsmarkaðlnum.
Kína ásakar USA.
■jjjf Ntb, Reuther 1. 2. Kína hef
ur sakað Bandaríkin um að
hafa varpað sprengjum á tvö
■hínversk skip í höfnum í
ftforður Víetnam s.l. fimmtu-
ðag.
Herafli S. Víetnam.
■Jr Mc Namara gaf þær upp-
Jýsingar í gær, að 88 þúsund
kommúnistar hafi verið drepn
ir á siðasta árl, 30 þúsund hafi
annað hvort dáið af sárum sín
um eða örkumlast, G þúsund
íeknir til fanga, og nærri 18
þúsund gerzt Iiðhlaupar. í
lok desember voru um 485000
bandarískir hermenn í Víet-
nam, en verða 525000 sk. fyr
irframgerðum áætlunum. Auk
t»ess hafa Þeir 3100 þyrlur,
1000 þotur, sem staðsetlar eru
í, S. Víetnam, Thaílandi eða á
fJugmóðurskipum. Stjórn S—
Víetnam hefur 75000 manna
her, sagðl Mc Namara að lok
um.
í
„Vafasamir embættismenn"
•fr Ntb. Reuhter. Gríska ríkis
stjórnin heldur áfram að
hreinsa til og setja „stjórnmála
iega vafasama" menn frá störf
um. Hefur hún sett fjóra fyrrv.
sendiherra og leyst þann
fimmta frá störfum um stund
arsakir. Stað hæfir gríska her
foringjastjórnin að þetta sé
gert til að „tryggja hellbrigði
innan ríkisbáknins’- eins og
Pipinelí utanríkisráðherra
kemst að orði.
Mannfall í Víetnam.
■j^- Ntb. Reuther. 2. 2. Talið
er að 10533 norður Víatnam-
ar og Viet Congar hafi fallið
síðustu 3 daga, 917 af herliði
JS-Vietnam, þar af 281 Banda-
ríkjamenn. 3076 grunaðir Víet
Cftngar hafa verið teknir til
fatiga.
KENNARAR
MÓTMÆLA
SKERÐINGU
Á KJÖRUM
Stéttarfélag barnakennara í
Reykjavík og félag gagnfræða-
skólakennara í Reykjavík efndu
til almenns fundar kennara í barna
og gagnfræðaskólum um kjaramál
og var hann haldinn í Súlnasal
Hótel Sögu í gær. Fundinn sóttu
á þriðja liundrað kennarar.
Eftirfarandi tillaga, sem flutt
var af öllum stjórnarmeðlimum
kennarafélaganna í Reykjavík og
kennarasambandanna, var sam-
þykkt í fundarlok með öllum at-
kvæðum.
„Sameiginlegur fundur kennara
í - barna- og gagnfræðaskólum í
Reykjavík haldinn 29. jan. 1968
samþykkir eindregin mótmæli
gegn fyrirmælum í bréfi fjár-
málaráðuneyfisins dags. 27. des.
s.l. varðandi greiðslur og vinnu-
tíma keniiara.
Fundurinn vill í því sambandi
einkum leggja áherzlu á eftirfar-
andi:
1 .Lenging dagvinnutíma kenn-
ara brýtur í bága við ákvæði
í dómi Kjaradóms, jafnframt því
sem um beina launalækkun er
að ræða.
2. Einhliða ákvörðum ráðherra
um lækkun álagsprósentu utan
dagvinnutíma er óréttlætanleg
kjaraskerðing og auk þess alvar-
legt brot á samningsrétti opin-
berra starfsmanna.
3. Að fjármálaráðherra aftur-
kalli nú þegar bréf sitt frá 29.
des. s.l. og endurskoði þau á-
kvæði þess, er varða kennara í
samráði við fulltrúa kennarasam-
takanna.
Fundurinn lýsir undrun sinni
yfir kröfum ríkisvaldsins fyrir síð-
asta Kjaradómi um margháttaða
kjaraskerðingu kennara og tclur
slíka afstöðu bera vott um inikla
skammsýni, þar sem almennt er
viðurkennt, að eitt brýnasta verk-
efnið í skóla- og uppeldismálum
þjóðarinnar sé að bæta kjör og
starfsaðstöðu kennara. Enn furðu-
legra er þó hitt, að fjármálaráðu-
neytið skuli enn—þrátt fyrir synj-
un Kjaradóms á kröfum þessum—
hafa uppi tilburði til að knýja
fram kjaraskerðingu ólöglega.
Fundurinn felur stjói-num SBR
og FGR að hefja nú þegar í sam
ráði við stjórnir LSFK og SÍB
undirbúning viðeigandi gagnráð-
stafana verði ekki fallið frá á-
formunum um kjaraskerðinguna.
Jafnframt felur fundurinn stjórn
unum að korna þegar í stað á fót
samningsréttarsjóðum með frjáls-
um framlögum félagsmanna.
(Fréttatilkynning).
g 3. febrúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Vara enn vil
H-umferðinni
Stjórn íslenzkra vegfarenda hef
ur nýlega sent allsherjarnefnd
neðri deildar Alþingis bréf, þar
sem m. a. scgir:
„Hinn 26. þ. m. var formaður
félags vors kvaddur á fund alls-
herjarnefndar neðri deildar Al-
þlngis, þar sem m.a. voru staddir
lögreglustjórinn í Reykjavík og
vegamálastjórinn ásamt fleirum.
Á fundi þessum upplýsti lögreglu
stjóri að ekki væri onnþá gert ráð
fyrir neinni aukagæzlu á' vegum
utan Reykjavíkur í sambandi við
umferðarbreytinguna. Einnig upp
lýsti vegamálastjóri að engar ak-
reinaskiptingar yrðu gerðar á
blindbeygjum eða blindhæðum
né breikkuð ræsi fyrir H-dag.
Við teljum framanskráðar yfir-
lýsingar staðfesta svo ekki verði
um villzt, að undirbúningi fyrir
hugaðarar umferðarbreytingar er
svo áfátt að fullkomið ábyrgðar-
leysi væri að láta hana koma til
framkvæmda."
Ennfrémur segir: „Því iiefur
verið haldið fram að kostnaði
þeim sem kominn er í undirbún
ing umferðarbreytingarinnar, sé
að öllu leyti á glæ kastað ef við
hana yrði hætt. Svo er þó ekki.
Nokkur hluti kostnaðarins er
vegna umferðarfræðslu, umferðar
Ijósa og kaupa á vagngrindum,
sem að fullu gagni kæmi þó hætt
er það bjargföst vissa vor að þjóð
verði við breytinguna. Auk Þess
Sigurgeir Sigurjónsson
Málaflutningsskrifstofa.
ÓAinsgötu 4 — Sími 11043.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMl 32-10L
in mun ekki telja eftir sér að taka
á sig þann kostnað, sem þegar er
búið að greiða, verði við breyting
una hætt og þjóðinni þar með
forðað frá óþarfa hættum og sárs
auka.
Við leggjum áherzlu á, að al-
þingismenn leggi sig fram um að
kynna sér allar hliðar máls þessa
sem ýtarlegast. Því samfara eru
engar tafir varðandi breytinguna,
þó fram færi, en glögg athugun
málsins undir meðferð þessa frum,
varps gæti hinsvegar orðið til
þess að forða margskonar vand-
ræðum, sem allir ættu að geta
sameinazt um að koma í veg fyr-
ir.“
Frá Félagi íslenzkra vegfarenda.
Herra ritstjóri.
í dag birtist í dagblaðinu Tím-
anum fréttatilkynning frá Féiagi
íslenzkra vegfarenda þar sem þess
er getið að formaður fél. hafi
verið kvaddur ,á fund neðri deild
ar Alþingis". Þar hafi ég upplýst
að enn væri ekki gert ráð fyrir
npitnni aukalöggæzlu á vegum
utan Reykjavikur í sambandi við
breytingu í hægri handar umferð.
Þessa röngu frásögn vil ég biðja
yður um að leiðrétta.
í tilkynningunnj mun vera átt
við fund, sem allsherjarnefnd
neðri deildar Alþingis boðaði til
föstudaginn 26. f.m.
Á þeim fundi gerði ég stutt-
lega grein fyrir undirbúningi að
skipulagningu löggæzlu í Reykja-
vik vegna umferðarbreytingarinn-
ar. Að því loknu gat ég þess sér-
Fundur hjá
frímúrurum
Þessa mynd fengum við senda
í gær frá skrifstofu blaðafull-
trúa varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli og fylgdi með henni
fréttatilkynning, þar sem sagði
að Herra Ásgeir Ásgeirsson
forseti hefði ávarpað frímúr-
araklúbb á Keflavíkurflugvelli
síðast liðinn laugardag, og einn
ig er tekið fram, að Frank B.
Stone aðmíráll hefði fagnað
forsetanum við komu hans á
fundi frímúrara á íslandi og
anum í ræðustól á fundinum,
og mundi þetta vera í fyrsta
skipti, sem skýrt er frá því
opinberlega, sem fram fer á
fundi frímúrai-a á slandi, og
meira að segja birt mynd, er
sýnir húakynnin og hluta af
merkjum og skrauti reglunnar.
staklega að í róði væri að fjórialda
vegalöggæzlu úti á landi, cn sú
löggæzla lýtur stjórn míns em-
bættis. Hins vegar tók ég fram
að mér væri ekki kunnugt aö svo
stöddu, hvernig löggæzla í hinum
ýmsu lögsagnarumdæmum utan
Reykjavíkur verður skipulögð. Fæ
ég ekki skilið, hvernig túlka má
þau ummæli á þann veg að þar sé
ekkj gert ráð fyrir neinni auka-
löggæzlu, enda vitað að víða hefur
þegar verið lögð mikil vinna í
löggæzluundirbúninginn.
Reykjavík 2. febrúar 1968.
Virðingarfyllst,
Sigurjón Sigurðsson,
lögreglustjóri.
(Ath„ að fréttatilkynningin sem
um er að ræða, er sú sem er hér
ofar á síðunni).
Athugasemd frá
lögreglustjóra