Alþýðublaðið - 15.06.1968, Side 10

Alþýðublaðið - 15.06.1968, Side 10
ORÐSENDING til útgerðarmanna síEdveiðiskipa Þeir útgerðarmenn, sem ætla að salta síld um borð í veiðiskipum eða sérstökum móðurskipum á komandi síldarvertíð, þurfa samkvæmt lögum að sækja um söllunarleyfi til Síldarútvegs- nefndar. Umsækjendur þurfa að upplýsa eftirfarandi: 1. Nafn skips og skráningarstað. 2. Nafn og heimilisfang síldareftirlitsmanns, sem stjórna á söltuninni um borð. 3. Hvort ráðgert er að láta skipið sigla sjálft til lands með síld þá, sem söltuð kann að verða um borð eða hvort óskað er eftir að sérstök flutningaskip taki við síldinni á miðunum. Umsóknir sendist skrifstofu Síldarútvegsnefnd- . ar í Reykjavík sem allra fyrst og eigi síðar en 20. þ.m. Sjávarútvegsmálaráðuneytið hefur með bréfi dags. 10. f.m. falið Síldarútvegsnfend að framkvæma flutninga á sjósaltaðri síld svo og framkvæmd annarra þeirra málefna er greinir í bráðabirgðalögum frá 10. f.m. ogáliti 5 manna nefndar þeirrar, 'er skipuð var 20. febrúar s.l. til að gera tillögur um hagnýtingu síldar á fjarlægum miðum. Er lagt fyrir Síldarútvegs- nefnd 'að fylgja að öllu leyti ákvæðum laganna og tillögum 5 manna nefndarinnar við fram- kvæmd málsins. Með tilliti til þessa, vill Síldar- útvegsnefnd vekja athygli útgerðarmanna og annarra hlutaðeigandi aðila á því, að ógérlegt er að hefja undirbúning varðandi flutninga þá, sem gert er ráð fyrir í bráðabirgðalögunum og tillögum 5 manna nefndarinnar, fyrr en fyrir liggja upplýsingar frá útgerðarmönnum síld- veiðiskipa um væntanlega þátttöku í söltun um borð í skipum, ásamt upplýsingum um áætlaða flutningaþörf vegna þeirra veiðiskipa, sem ráðgert er að afhendi saltaða síld á fjarlægum miðum um borð í flutningaskip. Þá vill Síldarútvegsnefnd vekja athygli út- gerðarmanna og annarra hlutaðeigandi aðila á því, að skv. bráðabirgðalögunum er gert ráð fyrir, að útgerðarmönnum, sem kunna að flytja sjósaltaða síld frá fjarlægum veiðisvæðum til íslenzkrar hafnar í veiðiskipum eða sérstökum móðurskipum, verði greiddur flutningastyrkur, er nemi sömu upphæð fyrir hverja tunnu og Síldarútvegsnefnd áætlar að kostnaður verði við flutning sjósaltaðrar síldar á vegum nefnd- arinnar, enda verði síldin viðurkennd sem markaðshæf vara við skoðun og yfirtöku í landi. r SÍLDAEÚTVEGSNEFND. Nóbelsverðlaun rramhald af r shin. við slíka verðlaunaúthlutun. Hann telur það skipta megin- máli, að verðlaunin komi í hlut þeirra hagfræðinga, sem séu starfandi í greininni, en ekki manna, sem vörpuðu ljóma á fræðigrein sína fyrir tveimur eða þremur áratugum. Sviar eiga tvo hagfræðinga, Gunnar Myrdal og Bertil Ohlin, sem báðir hafa komið fram með nýjar hagfræðikenningar. Báðir eru þeir 69 ára, en þeir stóðu á hátindi frægðar sinnar á fjórða áratug aldarinnar. Tveir Bandaríkjamenn hafa verið nefndir sem hugsanlegir verðlaunakandídatar. Þeir eru Paul A. Samuelson og John Kenneth Galbraith. Hinn fyrr- nefndi, sem er 53 ára, var m. a. ráðunáutur Johns F. Kennedys, Bandaríkjaforseta. Ein af bókum hans nefnist Hagvísindi og er notuð sem kennslubók við fjölda háskóla bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. John Kenneth Gal- braith er sextugur. Hann hefur fengizt við ýmislegt utan sinnar vísindagreinar, t. d. var hann sendiherra Bandaríkjanna í Ind.- landi 1961—63. \ Hann hefur skrifað ” fjölda bóka og vísindagreina. Olivecrona hefur þó einna heizt augastað á John von Neu- mann, sem einnig er Bandaríkja- maður. Kenningar hans, sem segja má að séu byggðar á póker, hafa haft mikla þýðingu, segir Olivecrona. Einnig kemur norski hagfræð- ingurinn Ragnar Frisch vel til greina í sambandi við þessi verð- laun. Iíann er 73 ára og hefur lagt stund á hagfræðirannsóknir um áratuga skeið. Hann hefur mikði ritað um hagfræði, en auk þess hefur hann lagt stund á stærðfræði og tölfræði. Nokkrir sænskir hagfræðingar hafa látið þá skoðun sína í Ijós, að eftir nokkur ár verði ,,Nób- elsverðiaun” í hagfræði til lítils virðingarauka, m. a. vegna þess, að í hagvísindum eigi sér ekki stað jafn örar og stöðugar upp- götvanir og t. d. í læknavísind- um. Sþröttir Framhald á** 11. síðu. mintondeild Vals sá um mót- ið. Þetta mót sýndi glöggt mik inn og vaxandi áhuga unga fólksins á badminton, og komu þarna fram margir efnilegir unglingar. Úrslit urðu þessi: í sveinaflokki, einliðaleik, sigraði Helgi Benediktsson, Val, Þórhall Björnsson, Val, með 11:4 og 11:3, og í tvíliða- leik sigruðu þeir Helgi og Þór hallur þá Örn Geirsson, TBR, og Frímann Jónsson, TBR, með 15:0 og 15:1. í drengjaflokki, einliðaleik, sigraði Jón Gíslason, Val, Sig- urð Haraldsson, TBR, með 11:6 og 11:3, og í tvíliðaleik sigr- uðu þeir Þór Geirsson, TBR, og Sigurður Haraldsson, TBR, þá Jón Gíslason, Val, og Ragn- ar Ragnarsson, Val, með 15:2 og 15:12. i unglingaflokki, einliðaleik, aigraði Haraldur Kornelíusson, TBR, Finnbjöm Finnbjörns- son, TBR, með 16:18, 15:4 og 15:2, og í tvíliðaleik sigruðu þeir Haraldur og Finnbjörn þá Jafet Ólafsson, Val, ög Snorra Ásgeirsson, TBR, með 15:4 og 15:2. Síldarsala Framhald af 3. síðu. að verða um borð í skipum á fjarlægum miðum og þarf ekki að ræða þeirri síld í tunnurnar á venjulegan hátt, heldur næg- ir að jafna henni um leið og saltað er. Samningaumleitanir standa enn yfir varðandi sölu saltsíld- ar til annarra markaðslanda, m. a. til Sovétríkjarina. (Frétt frá Síldarútvegs- nefnd). Kjarvöl er [ vinsæll | Kjarvalssýningin í Lista- i mannaskálanum hefur verið = mjög vel sótt, á 7. þúsund ] manns hafa skoðað sýning- i una. Sýningin er opin frá kl. ] 10—22 daglega og aðgangur 1 ókeypis. Sýningarskrá, sem i um leið gildir sem happ- i drættismiði, er seld á 100 i krónur. •iiiiii n. nmiiiiii iii ■iniiiitii ii iii iiiiiiiiiiiiuri Kekkonen fer v/ðo MOSKVA, 14. júni. — Urho Kekkonen, forseti Finnlands, sem nú er í heimsókn í Sovétríkj- unum, verður fyrsti erlendi stjórnmálamaðurinn, sem fær að heimsækja eyna Shakalin austast í Sovétríkjunum. Er ferð- in til' Shakalin hluti af mikilli skemmtiferð, sem Kekkonan fer í á meðan hann dvelur í Sovét- ríkjunum. Síðan Kekkonen kom til Mosk- va hefur hann átt langt samtal við Bresjnev, flokksformann, og Kosygin, forsætisráðherra, en ekkj liggur fyrir nein fréttatil- kynning um þann fund. Á morgun heldur Kekkonen flugleiðis til Irkutsk í Síberíu og þaðan með fljótabáti til Baikal- vatns, þar sem hann verður við veiðar, þar til hann á fimmtudag í næstu viku fer til Kyrrahafs- strandarinnar og Shakalin. Hann kemur aftur til Moskvu 23. júní og fer heim daginn eftir. SMURSTÖÐIN / SÆTÚNI 4 _ SÍMI 16 2 27 BÍLLINN ER SMURÐUR FLJÖTT OG VEL. SELJUM ALLAR TEGUNDIR AF SMUROLÍU. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiinmnitiiuiiimmiiiiiiiiii'ifc 1BIAFRA I i FYRIR tilstilli alþjóða | l Rauða krossins mun Rauði ] ] kross íslands gangast fyrir ] ] söfnun eftir helgi til aðstoð : ] ar bágstöddum íbúum í Bi- ] ] afra í Afríku. Söfnunarfénu ] ] verður varið til kaupa á ís- ] ] lenzkum afurðum, sem full- ] ] trúar alþjóða Rauða kross- ] ] ins munu dreifa meðal Biafra E | manna. • llllllllllllllllllllllllllllllll■■■ll■m■ll■l■■lll■l■lllllllllmllllI Frakkland | Fraxnhald af 1- síðu banni því, sem ríkisstjórnin lagði við fundahöldum og mót- mælaaðgerðum fram að kosning- urium, sem verða 30 júní. Þá framkvæmdi lögreglan húsrannsókn í gær í stöðv- um ýmissa öfgasamtaka og gerði upptæk alls konar skjöl og skýrslur. Þar á meðal voru • stöðvar samtaka þeirra, sem, og kennd eru við 22. marz. - Stöðugt er haldið áfram samn- ingaviðræðum við fulltrúa bíla- iðnaðarins, en félög hans eru nú þau einu, sem enn eru í verk- falli. Pompidou, forsætisráðherra sagði á fundi með fréttamönnum í gær, að hann væri sannfærðurt um, að sú góða þróun, sem ein- kennt hefði gærdaginn, mundi halda áfram og skynsemin sigra að lokum. Hann harmaðí hins vegar það áfall, sem franski bíla iðnaðurinn hefði orðið fyrir, en hann ætti nú í strangri sam- keppni við framleiðendur Fiat- og Volkswagenbíla. Sagði hann, að tjón það, sem af kreppu þess- ari hefði leitt væri mikið, og nú væri nauðsynlegt, að allir leggðust á eitt til að bæta það tjón. Viðgerðir á steinrennum 2 smiðir geta tekið að sér viðgerð ir á steyptum þakrennum, við geröir á sprungum í veggjum og setja vatnsþéttilög á stein- þök. Berum ennfremur ofan í steyptar rennur. Erum með heimsþekkt efni. Margra ára reynsla tryggir góða vinnu. Pantið tímanlega. Upplýs ingar í símum 14807 og 84293. Geymið auglýsinguna. Eins og tveggja manna SVEFNSÓFAR MOÐEL — Húsgögn 10 15- júní 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.