Alþýðublaðið - 02.07.1968, Blaðsíða 11
jj!t f 41
COCA-COLA keppninni
svokölluðu í golfi, sem hald-
in er á vegum Golfklúbbs
Reykjavíkur lauk á golf-
vellinum í Grafarholti sl.
laugardag. Keppnin var
skemmtileg og jöfn, en
lauk með sigri Einars
Guðnasonar, sem lauk 72
hojunum á 324 höggum.
Annar varð Hans Isebarn á
326 höggum og þriðji Þor-
björn Kjærbo á 329 högg-
um. í keppni með forgjöf
sigraði Ragnar Magnússon,
á 271 höggi. Þátttaka var
ágæt í keppni þessari, en
alls hófu 71 keppni Mynd-
in er frá verðlaunaafhend-
ingunni og sýnir þrjá beztu
keppendurna.
hafa einu sinni áður leikið við
Vestur-Þýzkaland og þá við at-
vinnumannalið, þeim leik
lauk með sigri Vestur-Þjóð-
verja, sem skoruðu 5 mörk
gegn engu. Úrslit þeirra 47
leikja, sem íslendingar hafa
háð til þessa hafa orðið þau,
að 7 hefur lokið með sigri, 5
lauk með jafntefli, en 35 hafa
tapazt. íslendingar hafa skor-
að 62 mörk, en fengið á sig 158
Fyrst léku íslendingar við
Dani 1946 í Reykjavík og Dan-
ir unnu með 3 gegn engu.
íslenzka liðið hefur dvalið
á Laugarvatni síðan á laugar-
dag við æfingar og er vænt-
anlegt í bæinn á morgun. Þjálf
ari íslenzka landsliðsins er
Walter Pfeiffer.
Það eru fremur ung lið, sem
eigast við í landsleiknum,
yngsti íslendingurinn er 19
ára, sá elzti 28 ára, en meðal-
aldurinn er rúmlega 23 ár.
Það sama er um þýzka liðið
að segja.
Annars er þetta þýzka lið
okkur að öllu óþekkt hvað
varðar getu leikmanna. Þó vit
um við að liðið hefur að baki
7 landsleiki á þessu ári, hefur
unnið 5, gert eitt jafntefli og
tapað einum fyrir Austurríki
0:2. Jafnteflið var við ítalíu. ísl.
liðið er þannig skipað: lands-
leikjafjöldi innan sviga á eftir:
Þorbergur Atlason, mark-
vörður Fram, 20 ára (0).
Ársæll Kjartansson, h. bak-
vörður, KR, 23 ára (1).
Þorsteinn Friðþjófsson, Val,
v. bakvörður, 28 ára (1).
Þórólfur Beck, KR, tengilið-
ur, 28 ára, (10).
Anton Bjarnason, Fram, mið
vörður, 21 árs (4).
Guðni Kjartansson Keflav.,
miðv., 21 árs (2).
Reynir Jónsson, Val, h. út-
herji, 25 ára (2).
Hermann Gunnarsson, Val, h.
innherji, 21 árs (6).
Kári Árnason, Akureyri, mið-
herji, 24 ára (7).
Eyleifur Hafsteinsson, KR, 21
árs, v. innherji (9).
Elmar Geirsson, Fraipi, v. út-
herii, 19 ára (2).
Varamenn eru Páll Pálma-
son, Vestm.eyjum, fyrir mark
vörð, Jóhannes Atlason, Fram,
og Viktor Helgason Vestm.
evjum fyrir vörn og Magnús
Jónatansson fyrir teúgiliði og
Matthías Hallgrímssoni fyrir
framlínu.
Fyrirliði er Þórólfur Beck.
Dómari er McKee frá Skot-
landi.
Framhald á 14. síðu.
48. A-landsleikur íslendinga í
knattspyrnu fer fram á Laug-
a rdiailsveilliinium í kvöld og
hefst kluíkkan 20,30. Liðið
leikur við áhugamannalið
Vestur-Þjóðverja. íslendingar
m
•-
Ármonn ogJR hlutu
flesta drengjameist.
Drengjameistaramóti ísl. lauk á
Laugardalsvellinum á laugardag.
Keppnin var jöfn í flestum grein-
um og eitt sveinamet varð sett,
Elías Sveinsson, ÍR sem varð
annar í 200 m. grindahlaupi
hljóp á 29,0 sek., sem er sveina-
met.
Ármann og ÍR hlutu jafnmarga
og flesta drengjameistara eða 6
hvort félag.
Hér eru helztu úrslit:
400 M. HLAUP:
Rúdolf Adolfsson, Á, 54,4 sek.,
Ólafur Þorsteinsson, KR, 55,1 sek.
Ævar Guðmundsstn, 57,8 sek.
Jafet Ólafsson, Á, 59,8.
1500 M. HLAUP:
Ólafur Þorsteinss., KR, 4,47,8 mín
200 M. GRINDAHLAUP:
Rúdolf Adolfsson, Á, 28,9 sek.
Elías Sveinsson, ÍR, 29,0 sv. met.
Hróðmar Helgason, Á, 29,0.
Ólafur Þorsteinsson, KR, 31,8.
110 m. GRINDAHLAUP:
Hróðmar Helgason, Á, 16,8 sek.
Finnbj. Finnbjörnsson, ÍR, 16,9.
Snorri Ásgeirsson, ÍR, 17,2
STANGARSTÖKK:
Elías Sveinsson, ÍR, 3,00 m.
ÞRÍSTÖKK:
Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, 13,31
m.
Hróðmar Helgason, Á, 12,7Ó m.
Finnbj. Finnbjörnsson, ÍR, 12,51
m.
Einar Þórhallsson, KR, 12,27 m.
KRINGLUKAST:
Magnús Þ. Þórðarson, KR, 37,29
m.
Guðni Sigfússon, Á, 37,01 m.
Halldór Valdimarsson, HSÞ,
36,83 m.
Snorri Ásgeirsson, ÍR, 34,33 m.
SPJÓTKAST:
Stefán Jóhannsson, Á, 49,29 m.
Finnbj. Finnbjörnsson, ÍR,
48,41 m.
Halldór Valdimarsson, HSÞ,
44,14 m.
Rúdolf Adolfsson, Á, 43,06 m.
NM unglinga í
knattspyrnu
hefstíRvík8.júlí|
Norðurlandamót unglinga í(|
knattspyrnu hefst í Reykjavík i1
8. júlí næstkomandi, en öll1J
Norðurlöndta ásamt Pólverj-"
dum taka þátt í móti þessu.
Fyrsti leikur mótsins verður
mill'i Finna og íslands í
11 Reykjavík og sama dag leika
< | Dan'ir og Svíar í Keflavík. 10.
lí leika Norðmenn og ís-
lendingar í Reykjavík og Pól
verjar og Danir, einnig í Rvík. i1
Föstudaginn 12. júlí leika Finn1J
?.r og Norðmenn í Keflavík og
Svíar og Pólverjar í Reykja- 4
rík. Laugardaginn 13. júlí fer<'
fram leikur um 3. og 4. sætij(
í Reykjavík, leikur um 5. og(>
5. sæti í Keflavík og loks úr- l *
ditalelkurinn í Reykjavík. jj
2. júlí 1968 -
ALÞYÐUBLAOIÐ %%