Alþýðublaðið - 02.07.1968, Page 4
t
i
4 2. júlj 1968
NY STJARNA
Nýjar kvikmyndastjörn-
ur eru oít uppgötvaðar í
forsölum kvikmyndahúsa.
Þannig var því t.d. farið
með hina 23 ára gömlu
stúlku frá Múnchen, Uschi
Glas. í samkvæmi, sem
haldið var í tilefni frum-
sýningar á ónafngreindri
kvikmynd. rakst hún á
framleiðanda, sem þegar
í slað fékk augastað á
henni, og gerðj við hana
samning um að leika í
kvikmynd.
Hún hefur nú þegar leik
ið í nokkrum kvikmynd-
um, og þykir sannað, að
hún hafi mikla hæfileika
til að bera. Á hinn bóginn
hefur hin skyndilega frægð
og auður, sem henni hefur
áskotnazt, ekki stigið
Framhald á 14. síffu.
Nýjar hugmynciir
í tízkuheiminum
London er og hefur um
langt skeið verið miðstöð tízk
unnar, einkum þó tízku unga
fólksins. Það vekur því alltaf
talsverða athygli, þegar tízku
nemendurnir í Konunglega
listaháskólanum ljúka prófum
sínum. Hver veit nema að í
hópi nemenda leynist verð-
andi tízkufrömuður, sem ein-
hvern daginn slær í gegn og
kemur á fót verzlun og tízku-
miðstöð á borð við hinar frægu
verzlanir í Carnaby Street eða
á Kings Road, helztu tízkugöt
um Lundúna.
Konunglega listaháskólanum
var slitið fyrir fáeinum dög-
um, og eins og' meðfylgjandi
myndir sýna, þá einkenndi fram
úrstefnan svokallaða verkefni
nemenda. Hvað finnst ykkur
t.d. um hina efnislitlu buxna
dragt, sem hávaxna stúlkan á
efri myndinni spókar sig í?
Efnið er jersey, bryddað perl-
um. Stúlkurnar tvær á neðri
myndinni, sem eru í nokkurs
konar geimfarabúningi úr
plasti og silfri, myndu senni-
lega fá róttækustu tízkufröm
uðina á Kings Road til að reka
upp stór augu. Við látum hins
vegar ósagt, hvort höfundur
þessa fatnaðar verði einn af
stóru spámönnunum, en held-
ur þykir okkur það ólíklegt.
-n
DO
Iveir garpar
Kornung þýzk tvíburasyst-
kini hafa nýverið vakið mikla
athygli sundáhugamanna um
víða veröld. Þau heita Ulrike
og Ingrid Westenrieder, og eru
frá Múnchen.
Tvíburasystkinin byrjuðu
að synda, þegar þau voru
tveggja mánaða gömul, og nú,
þegar þau eru þriggja ára,
geta þau hvíldarlaust synt í 47
mínútur. Með því hafa þau
hnekkt heimsmeti, sem áður
áttu amerísk tvíburasystkini,
Paddy og Joan Mulligan, en þau
eru eilítið eldri.
Þrátt fyrir afrekið, gerum
við ekki ráð fyrir, að tvíbur-
arnir komist á Ólympíuleik-
ana í Mexíkó.
ALbYÐUBLAÐIÐ