Alþýðublaðið - 23.06.1968, Síða 4

Alþýðublaðið - 23.06.1968, Síða 4
OFANGREIND setnlng er tilvitnun í grein_ er rithöfundur- inn og síðar Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness, góðvinur Nínu Tryggvadóttur, reit um fyrstu málverkasýningu hinnar ungu listakonu fyrir röskum aldarfjórðungi, eða nánar tíltekið í desembermánuði árið 1942. Þetta var fyrsta hérlend sýning Nínu Tryggvadóttur að loknu fjögurra ára námi við erlenda listaháskóla að viðbættrí þriggja ára undirbúningsvinnu. Sýn- ingin flutti með sér ferskan keim nýrrar og áður lítt þekktrar listar hér á landi og vakti því ósmáa athygli. Og segja má, að ummæi'i Laxness, þar sem hann talar um „listsköpun, ekki fjallaefiirhermur" hafi verið hinn rauðj þráður hennar og raunar allra verka Nínu síðan. En gefum rithöfundinum orðið á ný. Niðurlag greinar hans hljóðar svo: „Mynd eftir Nínu setur menningarblæ á hvaða herbergi sem er og seg- ir náttúrueftirlíkingunum, sem aðeins í mjög þraungum skiln- ingi geta talizt myndlist, stríð á hendur. Ég vildi að við ætt- um í bókmentumum mikið af höfundum á hennar aldri, sem ættu ekki aðeins alvöru, lieiðar- leik og fordildarleysi Nínu Tryggvadóttur, heldur einnig sjálfsaga hennar, einbeitni og mentun.” Því eru þessi orð upp rifjuð, að okkur löndum hennar barst sú fregn skömmu eftir hita og amstur þjóðhátíðarinnar, að Nína Tryggvadóttir væri látin í New York eftir stutta sjúk- dómslegu, aðedns 55 ára að aldri. Með hennj hverfur einri fremstj og kunnasti nútíma- málari íslenzkur — langt fyrir aldur fram — og a.m.k. lang- kunnasti listamaður íslenzkur úr hópi kvenna. Nægir að benda á það nær einróma Iof, sem hún hlaut fyrir list sína hjá hér- og erlendum gagnrýn- endum á allt of skömmum lista mannsferli sínum. Margar mynda hennar eru í íslenzkri eign og ber að fagna því, en því ber einnig að fagna, hversu þær hafa borizt víða. Þá má benda ókunnugum á hina fögru og sérstæðu altaristöflu nýju dómkirkjunnar í Skálholti, en að því verki lagði Nína Tryggvadóttir gjörva hönd. Nína Tryggvadóttir fæddist á Seyðisfirði 16. marz 1913, dótt- ir hjónanna Tryggva Guð- mundssonar, gjaldkera, og konu hans, Gunndóru Benjamíns- dóttur. Hún ólst upp í Reykja- vík og hóf myndlistarnám sitt Aff námi Ein af eldri myndunum: Frá Fáskrúðsfirði. Mynd Nínu af Halldórí Kiljan Laxness. hjá listmálurunum Finni Jónssyni og Jóhanni Briem. — Nína fór til náms við listahá- skólann í Kaupmannahöfn ár- ið 1935 og stundaði þar nám undir handleiðslu prófessors Kræsdens Iversens. Þá var hún um langt skeið við nám og vinnu í París. Árin 1942— 1945 stundaði hún og listnám í New York og var búsett þar í borg til 1949. Hér heima bjó hún svo öðru hverju eftir það, en annars lengstum í heims- borgunum utan lands. Árið 1949 giftist Nína Tryggvadóttir kunnum lækni og listmálara, dr. Alfred L. Copley og áttu þau eina dóttur barna. Dr. Copley hefur oft komið hingað til lands og dval- ízt hór 'stundum laingdvaium með konu sinni. Voi'u þau lijónin samhent i áhuga sínum á fögrum listum. Fer ekki illa á því að ljúka þessu stutta spjalli um líf og list Nínu Tryggvadóttur með enn einni tilvitnun í vin henn- ar, Halldór Kjljan Laxness, svo sem gert var í upphafi. Rösk- um tveimur áratugum seinna en upphafsorðin voru rituð eða árið 1963 skrifar rithöfundur- inn enn um hana stutta og skemmtilega grein, enda höfðu þá að fullu rætzt þau fyrirheit, er hún gaf í Listamannaskál- og starfi. anum árið 1942. Greinin er til- komin vegna sýningar listakon- unnar í Reykjavík þetta ár og var birt á þýzku í sýningarskrá hennar í Wuppenthal um haust- ið. Laxness dregur þar upp bráðsnjalla svipmynd af lista- konunni og einstaklingnum Nínu Tryggvadóttur, miklu gleggri mynd en gera mætti í langri blaðagrein. Hann segir: „Um daginn sagði ég við Nínu: Mikið lángar mig að stúdéra myndirnar þínar og setja eitthvað saman um þær mér til skemmtunar. En ég veit ekki hvernig ég á að fara að því. Þá sagði hún: Það skil ég vel, að ekki sé hægt að skrifa um list. Ef hægt væri að skrifa um list, þá væri líka óþarfi að vera að búa hana til.” Og enn segir Laxness : „Ég minnist svars sem Nína Tryggvadóttir gaf einusinni blaðaspyrli sem vildi vita hvers vegna hún málaði abstrakt. — Nína svaraði á augabragðj með þeim sjálfsögðum rakleiðum viðbrögðum sem myndlista- mönnum er gefið umfram aðra menn: „Það er af því að heim- urinn er svo abstrakt”.” G.A. tók saman. UM Nínu Tryggvadóttur X- 4 23. júní 1968 ALÞYOUBLAÐSD

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.