Alþýðublaðið - 11.06.1968, Qupperneq 14
ALHEIMSRAÐSTEFNA
Framhald á bls. 10.
(hafa fyrst og fremst þörf fyr-
ir tæknifræSinga í landbúnaði
og búfræðinga. Það er enski
hagfræðingurinn Thomas Ba-
logh sem 'heldur þessu fram
í síðasta hefti af tímariti Mat-
væla- og landbúnaðarstofnun-
arinnar (FAO), Ceres (Vol. 1.
No. 2), sem nefnt er eftir
gyðju komskurðarins i róm.
verskri goðafræði. „Dragið
kennsluna niður á jörðina,"
segir í fyrirsögn greinarinnar.
í heftinu eru ásamt mörgu
öðru viðtal við hinn nýja for-
Stjóra FAO, Addeke H. Bo-
erma, og könnun á þeirri starf
semi í Pakistan sem miðar að
takmörkun barneigna. Þáttur
Svía í þeirri viðleitni er
nefndur.
Landbúnaðarvandamál eru
einnig meginefnið í nýjustu út-
gáfu af timariti Menningar-
og vísindastofnunar Samein-
uðu þjóðanna (UNESCO), Xm-
pact of Seience on Society
(Vol. XVIII. No. 1). Með til-
liti til þess að um helmingur
mannkyns þjáisf af hungri og
vannæringu, og að vænta má
hungursneyðar á vissum svæð-
um, leggur einn höfundanna
til, að menn hefji að nýju
ræktun lítt frjórra landsvæða,
sem hætt var að rækta fyrir
ekki ýkjamörgum árum vegna
þess að þau voru ekki vel fall-
in til rækilegrar jarðyrkju. Að-
eins um 8 prósent af saman-
Iögðu yfírborði jarðarinnar
geta talizt vel fallin til ræki-
legrar jarðyrkju. Höfundurinn
hugsar sér, að horfið verði aft-
ur til hins gamla lags þar sem
blandað var saman skógrækt,
jarðyrkju og beltarlöndum, en
nú vill hann taka upp „þrí-
víða” skógrækt, þ.e.a.s. gróður-
setningu trjátegunda sem gefa
af sér timbur, skepnufóður og
fæðu til manneldis. Hnotviður
er talinn hafa mesta möguleika
í tempruðu beltunum.
Tímarit Sameinuðu þjóðanna,
UN Monthly Chronicle, fjallar
í síðasta hefti (Vol. 5, No. 3)
um - þá' yfirlýsingu-um afnám
mismunar gagnvart konum, sem
síðasta Allsherjarþing sam-
þykkti. Formaður nefndar Sam-
einuðu þjóðanna um stöðu
kvenna, Annie R. Jiagge, leggur
áherzlu á, að yfirlýsingin verði
ekki annað en pappírsskjal, ef
ekki verði unnið að því að vekja
athygli á henni og fá menn til
að skilja hana og ræða um heim
allan. Verði yfirlýsingunni beitt
af skynsemi, geti hún stuðlað
að því að leysa úr læðingi feiki-
legt magn af bundnum orku-
lindum og þannig fært mörgum
löndum krafta sem þau hafa
þörf fyrir í þróun sinni.
FRÉTTIR FRÁ SAMEINUÐU
ÞJÓÐUNUM í STUTTU
MÁLI.
Vegvísar án orða.
Sams konar vegvísar og
tæknilegar öryggisreglur fyrir
farartæki um heim allan er
markmiðið með alþjóðlegri ráð
stefnu um umferð á þjóðvegum,
sem Sameinuðu þjóðirnar efna
til í Vín dagana 7. október til
8. nóvember í ár. Þátttaka hef-
ur verið boðin 132 löndum. Til
grundvallar umræðunum
liggja tvær tillögur um nýja
sáttmála, önnur um umferð á
þjóðvegum, hin um vegvísa,
umferðarmerki og vegamerk-
ingar. Samkvæmt tillögunum
eiga tákn að koma í stað orða
á öllum vegvísum, þannig að
rutt verði úr vegi þeim tungu-
málahömlum, sem nú torvelda
mjög allan akstur utan heima-
landsins.
Styrkir til náms í þjóðarréttí.
Sameinuðu þjóðirnar veita í
ár 20 styrki til náms í þjóða-
rétti. Nokkrir þeirra eru einn-
ig ætlaðir umsækjendum frá
iðnaðarlöndunum: embættis-
mönnum, háskólakennurum og
öði’um á aldrinum 25 — 40 ára
með reynslu í þjóðarétti. Náms-
styrkirnir eiga að gera mönn-
um kleift að sækja námskeið
sem Sameinuðu þjóðirnar halda
m. a. í Genf og Haag.
Apartheid-nefnd Sameinúðu
þjóðanna til Stokkhólms.
Hin sérstaka nefnd Samein-
uðu þjóðanna um kynþáttamál
í Suður-Afríku mun í sumar
heimsækja Bretland, Sviss og
Svíþjóð í tilefni Mannréttinda-
ársins í því skyni að lierða hina
alþjóðlegu baráttu gegn apart-
heid. í Stokkhólmi verður
nefndin 15. til 19. júní og ræðir
við stjórnvöld, stofnanir og
einkaaðilja, sem taka þátt í bar
áttunni gegn apartheid. Ástæð-
an til heimsóknarinnar er m. a.
sögð vera framlag og viðleitni
Norðurlanda á þessum vett-
vangi, m. a. fjárframlög þeirra
til hjálparstarfsemi Sameinuðu
þjóðanna meðal fórnarlamba
aprtheid-stefnunnar.
Aukin vitneskja um Iífsrásina.
Á nýafstaðinni vísindaráð-
stefnu í Monaco komust menn
Htið eitt nær vitneskjunni um,
hvernig frumur mannslíkamans
vinna gegn sjúkdómum eða
meiðslum með því að mynda
nýjar frumur, og livaða áhrif
geislun hefur á þær. Yfir 100
vísindamönnum írá 20 löndum
og frá alþjóðlegum stofnunum
sóttu ráðstefnuna, sem var hald-
in af Alþjóðakjarnorkumála-
stofnuninni (IAEA) í Vin. í um-
ræðunum varð mönnum ljóst,
í hvaða átt ætti að beina rann-
sóknum í framtíðinni, hvernig
nýjar frumur myndast og sér-
hæfa hlutverk sín.
Sænskt frækorn tíl
vanþróuðu landanna.
Frá því hefur verið skýrt, að
Svíar muni árlega dreifa 54
þús. tonnum af frækorni til van
þróuðu landanna fyrir milli-
göngu Alheimsmatvælaáætlun-
arinnar' TWFP).’ Kom þetta
fram á stjórnarfundi Wfp í Róm
nýlega. Framlag Svía er í sam-
ræmi við nýjan sáttmála um
matvælahjálp. Kostnaðurinn
nemur 10,3 milljónum dollara
á þriggja ára skeiði. Svíar
munu einnig leggja fram 700
þús. dollara upp í kostnaðinn
við að dreifa frækorninu fyrsta
árið. WFP er rekin af Sam-
einuðu þjóðunum og matvæla-
og landbúnaðarstofnuninni (F-
AO) og notar matvæli sem
gjaldmiðil í þróunarstarfinu.
Flotkrani
Framhald af bls. 1
unnið að því að setja hann
saman. Verður því verki lok-
ið í lok vikunnar og verður
kraninn tekinn í notkun strax
í næstu viku.
í gær var búið að setja upp
bómuna og verið að ganga frá
vírum og festingum.
Verð flotkranans er um 10
milljónir króna.
Atvinnunefnd
Framhald af 3. síðu
ar.
Engum getur dulizt hversu
mikilvægt það er í þjóðféiagi
okkar íslendinga, að skóla-
fólk, sem hyggur á langskóla-
nám, geti unnið sér inn nokkra
fjárupphæð í sumarleyfinu.
Þess vegna vilium við skora
á atvinnurekendur og alla þá,
sem kunna að geta veitt lið-
veizlu í þessum efnum að hafa
nemendur Menntaskólans í
Reykjavík í huga, ef þeir þurfa
á góðu vinnufali að halda.
Aðsetursstaður nefndarinnar
er í nýbyggingu Menntaskól-
ans og eru símar hennar 21070
Og 1G292.
(Frá atvinnumálanefndinni).
Eftirprentanir
Framhald af 3. siðú.
sem Hollendingar líta gjarnan á
sem fyrri gullöld sína á mynd-
listarsviðinu. Eftirprentanirnar
eru mjög líkar og sagði sendi-
ráðsfulltrúi hollenzka sendiráðs-
ins, Tjoarsdstrat, að hann hefði
vart getað greint eftirprentanir
frá fi’ummyndunum, en þær eru
prentaðar á sérstakan hátt í
prentmyndagerð hollenzka ríkis-
ins.
Á sýningunni má sjá verk eft-
ir hollenzka meistarann Rem-
brandt, Essaias van der Velde,
Jacob de Wit o. fl.
Sýning þessi er farandsýning
og kemur hingað til lands frá
Englandi. Á fundi með blaða-
mönnum í gær. kom fram, að J.
Tjoardstrat, I. sendiráðsritari og
sendiherra Hollendinga fyrir ís-
land, van Rojan, sem jafnframt
er sendiherra Hollendinga í Eng-
landi, höfðu báðir komið þrisvar
hingað til lands á síðustu árum.
Á blaðamannafundi 1 gær gat
Birgir Thorlacius, ráðuneytis-
stjóri, þess, að mikill hugur væri
hjá ráðuneytinu að fá sýninguna
hingað til lands næstk. haust og
væri þá ætlunin að sýna verkin
í menntaskólum landsins. Einnig
hefur hollenzka rikisstjórnin lát
ið gera nákvæmar eftirprentan-
ir á verkum hollenzka meistar-
ans von Gogh, og gæti vel farið
svo, að þær yrðu sýndar hér á
landi. Þá má geta þess, að 14.
júní er von á kurteisisheimsókn
hollenzka herskipsins Admiral
de Riuyter, en áhöfn skipsins
er 700 manns.
Apótekarar
á fundi
Aðalfundur Apótekararfélags
íslands var haldinn þ. 4. maí
s.l. Á fundinum var samþykkt
ályktun þess efnis að harma
bæri, að fram hefðu komið
hugmyndir um að leggja niður
kennslu í lyfjafræði lyfsala
við Háskóla íslands. Þvert á
móti bæri að stefna að því að
efla og auka kennslu í þess-
ari grein við Háskóla íslands
með það fyrir augum, að unnt
verði að fullnægja þörfum
þjóðfélagsins í þessari starfs-
grein í framtíðinni.
Stjórn félagsins skipa nú:
Sverrir Magnússon lyfsali, for-
maður. Christian Zimsen lyf-
sali, gjaldkeri ívar Daníelsson
lyfsali, ritari.
ffver er
sá heppni?
Á sunnudaginn var, hinn 9.
júní efndi Bústaðasókn til
skyndihappdrættis í sambandi
við kirkjudag sinn. Vinningur
var Mallorca- og Lundúarferð
með Ferðaskrifstofunni Sunnu.
Dregið hefur verið í happ-
drætti þessu og kom upp núm-
erið 2970. Handhafi happdrætt
ismerkisins er vinsamlega beð
inn um að snúa sér til Helga
Eysteinssonar, gjaldkera safn-
aðarins, í Verzluninni Geysi
Skólav&t í Höfn
Listaháskólinn í Kaupmanna-
höfn hefur fallizt á að taka
við einum íslendingi árlega
til náms í húsagerðarlist, enda
fullnægi hann kröfum um
undirbúningsnám og standist
með fullnægjandi árangri inn-
tökupróf í skólann, en þau
hefjast venjulega í byrjun
ágústmánaðar.
Umsóknir um námsvist í
skólanum sendist menntamála
ráðuneytinu, Stjórnarráðshús-
inu við Lækjartorg, fyrir 20.
júní n.k. Sérstök umsóknar-
eyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
4. júní 1968.
Ankið efnahags-
samstarf
Norðuiianda
Á ráðherrafundi Norður-
landa í' Kaupmannahöfn 22.-23.
apríl s.l. var ákveðið að skipa
embættismannanefnd lil að at
huga og gera tillögur um auk
ið efnahagssamstarf Norður-
landa. Á nefndin að skila ríkis-
stjórnunum skýrslu eigi síðar
en 1. janúar 1969.
Æskilegt er að fylgjast með
þróun þessara mála og hefur
ríkisstjörnin því skipað Þór-
hall Ásgeirsson, ráðuneytis-
stjóra, sem fulltrúa íslands í
norrænu nefndinni.
Frétt frá viðskiptamálaráðu-
neytinu.
4. júní 1968.
X4 ll. júní 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
o o j^) SMÁAUGI vcmrAD
.YMNuAK lilllllllliiilllliiHiii;
Til sölu afbragðsgott sett „high fidelity“ stereo hljómflutningatækja. Plötuspilari magnari, tveir liá talarar, Tm-útvarp og Grundig Tk. 245 p segulbandstæki. Tíðni svið 20.30.000 við per sek. Kjörið tækifæri fyrir hina vand látu. Sel alit I cinu eða að hluta. Uppiýsingar í kvöld og næstu kvöld frá kl 7 í síma 35042. Verzlunin Silkiborg auglýsir Nýkomið smáköflótt og einiitt tcrelyn, dömupeysusett og blússur fallegt og ódýrt, galla buxur, peysur, nærföt og sokk- ar á alla fjölskylduna, smá. vara og ullargarn í úrvali. VERZLUNIN SILKIBORG, Dalbraut 1 v/Kleppsveg, sími 34151 og Nesvcgi 39, sími 15340.
SMÁAUGLÝSING ? ■ síminn er 14906
Steingirðingar, svalarhandrið, og blómaker. MOSAIK H.F. Þverholti 15. Sími 19860.
ÍBÚÐ TIL SÖLU Til sölu er íbúð í I. byggingarflokki Byggingafélags verka- manna í Kópavogi. Félagsmenn, sem hafa áhuga á að kaupa, gefi sig fram við stjórn félagsins fyrir 25. júní næst komandi. BYGGINGAFÉLAG VERKAMANNA, Kópavogi.