Alþýðublaðið - 11.06.1968, Side 9
Kenyatta er mik'ill unnandi þjóölegrar arfleifðar. Hér stígur hann
fjörugan þjóðdans viff unga blómarós. Myndin er tekin 1964.
Fyrir um það bil 10 árum voru
brezku blöðin sammála um að for-
dæma Jomo Kenyatta. En nú er
Kenyatta forseti Iands síns og Iof-
aður um allan heim fyrir stjórn-
kænsku.
verðum að kaupa frelsi okkar
með blóði okkar.“
Orð Kenyattas á þessu tíma
bili má túlka ýmist sem hvatn
ingu til uppreisnar eða sem
beiðni um frið. En allt um það,
þá urðu ræður hans mjög til
þess, að menn flykktust í Mau
Mau, þótt hann fordæmdi þann
félagsskap í ræðum sínum. Hins
vegar missti Mau Mau aldrei
trúna á Kenyatta.
21. október 1952 komu 80 lög
reglumenn til húss Kenyattas, og
handtóku hann fyrir aðild að og
forustu fyrir Mau Mau. Réttar
haldið fór fram í þorpinu Kapen.
guria, skammt frá landamærum
Uganda sem valið var vegna
þess hve afskekkt það var. í
lokaræðu sinni sagði dómarinn,
að hann tryði ekki 10 vitnum
verjandans og tryði aðeins einu
vitni saksóknarans, en það
vitni, Rawson Macharia, hefði
talað svo vel, að hann hikaði ekki
við að telja Kenyatta sekan.
Hann var dæmdur í sjö ára fang
elsi. En þetta éina vitni saksókn
arans, sem tekið var trúanlegt,
sór síðar, að það hefði borið ljúg
vitni geng Kenyatta. Auk þess
lagði það fram bréf frá brezku
stjórninni, þar sem liún bauðst
til að greiða fyrir nám hans við
háskólann í Exeter.
Það er ólíklegt, að Kenyatta
hafi svarið eið Mau Mau, hvað
þá, að hann hafi staðið fyrir
slíkum eiði. Mau Maumenn
kvörtuðu sjálfir yfir því, að engir
menntamenn gengju í hóp
þeirra. Ekki er heldur hægt að
kenna Kenyatta um þær blóðs
úthellingar, er urðu eftir hand
töku hans. Vissulega þekkti hann
marga af forustu mönnum Mau
Mau og þeir litu alltaf á hann
sem leiðtoga sinn. En hreyfing
in varð ekki til fyrir tilstilli eins
manns. Hún varð til meðal al
þýðunnar vegna raunverulegra
umkvörtunarefna.
í fangelsinu hélt Kenyatta líf
inu í samföngum sínum, bæði
sem kokkur og með því að rækta
handa þeim grænmeti. Um leið
og honum var sleppt úr haldi
var hann svipíur ferðafrelsi og
fluttur til Lodwar nálægt Nai-
robi. En viðurkenning Macharia
á meinsæri sínu og fréttirnar af
dauðsföllunum í hinum ill
ræmdu Hola fangabúðum voru
smám saman að breyta skoðun
um Breta á Mau Mau og Keny
atta.
Svartir stjórnmálamenn í
Afríku tóku höndum saman við
frjálslynda menn í Bretlandi um
að heimta, að garnli maðurinn
yrði látinn laus. í kosningunum
í febrúar 1961 vann flokkur Ken
yattas, KANU, tvo þriðju hluta
allra atkvæða, og jafnvel flokk
ur andstæðinganna, KADU, lof
aði að vinna að því, að Kenyatta
yrði látinn laus eftir næstum níu
ára' fangelsisvist.
Það var aðeins eitt skref úr
fangelsinu upp í valdastólinn. í
febrúar 1962 varð Kenyatta þing
maður og í apríl varð hann ráð
herra, og þegar landið varð lýð
veldi, árið 1964, varð hann fyrsti
forseti þess.
Honum hefur tekizt að græða
fiölda sára í hinu unga ríki
sínu þar á meðal hina alvarlegu
óvináttu er upp kom innan
Kikuyuættflokksins, vegna af
stöðunnar til Mau Mau annars
vegar og stjórnvaldanna liins
vegar. Menn eru búnir að
gleyma að fyrirgefa 10 þús dauðs
föll. Og hann hefur líka sjálf
ur fyrirgefið meinsærismannin
um Macharia, sem nú er ná
granni hans í Gatundu.
VELJUM ÍSLENZKT
HÚSGÖGN
«
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
Bólstruð húsgögn, klæði! gömul húsgögm
Góð áklæði m.a. pluss, kögur, leggingar
og snúrur.
BÓLSTRUN ÁSGRÍMS,
Bergstaðastræti 2, sími 16807.
Tilkynning frá Áfengis- og
tóbaksverzlun ríkisins
Með auglýsingu þessari er vakin athygli á áður útsendum
tilkynningum um lokun iðnaðardeildar vorrar vegna sum-
arleyfa frá 8. júlí — 6. ágúst n.k.
ÁFENGIS- OG TÓBAKSVERZUN RÍKISINS.
STARF
RAFMAGNSEFTIRLITSMANNS
hjá Rafveilu Siglufjarðar, er laust til umsóknar. Umsóknir,
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist
skrifstofu rafveitunnar fyrir 1. ágúst næstkomandi.
Laun samkvæmt 16. launaflokki.
RAFVEITUSTJÓRI.
GÓLFTEPPI
ALL-WOQL FITTED CARPETS THROUGHOUT YOUR HOMS
Höfum fyrirliggjandi og útvegum með stutt-
um fyrirvara allar tegundir ai gólfteppum
og dreglum breiddir 70 em, 90 cm, 183 cm,
230 cm, 275 cm, 320 cm, 365 cm, 411 cm, 457
cm og 548 cm.
Verð frá kr. 250,— til 1.300,— pr. fermetra.
Höfum einnig teppafilt og allt til
teppalagmnga. ■ ■
A. J. Bertelsen & Co., Ltd.
Hafnarstræti 11 — Sími 13834.
11. júnl 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9