Alþýðublaðið - 23.06.1968, Page 1

Alþýðublaðið - 23.06.1968, Page 1
Sunnudagur 23. júní 1968 — 49- árg. 115. tbl. Athyglisverður fornminjauppgröftur að Varmá i Mosfellssveit: í landi Varmár í Mosfellssveit er hafinn forn- minjagröftur og er komið þegar í ljós kirkjustæði að öllum líkindum frá miðöldum. Að því er Þór Magnússon tjáði Alþýðublaðinu í gær, er forsaga þessa málg sú að hefja á byggingu nýs skólahúss í landi Varmár og var þjóðminja verði gert viðvart áður, þar sem húsið átti að reisa við bæj arrústir, sem taldar voru all- gamlar, Við athugun reyndist ekki árennilegt að grafa í þess um bæjarrústum, en í nám- unda við þær virtist marka fyr ir hringlaga kirkjugarði. í Vilchins-máldaga frá 1397 er getið um kirkjustað á Varmá og m.a. um jarðeignir er kirkj an átti- Kirkjunnar er svo gét ið af og til allt fram til 1600. Torfkirkja frá miðöldum? Nú er sem sagt nokkurnveg inn komirm í ljós grun'rur lít- illar torfkirkju, og er þessi uppgröftur merkilegur fyrir þær sakir 'að sllk kirkja hefur aldrei verið rannsökuð áður, og kynni þessi uppgröftur að verða sambærilegur um sumt við uppgröft Þjóðhildarkirkju á Grænlandi. Beinin of morkin Ein gröf hefur þegar fund- izt og bein, en það var það morkið að varla er ástæða til að grafa meira í leit að manna beinum. Enn hafa ekki fund izt neinir merkilegir munir. Að svo stöddu er ekki hægt að segja til um hve þessi upp gröftur verður umfangsm;kjll, •en trúl-egia verður. haldið á- fram til mánaðamóta a.m.k. Byrjað var á að grafa skurði þvers og langs yfir hólinn til að ganga úr skugga um hve langt niður væru merki um byggingar. í fyrradag voru komnar í ljós grjótraðir undir u.m.þ.b. 30—40 sm lagi af mold, efst í hólnum. Framhald á 14. síðu. Svexnbjörn Rafnsson til vinstri og Helgi H. Jóns on við uppgrröftinn. A myndinni má merkja steina í skipulegri röð. Hvert stig í uppgreftrinum er Ljósmyndað og kortlagt. Á neðri myndinni er Helgi að grafa með Htlinn spaða. iiiiiniiiiilniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiinmmmniiiriiitiiiiniiiiiiuiiiii iiiiiiimriiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiin VÍSINDARÁÐSTEFNA UM HAFÍSINN Ríkisstjómin hefur í hyggju að gangast fyrir vísindaráðstefnu um hafísinn. Verður kunnáttu- mönnum boðið til þátttöku, og er tilgangurinn að safna saman á einn stað allri þekkingu varð- andi hafísinn, sem landsmenn húa yfir. Rannsóknarráðs. Þykir nú Hugmyndina um almenna ráðstefnu um þetta mál lagði Trausti Einarsson prófe'ssor fyrir Gylfa Þ. Gíslason menntamálaráðherra. Þótti Gylfa hún athyglisverð og fékk hann ríkisstjórnina til liðsinnis við málið. Mun stjórnin væntanlega beita sér fyrir fjárveitingu til ráð stefnunnar á Alþingi í haust. Það mun hafa komið í Ijós við athugun í vetur, að vís indaleg þekking á hafísnum við ísland er sára Iítil. Þó mun Jón Eyþórsson hafa gert athuganir árum saman og notið til þeirra aðstoðar rétt að bæta úr þessu og reyna að undirbúa þjóðina betur, ef ísinn fer að verða tíður gestur. Þess vegna á- kvað framkvæmdanefnd Rannsóknarráðs að setja haf- ísnefnd til að athuga, hvort efla beri rannsóknir til að auðvelda spár um hafís við ísland. í nefndinni eiga sæti Hlynur Sigtryggsson, veður- stofustjóri, sem er formaður, Pétur Sigurðsson, forstjóri, Trausti Einarsson, prófessor, og dr. Unnsteinn Stefánsson, haffræðingur. Undanfarið hafa verið gerð ar hér við land hitamælingar úr lofti á vegum rannsóknar stofnunar bandaríska flotans, og kunna þær að hafa þýð- ingu í þessu sambandi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.