Alþýðublaðið - 11.06.1968, Blaðsíða 1
ÞrSjudagur 11. júní 1968 — 49. árg- 105. tbl.
Frumvarp um aukið eftir-
lit með skotvopnum
fram í Bandaríkfaþingi
Unnið að uppsetn’ingu flotkranans í Reykjavíkurhöfn.
Thomas J. Dodd, öldungadeild-
arþingmaður frá Connecticut,
lagði í g-ær fyrir öldungadeild
ina frumvarp, sem miðar að
því að herða eftirlit með sölu
og dreifingu skotvopna innan
Bandaríkjanna. Frá því að
morðið var framið á Robert
Kennedy fyrir 4 dögum hafa
Bandaríkjamenn unnvörpum
afhent lögreglunni skotvopn
sín og margir vopnasalar hafa
lýst því yfir, að þeir hyggist
hætta sölu á skotvopnum og
snúa sér að öðrum verzlunar-
störfum.
I ræðu, sem Dodd, öldunga-
deildarþingmaður, hélt í eær'
í öldungadeildinni fórust hon
um m.a. orð á þá leið, að Banda
ríkjamenn yrðu að gera helj
arátak vildu þeir komast hjá
því, að verða álitnir þjóð morð
ingja og ofbeldismanna í aug
um heimsins
í frumvarpi Dodds felst m. a.
að útilokað yrði ?ð senda riffla
og byssur eftirlitslaust milli
ríkja, en núverandi lög um
skotvopn ná einungis til
skammbyssna í þessu tilviki
og aðeins í nokkrum ríkjum.
Þá er gert ráð fyrir því, að öll
skotvopn verði skráð og verði
ströngustu viðurlögin við van
rækslu í þessum efnum 2ja ára
fangelsi eða fjársektir allt að
100.000 kr. ísl.
Flotkrani lyftir
100 tonna þunga
Reykjavíkurhöfn hefur fest kaup á nýjum flotkrana, sem á
að geta lyft hvork'i meira né minna en 100 tonnum í einu. Þetta
er fyrsti flotkraninn af þessu tagi, sem keyptur er hingaff til
lands. Brýn þörf var á aff kaupa slíkan krana vegna aukinni
flutninga mjög þungra liluta tíl landsins vegna þeirra stórfram-
kvæmda, sem yfir standa í Straumsvík og viff Búrfell.
Fréttamaður átti viðtal við
Hannes Valdimarsson á Hafn-
arskrifstofunni í gær um hinn
nýja flotkrana. Sagði Hannes
kranann vera hið mesta þarfa-
þing. Ástæðan til þess, að hann
hafi verið keyptur sú, að nú
ykjust mjög flutningar á þung
um stykkjum til landsins
vegna framkvæmdanna í
Straumsvík og við Búrfell. Á
næstunni væri von á mörgum
mjög þungum stykkjum vegna
þessara framkvæmda. Auk
þess væri nauðsynlegt, að
Reykjavíkurhöfn ætti slíkan
krana til að geta tekið á móti
þungum hlutum, sem fluttir
væru til landsins með skipum.
Til þessa hafi enginn krani
verið til í höfninni, sem gæti
tekið á móti slíkum þunga-
flutningum.
Kraninn er á stórum
pramma, sem er að stærð 12x30
m. Bóman á prammanum er
24—25 metrar að lengd. Frá
sjávarmáli og upp í krókana
á bómunni eru rúmir 20 metr
ar. Akkeri eru á prammanum,
á hverju horni hans, þannig
getur pramminn haldið sér
föstum, er hann lyftir þunga,
og sömuleiðis getur hann dreg
ið sig til með akkerunum. Hins
vegar færist pramminn ekki
úr stað fyrir eigin vélarafli,
heldur munu hafnsögubátarn-
ir látnir draga hann á milli
staða í höfninni.
Flotkraninn er fluttur til
landsins í hlutum og er nú
Framhald » bls. 14
Fór Dodd þess á leit við
þingið að frumvarpið yrði sam
þykkt sem fyrst og að yfir-
völdin hæfust þegar handa um
að taka skotvopn úr eigu hinna
mörgu þúsunda, ef ekki millj-
óna glæpamanna, eiturlyfja-
sjúklinga, áfengissjúklinga og
sálarlega vanheilsa þjóðfélags
þegna Bandaríkjanna, sem
hafa á undanförnum 30
árum getað aflað sér skot-
vopna vegna ófullnægjandi
laga.
Dodd gat þess að frá aldamót
um mætti rekja 280.000 morð
til skotvopna, 370.000 sjálfs-
morð og 145,000 dauðsföll
vegna voðaskota í Bandaríkj
unum.
Alls mætti þannig rekja
795.000 dauðdaga til skoi vopna'
frá aldamótunum fram á þenn
an dag.
Til samanburðar hafa 550.000
Bandaríkjamenn misst lífið í
styrjöldum frá aldamótum.
Benti Dodd á, að fjöldi Banda
ríkjamanna, sem myrti • hafa
verið með skotvopnum í Banda
ríkjunum sé óhugnanlega
hár miðað við önnur lönd.
BA-kennsla í
náttúrufræði
Ákveðiff hefur veriff aff taka á næsta hausti upp kennslu í
náttúrufræff'i til BA-prófs viff verkfræffideild Háskóla íslands^
Hefur ríkisstjórnin fallizt á tillögur Háskólans um tilhögun þess-
arar kennslu ogr verffur þar byrjaff meff kennslu í líffræffi, landa.
fræffi og- jarfffræffi.
Frá þessu skýrffi dr. Gylíi Þ. Gíslason menntamálaráffherra £
ávarpi viff skólaslit Kennaraskóla íslands í gær, en þá lauk 60,
starfsári skólans og jafnframt útskrifaffi hann stúdenta í fyrsta
skipti. Kvaffst ráffherrann gera sér vonir um aff þessi nýbreytní
mætti hvort tveggja í senn verffa til þess aff bæta menntun
kennara í þessum greinum og íslenzkum raunvísindum til eflingar.
Þá skýrffi menntamálaráðlierra einnig frá þvi, aff ríkisstjórnin
hefði ákveffiff aff bera fram á næsta þ'xngi breytingartillögu viffl
lögin um lánasjóff íslenzltra námsmanna og yrffi þar gert ráff
fyrir aff nemendur í framhaldsdeild og menntadeild Kennaraskólans
ættu kost á lánum meff sama hætti og háskólastúdentar á 1. ári.
Yrff’i borin fram tillaga um aukna fjárveitingu til sjóffsins í sam-
ræmi viff þetta.
Frá skólaslitum Kennaraskólans er nánar sagt í frétt á bls. 6.
Batnandi horfur á
.. I a r • i • •../?•
solu a tiskimjoh
Ákveffiff he'fur veri® aff
hækka verff á fiski og síld
til mjölvinnslu í Noregi,
aff því er segir í Fiskareu.
Þetta þýffir, aff verff til sjó
manna fyrir Norffursjávar-
síld, makril og íslandssild
til mjölvinnslu hækkar um
80 aura á hektólíti'a-
Hækkun þessi stafar af
batnandi horfum í mark-
aðsmálum. Perúmenn eiga
aff vísu enn mikiff af fiski
mjöli — sennilega um
700.000 tonn — en þeir
munu þegar hafa selt mest
af þessu magni. Sömuleiffis
kemur til, aff friffun á ans-
jósu kemur til fram-
kvæmda frá og meff 1. júní,
og þaff kemur til meff aff
draga úr framleiðslunni.
i