Alþýðublaðið - 15.06.1968, Síða 11

Alþýðublaðið - 15.06.1968, Síða 11
GUY PHILUPS 4. kafli. Hún lá lengi andvaka «m nótt- ina. Ógleðin hafði horfið eftir samtal hennar við Graham. Hún fann að vonameistinn hafði valui- að í brjósti hennar og þráði að hefja leitina. Að finna einn, sem var þess virðj að allir hinir fengju að lifa. Einn af eiiefu. En þvað gerði það að verkum, að hann var þess virði, að honum væri bjargað? Ég ætla að byrja á að kynnast þeim öllum, hugsaði Joyce. Svo ætla ég að velja þá beztu úr og reyna að kynnast þeim enn bet- ur, ÞaP var enn verra í sjóinn dag- inn eftir, en Joyce var farin a« sjóast. Hún snæddi morgunverð i klefanum sínum og fór síðan UPP i setustofuna. Lionel Frith, og rauðhærða dóttir hans sátu þar. Þau ræddu við miðaldra hjón, sem Joyce vissi að hétu Shavvdon. Við borð við barinn sat Símon Griffiths og spilaði við þrjá ókunnuga menn. Hann leit upp og brosti til Joyce. Hún roðnaði, þegar hún gekk. til hans. Háj, laglegi mað- urinn, sem sat andspænis Sim- oni, reis á fætur, brosti og sagði: -t— Ég held, að við þekkjumst ekki. Ég er Ward Miller. „Læknirinn", hugsaði Joyce. svo var hún lcynnt fyrir Andrew White og konu hans Celíu. Þau voru líka miðaldra, en maðurinn var unglegri en konan. Hún var alltof grönn og fölt andlit henn- ar var þakið þykku lagi fegrun- arlyfja. — Það er ekkert, sem vekur mann eins vel og að spila bridge, sagði White hressilega. — Þá gleyma menn sjóganginuni. — Þú átt að gefa, Andrew, sagði frú White þurrlega. Joyce leit aftur á Símon Grif- fiths. Fingur hans síokkuðu spil- ip eins og væri hann að telja seðla í banka. Hún gekk áfram yfir þilfarið. Það voru aðeins tveir gestir úti. maður, sem barðist gegn vindin- um og eldri, gráhærð kona, scm horfði á hann frá þilfarsstóln- um sem hún sat í. — Sælar, sagði eldri konan, — eruð þár einkaritari hr. Dex- ters? — Og þér frú Purdy? gat Joyce sér til. Hún þekkti mann inn, sem barðist svo ákaft við vindinn. Það var Matthew Clegg. Gamla konan kinkði kolli og •brosti. Hún var falleg og gagnsæ eins og postulinsbrúða. — Ég var -líka einkaritari áður fyrr. En ég var aldrei svo heppin' að vinna fyrir mann eins og hr. Dexter. Er hann ekki dásam- legur? ~ Hvort hann er! svaraði Joyce. — Ég hef gott af að fara i þessa siglingu. Ég hressist við það. tW/ 1 EFN! SMAVORUR TÍZKUHNAPPAR Meðan Joyce stóð og talaöi við hann, velti hún því fyrir sér, hvernig á því gæti staðið, að einhver vildi gera svo elskulegri gamalli konu mein. Graham kom andartaki sfðan qg hélt utan um Iitla, sæta ljós- hærða stúlku í þröngum síðbux- um og þykkri peysu. Hann heils- aði Joyce og kynnti stúlkuna-. Þetta var Norma Regan. leik- konan. — Ég er svo skotin í skipinu, kurraði hún. Henni heppnaðist að segja þessi orð þannig, að manni fannst, að hún væri skotin í fleiri en skipinu. Graham tók höndina til sín og tautaði: — Við sjáumst seinna, Norma. Ég þarf að tala við einkaritara minn. Það var auðséð, að Ijóshærðu stúlkuna langaði ekkert til að snúa aftur i klefann sinn. — Hvers konar leikkona er hún? spurði Joyce og það fór ekki hjá því að á hennj mætti finna, hve særð hún var. Graham skellti upp úr. — Ekki sérlega góð, því miður. Hún fær stundum hlutverk í lélegum kvikmyndum og sjón- varpi. Joyce vætti varir sínar. — Hversvegna viltu myrða hana? Hann andvarpaði og liallaði sér að borðstokknum. — Hún hefur einstakt lag á að spilla heimílisfriðnum. Það er ekki að- eins vegna skorts á siðferði held- ur og algjörs skorts á gáfum og meðaumkun. Henni er blátt áfram nákvæmlega sama, hvað hún gerir af sér. — Er það afbrot? — Það mætti kalla það slíku nafni. Kona — ég þekkti eigin- mann hennar — framdi sjálfs- morð hennar vegna. Annar mað- ur situr i fangelsi vegna þess að hann gerði tilraun til að myrða hana. Hún hefur einstakt lag á að vekja á sér athygll og valda blóðsúthellingum. Joyce leit eftir þilfarinu. — En gamla frú Purdy? Graham brosti. Já, þessi elska. Hún á fullt af íbúðum, sem eru ekki hæfar til íbúðar samkvæmt áliti heilbrigðismálaeftirlitsins. Leigjendurnir verða eigi að slð- ur að borga mjög háa leigu. Þú ættir bara að sjá leigjenduma. — Þaö eru margir sem gera slíkt. Þá ættirðu að sjá, hvernig fullt af fólki er borið út vegna þess. að einhver annar getur greitt hærri leigu en það. Þetta er að vísu aðeins smásynd gagn- vart þjóðfélaginu. En allar eign- irnar renna til velgerðarfélags við dauða hennar. Það sá hr. Purdy um. Hann var góður mað- ur og ég efast um, að hann liggi kyrr f gröf sinni eins og hún misnotar eignirnar. Og hún verð- ur áreiðanlega langlíf. Joyce leit á fallegu, gömlu konuna. — En þú ætlar að sjá til að hún lifi ekki alltof lengi, Graham. Hvað er hægt að segja til að fá þig ofan af þessu? Hann henti sígarettunni sinm út yfir borðstokkinn og horfði á hana berast með bárunum unz hann hvarf. — Þú skalt ekki gefast upp strax. Þú ert ekki einu sinni byrjuð.Reyndu lækn- inn okkar. Finnst þér hann ekki aðlaðandi? Hann langar til að skemmta sér, en þó yrði hann enn ákafari, ef hann héldi, að þú værir taugaveikluð líkt og Celía White. Joyce leit á fólkið, sem var að spila bridge. — Hann blátt áfram uppörvar ríkar konur til að halda að þær séu veikar án þess að vera það og mælir sjúkdómana upp í þeim. Þá fær hann gott kaup. Joyce þagði. o o [) SMÁAUGLÝSINGAR Tek föt tll viðgerðar. Ekki kúnststopp. Uppl. síma 15792 daglega íyrir hádegi. Steingirðingar, svalarhandrið, og blómaker. MOSAIK H.F. Þverholti 15. Sími 19860. Notað, nýlegt, nýtt. Daglega koma barnavagnar, kerrur burðarrúm, leikgrind ur, barnastólar, róiur, elð hjói, þríhjól, vöggur og fleira tyrir bömin, opið írá kl. 9-18,30. Markaður notaðra barnaökutækja, óðinsgötu 4, sími 17178 (gengið gcgnum undirganginn). Brúðarkjólar til leigu. Stuttir og síðir, hvitir og mla litir brúðarkjólar tll lelgu. Einnig slör og höfuðbúnaður. Simi 13017. ÞÓRA BORG, Laufásvegi 5. Teppaþjónusta WILTON-teppi ’Ótvega glæsileg, islenzk Wilt- on teppi, 100 % ull. Kem heim með sýnishora. Einnlg útvega ég ódýr, dönsk ullar og Kisahteppi i flestar gerðlr bifreiða. Annast snlð og lagnir svo og vkSgerðir. Daniel Kjartansson, Mosgerði 19. Simi 31283. S j ónvarpslof tnet Tek að mér uppsetningar, við gerðir og breytingar á sjón- varpsloftnetum (elnnig útvarps loftnetum). Útvega aUt efni ef óskað er. Sanngjarat verð. 1 Fljótt af hendi leyst. Sími 16541 kl. 9-6 og 14897 eftir kl. 6. Valviður — sólbekkir Afgreiðslutimi 3 dagar. Fast verð á lcngdarmctra. Valviður, smíðastofa Dugguvogi 5, sími 30260. . Verzlun Suðurlands- braut 12, sími 82218. Allar myndatökur hjá okkur. Einnig ekta litljjsmyndir. Endur nýjum gamlar myndir og stækk um. Ljósmyndastofa SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR, ökukennsla, æfingartímar. Kcnnt á Volkswagen. ÖGMUNDUR STEPHENSEN. Sími 16336. Tökum að okkur klæðningar, úrval áklæða. Gef- um upp verð áður en verkið er hafið. Húsgangaverzl. HÚSMUN 1B, Hverfisgötu 82, sími 13655. Alls konar viðgerðir og breytingar á rörum, hreinlætistækjum, þétting á krönum og margt fleira. Sími 30091. Pípulagnir — Pípulagnir Tek að mér viðgerðir, breyting. ar, uppsetniugu á hreinlætfs- tækjum. GUÐMUNDUR SIGURÐSSON, Grandavegl 39. . Síml 18717. Málningarvinna Tek að mér utan- og innanhúss. málun. HALLDÓR MAGNÚSSON málarameistari. Sími 14064. Enskir rafgeymar Úrvals tegund, L. B., LondOB- Battery fyrirUggjandi. Gott verð. Lárus Inglmarsson, heild- verzlun Vltastíg 8 A. Sími 16205. Til sölu Utfaðrar steinflðgnr, tU veggja, gólf og arinskreyUnga. Flisalegg baðberbergi. Upplýa. ingar i sima 52057. Opið frá kl. 6 að morgni. Caféteria, grUl, mat«r ailan dag inn. — Súkkulaði, kaffi, öl, smurt brauð, helmabakaðar kökur. — Vitabar, Bergþórugötu 21, «fmi 18408. Töskuk j allar inn — Laufásvegi 81, simi 18543, Ml ur: Innkaupatöskur, íþrótta- töskur, ungilngatöskur, poka_ f 3 stærðum og Barbi-skápa. Mjólkurtöskur, verð frá kl. 100.. TÖSKUKJALLARINN, Laufásvegi 6L Lóðastandsetningar Standsetjum og girðum lóðir o.fl. Sími 11792 og 23134 eftir kl. 5. Verzlunin Silkiborg auglýsir Nýkomið smáköflótt og einlitt terelyne, dömupeysusett og blússur fallegt og ódýrt, galla buxur, peysur, nærföt og sokk- ar á alla fjölskylduna, smá. vara og ullargarn i úrvali. VERZLUNIN SILKIBORG, Dalbraut 1 v/Kleppsvcg, simi 34151 og Nesvegi 39, sími 15340. Einangrunargler Tökum að okkur ísetningar á ein- földu og tvöföldu gleri. Útvegum allt efni. Einnig sprunguviðgerðír. Leitið tilboða í símum. 52620 og 51139. Innanhússmíði Gerum tilboð i eldhúsinnrétting ai-, svenfherbergisskápa, sólbekki veggklæðmgar, útihurðir, bíl skúrshurðlr og gluggasmíði. Stutt ur afgreiðslufrestur. Góðir greiðsluskilmálar. Timburiðjan , sími 36710. 15- júní 1968 — ALÞÝDUBLAÐIÐ ^

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.