Alþýðublaðið - 23.06.1968, Page 7
Aðalfiandur
SfangaveiSi-
félags
ICeflavíkurn
FYRIR skömmu hélt Stanga-
veiöifélag Keflavíkur aðalfund
sinn. Fráfarandi formaður,
Bjarni Albertsson, gerði grein
fyrir störfum félagsins á liðnu
ári. Félagið hefur undanfarin
tvö ár haft rúma 100 stanga-
veiðidaga í Hítará og á síðasta
vori fékk félagið einnig hálfa
Fáskrúð í Dölum á móti
Stangaveiðifélagi Akraness. —
Kosið var í nýja stjórn félags-
ins, en hana skipa:
Ágústsson; ritari Jóhannes
Bjömsson; gjaldkeri Guðmund-
ur Guðjónsson; fjármálaritari
Egill Þorsteinsson.
Félag sjéuvarps-
áhugamanna á
Akureyri.
STOFNAÐ hefur verið Félag
sjónvarpsáhugamanna á Akur-
eyri og í nágrenni. Var hús-
fylli á stofnfundinum í Nýja
Bíói og munu félagar þegar
orðnir fleiri en 600. Stjórn
skipa: Alfreð Möller, fram-
kvæmdastjóri, form.; Freyr
Ófeigsson, fulltrúi; Halldór
Helgason, gjaldkeri; Aðalgeir
Pálsson, verkfræðingur, og
Jónatan Clausen, útvarpsvirki.
WASHINGTON : í tilkynningu
frá Walter Reed sjúkrahúsinu
segir, að heilsufar Eisenhowers,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta,
sé nú gott og lofi góðu. Eisen-
hower fékk hjartaslag um helg-
ina. i
urðssonar lögmanns. Maður
nokkur í Breiðafirði átti í
máli við Odd og tapaði því.
Það gladdi að sjálfsögðu kerl-
inguna, móður Odds. Af því til-
efni kvað Breiðfirðingurinn:
i
Kerlíngar var kjaftur flár,
keyrður upp með sköllum,
hafði ’ún ekkl í hundrað ár
hlegið með honum öllum.
★
Sigurður Breiðfjörð yrkir
nokkrar vísur um viðskipti
sín og veraldarinnar, þar á'
meðal þessar tvær stökur:
til í ýmsum mismunandi út-
gátum:
Ekki get ég gert að því,
þótt gantaskapur og narrarí
fylgi mér um frón og bý;
fóikið allt má hlæja að því.
★
Sr. Sigurður Norland í
Hindisvík kvað eftirfarandi
visu um Vatnsnesið og Mið-
fjörðinn, ég veit ekki, hvort
Miðfirðingar eru honum sam-
mála, enda fráleitt til þess
ætlazt:
Páll Ólafsson var nokkuð
vínhneigður og þótti sopinn
góður, kemur það víða fram í
ljóðum hans. Þessar vísur eru
af því taginu ;
Nóttin hefur níðzt á mér,
nú eru augun þrútin,
snemma því á fætur fer
og flýti mér í kútinn.
Við það augun verða hörð,
við það batnar manni strax,
það er betra en bænagjörð
brennivín að morgni dags.
★
Augun hafa orðið mörgum
að yrkisefni óg ekki alltaf á
eina lund. Hvað segja menn
um þessa vísu?
Úteygð, trúteygð ertu að sjá,
oteygð, voteygð líka,
flenneygð, glenneygð falda-
gná,
flaseygð, glaseygð píka.
★
Eftirfarandi vísa er sögð
kveðin um móður Odds Sig-
Ég er eins og veröld vill
velta, kátur, hljóður.
Þegar við mig er hún ill,
ekki er eg heldur góður.
Ef að við mig hún er hlý
og hugann eitthvað gleður,
er ég léttur eins og ský,
sem ýtir af sólu veður.
★
Þessi gamli húsgangur hefur
víst farið víða um land og er
Það má kalla undur, að
ýmsir flytja héðan
inn í Miðfjörð eftir það,
að þeir hafa séð hann.
★
Svo er hérna ein lítil sköp-
unarsaga í tveimur útgáfum:
Skrattinn vildi skapa mann,
skinnlaus köttur varð úr því.
Helgi Pétur hjálpa vann,
húðina klasddi dýrið í.
Skrattinn vildi skapa mann
skyndilega með hár og skinn,
andanum kom hann ekki í
hann,
úr því varð þá kötturinn.
★
Hjálmar á Hofi kveður um
kuldann :
Norðan gjóstur skrefar skörð,
skarar róstur línu,
nú er hrjóstug hélu jörð,
hregg í brjósti mínu.
Enn skal prófa ýta val
úti í snjó og regni,
þorra og góu þreyja skal,
þó að flóa leggi.
★
Og að síðustu þessi gamla
góða vísa, sem segir að vísu
ekki nein stórtíðindi, en á þó
erindi til margra meðal yngri
kynsíóðarinnar:
Sigga litla systir mín
situr úti í götu,
er að mjólka ána sín
í ofurlitla fötu.
Bjóðum ekki hættuni heim
ÁÐUR en ökumaður leggur
upp í langferð, verður hann að
ganga úr skugga um, að öll ör-
yggistæki bifreiðar hans séu í
fullkomnu lagi. Það er ekki síð-
ur nauðsynlegt, að bifreiðin sé
í lagi, þegar ekið er í þéttbýli,
en reynslan er sú, að við akst-
ur á misjöfnum þjóðvegum okk-
ar, er meiri hætta á óhöppum,
töfum og jafnvel slysum, ef ör-
yggistæki bifreiðarinnar eru
ekki í fullkomnu lagi við upp-
liaf ferðarinnar.
Það fyrsta, sem ökumanni ber
að athuga áður en hann leggur
í langferð, er að hemlar og
stýrisverk bifreiðarinnar séu í
fullkomnu lagi. Ekki nokkur
ökumaður ætti að leggja bifreið
sinni í iangferð, ef hemlar
hennar eru misjafnir, þannig, að
hætt sé við, að hún snúist við
hemlun. Heldur ekki, ef stíga
þarf oft á hemilinn til að heml-
un verði eðlileg.
Ef stýrisverk bifreiðar er það
slitið, að óeðlilegt ,,hlaup” sé
í því, eða ef stillingu stýris-
verksins sé þannig háttað, að bif-
reiðin rási, ættu ökumenn ekki
að hætta á langferð meðan tæki
bifreiðarinnar hafa ekki verið
lagfærð.
Þá ber að minna ökumenn á
þá staðreynd, að mörg alvarleg
slys hafa hlotizt af því, að öku-
menn hafa verið að spara sér
hjólbarðakaup fram á síðustu
stundu. Stórhættulegt er að aka
á sléttum, margviðgerðum hjól-
börðum, enda mjög hætt við,
er ekið er á misjafnlega góðum
þjóðvegum, að hjólbarði springi
skyndiiega, en við það getur
ökumaður auðveldlega misst
stjórn á ökutæki sínu. Góðir
mynztraðir hjólbarðar með hæfi-
legum loftþrýstingi geta sparað
ökumanni óhemju fyrirhöfn og
óþægindi, og jafnvel forðað hon-
um og farþegum hans frá miklu
fjárhagslegu og líkamlegu tjóni.
Ekki er síður nauðsynlegt að
ganga úr skugga um að högg-
deyfar eða „demparar” bifreið-
arinnar séu í lagi, því að oft get
ur reynzt mjög erfitt að halda
góðri stjórn á bifreiðinni á' hol-
óttum vegi og í beygjum, ef þeir
eru farnír að gefa sig.
í umferðarlögum um gerð og
búnað ökutækja segir: „Sérhvert
ökutæki skal svo gert og haldið
þannig við, að af notkun þess
leiði hvorki óþarfa hættu né ó-
þægindi, þar með talinn hávaði,
reykur eða óþefur eða hætta á
skemmdum á vegi.
Eigandi eða umráðamaður ber
ábyrgð á, að ökutæki sé í lög-
mætu ástandi. Sérstaklega skal
þess gætt, að stjórntæki og
hemlar verki vel og örugglega
og að skráningarmerki og
merkjatæki séu í lagi.”
ökukennsla.
Kenni á VW_bifreið.
VALDÍMAR LÁRUSSON.
Uppl. í síma 42123.
SMURSTÖÐIN
SÆTÚNI 4 .'SÍMI 16 2 27
BÍLLINN ER SMURÐUR FUÓTT OG
VEL. SELJUM ALLAR TEGUNDIB
AF SMUROLÍU.
UMFEROARNEFND
REYKJAVIKUR
LD'GREGLAN i
REYKJAVIK
o o þ SMÁAUGLÝSINGAR
Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla- viðgeröij, hemlavarahlutir. HEMLASTILLING H.F. Súðavogi 14 — Sími 30135. Nýkomið ítalskur lopi, orlongarn og ítalskt móhairgarn. HOF, TT ifnarstræti 7.
Nýkomið Hannyrðavörur og saumagarn í miklu úrvali. HOF, Hafnarstræti 7. Gangstéttir Lcggjuin og steypum gangstcttir og innkeyrslur. E.nnig girðum viö lóðir o>; sumarbústáðalönd. S'ÍMI 3S3C7.
ALMENNUR FUNDUR
vegna framboðs Gunnars Thoroddsens til
forsetakjörs 30. júní n.k., verður haldinn í
Selfossbíói þriðjudaginn 24. júní kl. 21. Lúðra-
sveit Selfoss leikur í upphafi fundarins,
ræður og ávorp verða flutt. Gu-nnar Thorodd-
sen og kona hans koma á fundinn. Sunnlend-
ingar! fjölmennum og hefjum þannig loka-
sókn til sigurs Gunnars Thoroddsens í kosn-
ingunum.
I
23. jtiní 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7