Alþýðublaðið - 02.07.1968, Qupperneq 8
J
Það er engum blöðum um það að fletta að úrslit for-
setakosninganna hafa komið langflestum mjög á ó-
vjart. Menn ræddu málið í gær fram og aftur og
reyndu að finna skýringar á þessum mikla mismun.
Er þetta unga fólkið að snúast gegn flokkavaldi í
hverskonar mynd, er þetta svar almennings vegna
erfiðleika í atvinnulífi — eða hver er skýringin?
Það er út í bláinn að reyna
að íinna réttu svörin, þau
verða að líkindum eins mörg
og svarendur eru margir: Þó
er það útbreidd skoðun, að hér
hafi verið uppreisn í einhvers
konar mynd, sem erfitt er að
gera sér grein fyrir hvaða á-
hrif kunni að hafa á íslenzk
stjórnmál, enda þótt forseta-
kosningarnar hafi verið yfir-
lýstar ópólitískar.
Hér í Reykjavík störfuðu
fylgismenn beggja af kappi.
Kjörsóknin var slík, að ótrú-
legt ep að hún verði nokkurn
tíma aftur jafnmikil. Þarna
hefur sjónvarpið áreiðanlega
átt stóran hlut að máli. Þeg-
ar kosningaundirbúningur er
rekinn öðrum þræði í sjón-
varpi verða málin mun meira
lifandi, áhorfendur komast í
mun meiri snertingu við fram
bjóðendur og fylgismenn
þeirra og taka þar af leiðandi
mun virkari þátt í kosninga-
baráttunni. Áberandi var að
börn fylgdust vel með kosn-
ingabaráttunni og mynduðu
sér skoðanir á frambjóðend-
um, sem þau hefðu varla gert
Stuðningsmenn dr. Kristjáns Eldjárns komu sarnan í Lídó að
starfi loknu og var þar sem skiljanlegt er glatt á hjalla og mikil
s'igurvímu. Þessi svipmynd hér að ofan var tekin í Lídó og einn úr
hópnum gefur hið fræga merki Churchills gamla — V for
victory.
Á myndinni hér til hliðar eru Lídógestír og sá brosmildi í miðj-
unni er Steingrímur Sigurðsson, rithöfundur.
Þegar kjörstaðir voru opnaðir
í Reykjavík hafði á öllum stöð
um hópazt saman fólk, sem
ætlaði að kjósa snemma. Af
þessari mynd að dæma er hér
eldra fólk í meirihluta — fólk
sem tt'kur da^inn snemma og
lætur ekki smala sér á kjör
stað.
1
Á- 1
8 2. júlí 1968
ALÞYÐUBLAÐIÐ