Alþýðublaðið - 11.06.1968, Síða 6
Kennaraskóla íslands slitið í 60. sinn:
26 kennaraskólastúdentar
fyrstu hvítu kollar vorsins
Kermaraskóla íslands var slitið í gær við hátíðlega
athöfn í HáskóJabíó, og hefur skólinn þá starfað í
60 vetur. í vor útskrifar skólinn í fyrsta skipti
stúdenta samltvæmt kennaraskólalögunum frá 1963,
og settu 26 ungmenni upp hvíta kolla við athöfnina
í gær. Eru það fyrstu stúdentarnir sem útskrifast
á þessu vori.
Dr. Broddi Jóhannesson setti
skólaslitaathöfnina með ræðu.
Minrtist hann þess fyrst, að nú
eru 60 ár liðin frá stofnun
Kennaraskóla íslands, og vék
hann að fyrstu hugmyndum um
slíkaa skóla, en fyrir um 80 ár-
um kom fram tillaga um stofn-
un tveggja kennaraskóla á land-
inu, sem skyldu vera í Eyjafirði
og við Faxaflóa. Sagðist dr.
Broddi halda að áldrei hefði af
meirj stórhug verið fjllað um
mál kennaramenntunarinnar en
í þessum tillögum.
í ræðu sinni vék skólastjór-
inn einkum að síðasta áratug í
starfsemi skólans. Árið 1958
voru nemendur skólans 116, en
árið 1968 voru þeir orðnir 671.
Kvað skólastjórinn þrennt hafa
einkennt starf skólans þessi síð-
ustu 10 ár: aukin aðsókn að skól-
anum, ný löggjöf um skólann og
ný mannvirki í þágu skólans.
Kvað hann það vera löggjöfinni
að þakka fremur öllu öðru að
nemendafjöldinn væri nú talinn í
hundruðum en ekki tugum.
í ræðunni minntist skólastjór-
inn á ýmsar nýjungar sem tekn-
ar hefði verið upp síðustu ár,
og að helztu framtíðarverkefn-
um skólans. Meðal annars gat
hann þess að komið hefði til
fækkunar á sameiginlegum
kennslustundum, en slíkt væri
nauðsynlegt ef kjörfrelsi ætti að
verða nokkurt. Þá hefði að
nokkru verið vikið frá venju-
legri bekkjaskipun, en stund-
um hefði tveimur eða þremur
bekkjum verið kennt saman í
fyrirlestrarformi, en einnig
hefðu bekkir verið klofnir upp í
smærri hópa til að vinna að á-
kveðnum verkefnum. Vettvangs-
fræðsla hefði verið aukin í nátt-
úrufræðum og meiri áherzla lögð
á fræðilega og sjálfstæða vinnu
nemenda.
Skólastjórinn minntist í ræðu
sinni á húsnæðismál skólans, og
kvað nauðsyn að bæta hið fyrsta
fyrir það slys að skipta smíði
skólahússins í áfanga, en ýmis-
legt af húsnæði skólans nýtíist
ekki í samræmi við upphaflegan
tilgang, þar eð smíði byggingar-
innar væri aðeins hálfnuð. Hins
vegar kvað hann smiði æfinga-
skólans nú komna í höfn og í-
þróttahús skólans hefði verið tek-
ið föstum tökum.
Það kom ennfremur fram í
ræðu dr. Brodda, að s.l. átatug
hefur Kennaraskólinn útskrifað
alls 799 kennara, að þeim með-
töldum er luku prófi á þessu
vori. 395 hafa verið í almennri
'kennaradeild, 304 í stúdenta-
deild, 124 í handavinnukennara-
deild, 3 með sérmenntun í söng-
kennslu og 1 með sérmenntun í
skriftarkennslu.
S.l. haust hófu nám í skól-
anum 671 nemandi og skiptust
þeir í 27 bekkjardeildir. 26 fast-
ir kennarar störfuðu við skól-
ann auk skólastjóra og stunda-
kennarar voru 54, en lausir æf-
ingakennarar 81. Próf þreyttu
alls 668 nemendur, þar af 5
utan skóla. 19 eiga ólokið prófi
vegna veikinda eða af öðrum
gildum ástæðum, en 32 hafa
gengið frá prófi eða fallið, lang-
flestir í 1. bekk.
í 1. bekk luku 182 prófi, —
hæsta einkunn hlaut Nína V.
Magnúsdóttir, 8,59. í 2. bekk
luku 166 prófi, hæsta einkunn
hlaut Guðrún Þ. Guðmannsdótt-
ir, 8,59. í 3. bekk luku 92 prófi,
hæsta einkunn hlaut Anna Guð-
mundsdóttir, 8,73. í 3. bekk
handavinnudeildar lilaut hæsta
einkunn Sigríður Teitsdóttir,
8,38.
Kennarapróf tóku 86 nemend-
ur úr 4. bekk og hlaut Kristín
Aðalsteinsdóttir hæsta einkunn
8,96; Guðný Helgadóttir hlaut
8,68 og Sigrún Einarsdóttir 8,62.
í handavinnudeild hlaut Bjarni
Kristjánsson hæsta einkunn á
kennaraprófi 8,84. 65 nemendur
luku prófi úr stúdentadeild og
hlaut Júlíana Lárusdóttir hæsta
einkunn 8,91; Helga Möller
hlaut 8,60, og Anna Tryggva-
dóttir 8,48.
Stúdentsprófi luku 26 nem-
endur og hlaut Guðfinnur P.
Sigurfinnsson hæsta einkunn
8.96; Oddný Eyjólfsdóttir hlaut
8,51 og Ólafur H. Jóhannsson
og Þórður Helgason hlutu báðir
8.22. Meðaleinkunn stúdenta
var 7,22.
Er skólastjóri hafði afhent
hinum nýju kennurum og stúd-
entum prófskírteini sín og nokkr-
ir nemendur höfðu tekið við
verðlaunum fyrir góðan náms-
árangur, voru flutt ávörp. Rann-
veig Jóhannsdóttir nemandi í 2.
bekk afhenti fráfarandi formanni
skólafélags skólans gjöf frá
nemendum, Hrefna , Þorsteins-
dótíir skólastjóri flutti kveðju
frá 20 ára kennurum og Sig-
valdi Hjá'lmarsson ritstj. kveðju
frá 25 ára kennurum. Þá flutti
dúxinn á stúdentsprófi, Guð-
finnur Sigurfinnsson stutt á-
varp, og síðan tók til máls dr.
Gylfi Þ. Gíslason menntamála-
ráðherra. Er sagt frá ræðu hans
annars staðar í blaðinu. Skúli
Þorsteinsson flutti skólanum af-
mæliskveðju frá Landssambandi
íslenzkra barnakennara, og að
endingu las skóiastjórinn, dr.
Broddi Jóhannesson, upp bréf,
sem honum hafði borizt frá
Ármanni Snævarr háskólarekt-
or, þar sem sagði, að Háskóla
íslands væri það ánægja að veita
viðtöku stúdentum frá Kennara-
skóla íslands. Síðan ávarpaði
skólastjórinn hina nýju kennara
og stúdenta, og að endingu var
sungið ísland ögrum skorið við
undirleik Jóns Ásgeirssonar
söngkennara skólans.
Ármann Snævarr
flytur ræð'u sína í gær.
Rannveig Jóhannsdóttir þakkar Birni Ingólfssyni f.áíarandi formanni skólafélagsins vel unnin störf.
6 -11. júní 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ