Alþýðublaðið - 11.07.1968, Side 10
Nýtt satn-
hús á Akran.
Fyrir fundi bæjarstjórnar
Akraness 12. júlí sl. lágu til-
löguteikningar og uppdrættir að
nýju safnhúsi fyrir byggða- og
listasafn á Akranesi, er Ormar
Þ. Guðmundsson, arkitekt, hef-
ur unnið á vegum stjórnar
Byggðasafns Akraness.
Hinu væntanlega safnkúsi er
fyrirhuigaður. staður á svæðinu
við Garða, skammt frá núver-
andi byggðasafni, en í hintu nýja
aðalskipuiagi fyrir Akranes er
<gert ráð fyrir að á þessu svæði
verði reistar ýmsar opinberar
byggingar it.d. kirkja, skólar o.
fl.
Neil Fuller, og gaf hann okkur
þær upplýsingar, að þessi vél
væri í eigu kanadísks flugfélags,
Væri hún sérstaklega útbúin til
myndatöku úr háloftum. Hingað
kom vélin frá' Grænlandi, þar
sem hún tekur loftmyndir fyrir
danskt námufélag. Kvað flug-
stjórinn þá hafa komið til Reykja
víkur til að láta framkalla nokkr-
ar filmur.
Aðspurður sagði hann, að þessi
vél hefði verið smíðuð í lok
stríðsins og aldrei .verið notuð
til loftárása. Ilann sagði, að enn
væru til nokkrar slíkar vélar í
Ameríku, einkum S.-Ameríku.
Neil Fuller sagðist hafa verið
flugmaður í 27 ár. I heimsstyrj-
öldinni hefði hann samt ekki flog
ið vélum af þessari tegund, held-
ur brezkum flugvélum. Hann
kvað þá mundu fara aftur til
Grænlands upp úr hádegi í dag.
Orðsending frá F.Í.B.
Krómmerki féliagsins eru komin.
(Birgðir takmarkaðar).
Þeir sem eiga pöntuð félagsmerki, gjörið svo vel og
sæki þau sem fyrst á skrifstofu félagsins, Eiriksgötu 5.
Félag- íslenzkra bifreiðaeigenda.
Haföminn búin
að fá 1250 tonn
Stjórnarskipti
Framhald af bls. 1.
sérstaklega á vandræðaástandið,
sem skapaðist í maí og júní, og
' segir, að fransika þjóðin hafi
sjálf í kosningunum fellt sinn
dóm yfir því starfi. Að loicum
fullvissar de Gaulle Pompidou
um, að hann vilji gjarna halda
hinum nánu tengslum og Pom-
pidou muni taka að sér veiga-
mikil verk í framtíðinni.
Bréf Pompidöus ör hins vegar
mjög einfalt. Hann segir, að for-
setinn hafi tilkynnt sér þá á-
kvörðun, að skipta um ríkisstjórn
á fyrsta fundi hins nýkjörna
þings og í samræmi við það og
stjórnarskrána leggi hann fram
lausnarbeiðni sina og stjórnar
sinnar.
Aðilar, er standa de Gaullé
nærri, benda á, að orð forsetans
um dóm fólksins megi túlka sem
hugsanlegan möguleika á að
Pompidou verði einhvern tíma
forseti Frakklands. Sömú aðilar
fara varlega í að túlka orð de
Gaulles sem kurteisisorð eint.óm.
Á lokuðum fundj þingmanna
gaullista er sagt, að Pompidou
hafi reynt að lægja tilfinningar
stuðningsmanna sinna. Hann
sagði, að de Gaulle hefði sjálfur
tekið ákvörðunina um að láta sig
fara frá forsætisráðherraembætt-
inu, en hann lagði áherzlu á, að
ekki mætti gagnrýna forsetann
fyrir þetta, því að með því að
gera það, sköðuðu þeir ekki að-
Sfe
eins hann, heldur einnig sjálfa
sig.
Þingmennirnir sýndu hins veg-
ar óánægju sína með ákvörðun
de Gaulles með því að kjósa
Pompidou heiðursfprseta þing-
flokksins. Þá greiddu 79 þing-
menn Roger Souchul, sem opin-
berlega hefur gagnrýnt de Gaul-
le, atkvæði sem formanni þing-
flokksins, þrátt fyrir beiðni Pom
pidou, en hins vegar fékk Henri
Rey, ráðherra, 135 atkvæði og
var þannig valinn formaður.
Kosygin
heimsækir
Sviþjóö
STOKKHÓLMI, 10. júlí. —
Aleksei Kosygin, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, kemur á
morgun í þriggja dtaga opinbera
iheimsókn til Svíþjóðar. Þetta er
í fyrsta sinn, sem. éinn <af æðstu
mönnum í Kreml kemur til
Svíþjóðar síðan Nikita Krústjov
var þar á ferð 1964. í för með
Kosygin verður dótitir hans, frú
Ludmilla Alekseijeva.
Tage Erlander, forsætisráð-
herra, og átta aðrir ráðherr-
ar þ. á m. Nillsison, utan-
ríkisráðherria, taka á móti
Kosygin á Arlanda-flugvelli.
MARGIR Reykvíkingar ráku
upp stór augu í gær, þegar þeir
sáu allsérkennilega flugvél fram-
an við Loftleiðahótelið á Reykja-
víkurflugvelli. Var þar komin
sprengjuflugvél af gerðinni Bo-
eing, kunnarj undir nafninu B17,
'en sitík „fljúgandi virki“ áttu einn
mestan þátt í loftárásum banda-
manna á herstöðvar Þjóðverja í
síðustu hgimsstyrjöld. Munu
margir sjónvarpsáhorfendur, sem
fylgdust með þættinum „12 o’-
clock high” í Keflavíkursjónvarp-
inu á sinum tíma, hafa kannast
við þessa sprengjuflugvél, en í
þeim þætti var einmitt fjallað
um loftárásir úr slíkum flug-
virkjum á þýzk skotmörk.
Við-náðum tali af flugstjóran-
um, sem er kanadískur og heitir
„FUÚGANDI VIRKI“
Á RVÍKURFLUGVELLI
SPOCK VAR DÆMDUR í
2JA ÁRA FANGELSI
BOSTON, 10. júlí. — Hlnn
frægi, ameríski barnalæknir
Benjamin Spock var í dag
dæmdur í tveggja ára fangelsi
og 5000 dollara sekt fyrir að
n/t/
innuu^urs^^o
s32s.
u
hafa hvatt aðra til að neita að
gegna herþjónustu. Með hinum
65 ára gamla lækni voru þrír
aðrír menn dæmdir í sömu
refsingu fyrir sama afbrot,
þeirra á meðal prestur við Yale-
háskóla. Dr. Spock og félagar
hans tilkynntu, að þeir mundu
áfrýja dómunum til hæstaréttar
Bandaríkjanna, ef þörf krefði
sem lið í baráttu sinni gegn
stríðinu í Vietnam.
«10 11. júlí 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Þrjú síldarflutningaskip eru nú ýmist á leiðinni á síldarmiðin
eða kom’in þangað. Haförninn er á miðunum, og samkvæmt skeyti,
sem Síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði barst í gær hefur
hann nú tekið á móti 1250 tonnum af síld, en engin veiði var í
gær, og samkvæmt veðurspánni er nú bræla á miðunum og varla
von um veiði.
• Við náðum í gær tali af Sig-
urði Jónssyni, framkvæmda-
stjór-a Síldarverksmiðja ríkisins
á Siglufirði. Sagði hann að í
fyrrgreindu skeyti hefði það
komið fram, að Haförninn væri
nú staddur á 77. gráðu norður-
breiddar og 10 gráðu austur-
lengdar. Hafði flutningaskipinu
ekki borizt neinar fréttir af veiði
aðfaranótt miðvikudags, og væri
ekki gott útlit fyrír veiði, þar
sem spáð væri 5—6 vindstigum
á þessum slóðum í dag.
Haförninn mun bíða á miðun-
um, þar til hann fær fullfermi
eða 3300 tonn. Þá sagði Sigurð-
ur, að norska tankskipið, sem
Síldarverksmiðjur ríkisins hafa
tekið á leigu í 3 mánuði, hafi
lagt af stað frá Siglufirði í fyrri
nótt áleiðis á miðin. Skipið heit-
ir Nordgard og er leig'c með á-
höfn. Burðarþol þess er 4200
tonn. Skpið kom við á Siglu-
firði á leið frá Reykjavík, þar
sem settar voru í það dælur, lyft-
ur og löndunartæki. Ætlunin er,
að þessi tvö skip landi síld á
Siglufirði og Seyðisfirði í sum-
ar. Engin síld hefur enn borizt
til Siglufjarðar.
Þriðja skipið, sem verður í
síldarflutningum í sumar, er nú
á leið á miðin. Er það Síldin,
skip Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjunnar h.f, í Reykjavík. Mun
aflinn, sem Síldin tekur við flutt
ur til Reykjavíkur og bræddur
þar.