Alþýðublaðið - 23.06.1968, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 23.06.1968, Qupperneq 8
ATLANTSHAFSBANDALAG- IÐ var formlega stofnað' í Wash- ingrton 4. apríl 1949 _ Þátttöku- ríkS voru þá 12, Belgía, Kanada, Danmörk ísland, ítalía, Lúxem- burg, Holland, Noregur, Portú- gal, Bretland og Bandaríkin. Síðar gengu í Bandalagið Grikk- land, Tyrkland og Vestur-Þýuka- land. Tildrög að stofnun banda- lagsins ,voru þau, að Sameinuðu þjóðunum tókst að sigra í heimsstyrjöldinni, en þeim tókst ekki að semja svo um málefni Evrópu, að friður væri traustur. Þýzkalandi og Aust- urríki var skipt í hernáms- svæði, sem hlaut að verða bráðabirgðaskipan. Ný landa- mæri voru dregin án samn- inga, og enn í dag hafa ekki verið gerðir friðarsamningar við Þýzkaland. Vesturveldin afvopnuðust hraðar en Sovétríkin, og Stal- in notaði tækifærið til að koma til valda kommúnistastjórnum í skjóli Rauða hersins í hverju landi á fætur öðru í Austur- Evrópu. Þegar kommúnistar hrifsuðu til sín völdin í Tékkó- slóvakíu með eftirminnilegum hætti, sem enn er rannsóknar- mál í Prag, þótti ríkjum Vest- ur-Evrópu illa horfa sínum málum. Borgarastyrjöld geys- aði í Grikklandi, Vestur-Berlín var einangruð og átti að svelta hana. Þegar hér var komið, hófust viðræður um myndun Atlants- hafsbandalagsins, sem lauk með stofnfundinum í Washing- ton. f fyrstu var ætlunin að þetta yrði bandalag eins og tíðkazt höfðu í sögunni og byggðust á’ gagnkvæmu loforði um stuðning, ef ráðizt yrði á eitt- hvert þátttökuríkja. Eftir að Kóreustyrjöldin brauzt út, þótti stjórnmálamönnum í Vestur-Evrópu, með Frakka í broddi fyikingar, þetta ekki nóg. Þeir vildu þegar hefja viðbúnað til varnar og alveg sérstaklega fá amerískan her til meginlandsins, til að tryggja aðild Bandaríkjanna þegar í upphafi, ef til ófriðar kæmi. Upp úr þessu spratt hið sam- eiginlega varnarkerfi, sem bandalagið hefur komið upp og á ekki sinn líka í forsögu varn- arbandalaga. Það var um leið og þessi veigamikla breyting bábib J • • varð á skipulagi bandalagsins, sem varnarliðið kom til íslands, enda ríkti um það leyti alvar- legur ótti við við nýja heims- styrjöld. Meginsíofnun bandalagsins er fastaráðið, sem heldur fund í Reykjavík á næstunni. Þar eiga að jafnaði sæti ambassa- dorar frá öllum þátttökuríkj- unum, (nú Niels Sigurðsson frá Islandi), en þar er rætt um hvers konar sameiginleg mál- efni, sem komast á dagskrá, og skipzt á upplýsingum. Tvisvar á ári eru haldnir sérstakir fundir, þar sem utanríkisráð- herrar allra ríkjanna mæta, og komið hefur fyrir, að þjóðhöfð- ingjarnir eða forsætisráðherr- ar mættu. Atlantshafsráðið hefur á sín- um vegum allmargar nefndir, sem fjalla um mismunandi mál, sem snerta hagsmuni banda- lagsins. Meginliluti af starf- semi Atlantshafsbandalagsins er ekki hernaðarlegs heldur pólitísks eðlis og ekki unninn af herliði. Það er starfsemi ráðsins og nefnda þess, svo og aðalriíara bandalagsins, Manlio Brosio og starfsliðs hans. íslendingar hafa einungis tekið þátt í þessum hluta bandalagsins, en hafa ekki skipt sér af hinni hernaðarlegu hlið, þar sem hér er hvorki til her, floti eða flugher. Sjálfar hervarnir NATO eru skipulagðar á fjórum svæðum. Eitt þeirra er meginland Evr- ópu frá Norður-Noregi til Tyrk- lands, og hefur þar jafnan ver- ið amerískur yfirforingi, fyrst Eisenhower, síðar forseti. — Næsta svæði er Ermarsund. Þriðja svæðið er Norður-At- lantshaf, og eru aðalstöðvar þess í Norfolk í Virginíu í Bandaríkjunum, en aðrar stöðv- ar í Bretlandi og Portúgal. ís- land er á þessu varnarsvæði. Loks er Norður-Ameríka, varn- ir Kanada og Bandaríkjanna. Atlantshafsbandalagið hefir að því leyti náð megintilgangi sín- f *r~.r Hlll illl Atlantshaf I— 1111111 Bretland nii N-Ameríka Eliour Þessi skipulagsteikning sýnir, hvernig- starfsemi Atlants hafsbandalagsins er. Vinstramegin er sá hlutinn, sem ekk'í er hernaffarlegs cðlis ráðið (sem heldur fundinn Reykjavík), nefndirnar_ aðalritarinn og starfslið hans. Hægra megin eru hSns vegar hervarnir, en ísland hefur ekki tekið þátt í þeim hluta starfseminnar. g 23. júní 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.