Alþýðublaðið - 02.07.1968, Blaðsíða 16
í:U lz\J~
í Árbæjarsafni
Uppí Árbæjarsafni
oft hef ég sötrað úr krús,
þar er allt þakið í munum
og þar heitir Dillonshús.
Og dælt er í Dillonshúsi
að doka svolítíð við.
Ekki er amalcgt kaffið!
Ellegar kvemfólkið!
Og hérna uppmeð ánum
unir margur sér.
Ingvar Árbæjarvörður
veit allt, sem talaS er hér.
Lómur.
Þnrlíðþér
sérstfikðekk
fyrir H-UMFERD ?
Kei.aðeins géé.
Gerum fIjótt og vel við hvaða dekk sem er,
seljum GENERAL dekk.
hjólbarðinn hf, ,
Löugavegi 178 * sími 35260
Þeir virðast vera furðu líkir
Kristján Eldjárn og de Gaulle.
Báðir vinna þeir yfirburðasigur
á sama degi....
Hvort skyldi nú vera varið
stærri upphæðum til að bjarga
mannslífum eða til að útrýma
Þeim?
^msssm,3
tK i . .
SÍMI
vo , || n m mw
dag egi lIMlLstur
Allt tilstand á enda
NÚ er að koma sá tími ársins sem er afskaplega leiðinlegur,
allír fridagar búnir, allt tilstand og meira að segja kosningarn-
ar. Nú er ekki heldur hægt að eyða tímanum í að hlaupa fram
og aftur um bæinn lafmóður í sambandi við þær.
Annars hefur þetta verið óvenjugott ár í þessu tilliti. Fyrir
utan jól, páska, hvítasunnu og 17. júni, höfum við haft bæði'
H-umferðarbreytinguna og forsetakosningar okkur til dægra-
styítingar. Það hefur því alltaf verið nóg að hugsa um, talfæri
spekinganna hafa féngið að mala þindarlaust, og nærri því hver
einasti maður hefur verið important.
En nú er öllu þessu lokið, og meira að segja kosninganóttin
sveikst um að vera spennandi. Framundan eru nú bara venju-
legir vinnudagar og venjulegar helgar. Það er meira að segja
ekki hægt að bölsótast yfir isíldarleysi og stytta sér stundir með
þeim hætti af þeirri hvimleiðu ástæðu að það er ekki verið
iað bíða ©ftir síldinmi, heldur bíður síldin eftir skipuiram. Og
hafís fyrir norðan og kalskellur á túnum eru orðin gersam-
lega útþvæld umræðuefni. Að vísu er fram undan landsleikur
í knattspyrnu, en landsleikir taka stuttan tíma og endast
skammt sem dægrastytting nema við séum að keppa við Dani
og töpum meði 14:2 eða meira.
Þegar svo er komið eru góð ráð dýr, því eins og allir vita
skiptir megin máli hvernig liggur á fólki. Og til þess að það
liggi vel á því þarf það að hafa eitthvað til að vasast í. Fyrir
því þyrfti að finna upp á einhverju veseni við og við í sumar,
helzt einu sinni í mánuði. Annars er hætt við að illa fari um
andlega heilsu manna.
En hvað á það að vera?
Setja mætti nefnd í málið sem ætti upp á kaup sem greitt
væri samkvæmt uppmælingaríaxta múrára að finna eitthvað
upp nógu spennandi. Hún gæti látið sér detta í hug að setja
upp alþjóðlega fegurðarsamkeppni, ellegar eyða stórfé í að
kenna fólki að gera eiíthvað öfugt við það sem það er vant
að gera. I því sambandi mætti nefna þann möguleika að Iáta
fólk fara að heilsast með vinstri hendinni. Ur því allir eru faralr |
að víkja til hægri er eðlilegt að menn heilsi meö vinstrí. Þó
nokkuð margir gætu felngið vinnu við þessa breytingu, og ef
vel tækist til um undirbúning og áróður fengi maður fcannski
þriðju vökunóttina. Fyrst var, sko, H-umferðarnóttin, svo
kosninganóttina og þá þessi.
Það er annars merkilegt í þessu sambandi hve vökunætur
skipta miklu máli í mannlifinu. Að hugsa sér hvað það eru
merkilegir hlutir sem menn vaka út af heila nótt, jafnvel án
þess að vera á kvennafari eða fylliríi.
GÖTU-GVENDUR.
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík
Hin árlega skemmtiferð félagsins v'erður farin miðvikudaginn 3. júlí
og verður að þessu sinni tveggja daga ferð. Fólk er beðið um að til-
kynna þátttöku sína mánudagskvöl d. Nánari oipplýsingar eru veittar í
simum:
1-24-96 (Kristbjörg Eggertsdóttir). 1-43-13 (Katrín Kjartansdóttir).
1-04-88 (Aldís Kristjánsdóttir).