Alþýðublaðið - 04.08.1968, Page 10

Alþýðublaðið - 04.08.1968, Page 10
■ « I I 1 4 <| 99 PÁFINN OG PILLAN ÍC Fróðleg viðhorf katólskra presta Hirðisbréf Páls páfa, sem staðfestir bann kaþólsku kirkj. unnar við getnaðarvörnum, hefur valdið honum „kvölum og þjáningum“, eins og hann sagði nýlega. Mun bréfið einnig verða honum álitshnekkir og valda því, að fylgismönnum kaþólsku kirkjunnar fækkar? Martin Drouzy, sem er dóm. inikaprestur í Kaupmannahöfn telur, að margir kaþólskir leikmenn muni ekki vilja sætta sig við sjónarmið páfans. Einnig telur hann, að umburðarbréfið muni valda miklum álitsgreiningi. — Það hlýtur að vera kom- ið undir hinum einstöku fjöl- skyldum sjálfum, á hvern hátt þær ráða fram úr getnaðar- varnarvandamálum sínum. Sem stendur er mjög erfitt að fá kaþólska presta í Dan- mörku til að segja neitt á- kveðið um hirðisbréf páfans. Séra Ymans í Hróarskeldu seg- ir: Enn hef ég ekki lesið það, sem páfinn skrifaði óg þekki það aðeins af þeim útdráttum, sem ég hef lesið. Ég hlakka til að lesa það í heilu lagi. Það væri ekki rétt að segja neitt ákveðið um það, áður en ég hef lesið það. En að sjálfsögðu vissi ég fyrir fram, hver skoð- un páfa yrði. — Þér eruð á’ móti takmörk- unum barneigna eins og páfi? — Páfinn er ekki andvígur takmörkunum barneigna í, öll- um myndum. □ Mun bíða átekta og sjá hvað vísindin leiða í ijós. Séra Urban Figge í Kaup- mannahöfn þekkir hirðisbréf páfans einnig aðeins af útdrátt- um. Þar af leiðandi vill hann heldur ekki láta í Ijósi ein- dregnar skoðanir sínar eins og sakir standa. — En samt bein spurning: — Eruð þér á' móti notkun getnaðarvarnarpillunnar? — Skoðun mín er sú, að enn hafi ekki fengizt nægileg reynsla fyrir pillunni til að hægt sé að taka hana góða og gilda. Enda er þetta álit margra lækna. — Ef í ljós kemur, að hún er nægilega góð? — Svo framarlega sem hún býður engum hættum heim, mun ég yfirvega afstöðu mína rækilega. En ég er sömu skoð- unar og páfinn. — Eru orð páfa yður mikil- vægari, en eigin samvizka yð- ur? — Að sjálfsögðu á einnig að fara eftir samvizku sinni. Það hefur komið fyrir, að kaþólskir prestar hafa ekki farið eftir op- inberum kennisetningum kaþ- ólsku kirkjunnar, er samvizka þeirra bauð svo, segir séra Figge að lokum. Séra Völk í Óðinsvéum segir: — Enn hef ég ekki fengið í hendur bréfið eins og það er Áskoruti frá Áfengisvarnarnefnd: Sýnið sanna ferðamenningu VERZLUNARMANNAHELG- IN er mesta ferðahelgi ársins, þá þjóta eftir þjóðvegunum fylkiragar bifreiða í endalaus- um röðum, þétt skipaðar kon- um og körlum, ungum og göml um. Þúsundum saman þyrpist fólkið í allar áttllr, úr borg og bæ, í leit að hvíld og ró, frá önn og erli hversdagsins. í slíkri umferð, einmitt um þessa helgi sem nú er fram- undan og reynslan hefir sýnt •óg sannað, að eykst ár frá ári ber eitt boðorð öðru hærra: öryggi. En að boðorð sé í heiðri haft, getur gætnin ein tryggt. Það eru þeim ömurlegar lykt ir hvílilar- og frídaga, slam vegná óaðgæzlu, verða valdir að slysi á sjálfum sér, ástvin- um sínum, kunhingjum eða samferðafólki. Sá sem í þær 10 4. ágúst 1968 - ALÞÝÐÖBLAÐI0 raunir ratar verður aldrei samur og jafn. Einn mestur bölvaldur í þjóðfélagi nútímans, er áfeng- isneyzlan, ekki hvað sízt með tilliti til margþættrar og sí- aukinnar vélvæðingad, á æ fleiri sviðum, og þá ein- mitt ekki hvað sízt í hinrvl vaxandi umferð og þá allra helzt á itylli- og frídögum, svo sem um helgi verzlunarmanna. Það er dæmigert ábyrgðar- leysf að setjast að bílstýri und ir áhrifum áfengis, en í há- marki stendur slíkt ábyrgðar- leysi á slíkum tylli- og frídög- um sem verzlunarmannahelgin er, þegar allir vegir eru krökk- ir af vélknúnum farartækjum. Þá er sannarlega allrar at- hygJi þörf. Minnstu áfengisáhrif geta i Frámhald á 13. síðu Páfinn: Það var Herrann en ekki ég dönsku blaði), 'fgþt orðrétt. Sjálft vandamálið er orðið mjög málum blandið — einkum í fréttunum erlendis. Of mörgum hlutum hefur ver- ið ruglað saman. — Hvað teljið þér sjálfur um pilluna? — Að bíða skuli útkomunn- ar úr hinum læknisfræðilegu rannsóknum, sem enn er langt 4 frá því að vera lokið. Séra Franz Lanser, 'Kaup- mannahöfn, vill einnig lesa hirðisbréfið orðrótt, áður en hann segir hug sinn. — Eruð þér á móti takmörk- un barneigna? — Þetta er allt of breiður grundvöllur til að hægt sé að svara í stuttu máli! — Eruð þér á móti pillunni? — Svo lengi sem læknis- menntað fólk er ekki á’ einu máli um þau áhrif, sem pillan kann að hafa, get ég heldur ekki verið henni hlynntur. sem sagði: „L /íið börnunum aS koma til mín’’ (Skopmynd úr □ Páfinn liefur alltaf rétt fyrir sér! Séra Oppermann í Óðinsvé- um, segir: — Enn hef ég aðeins séð og heyrt útdrætti úr hirðisbréf- inu. En að sjálfsögðu er ég á sama máli og páfinn. — Án þess að hafa lesið liirð- isbréfið eins og það leggur sig? — Þannig verður það alltaf að vera. Þegar páfinn hefur tekíð ákvörðun er til þess ætl- ázt, að ég fari eftir henni. Að því er ég bezt fæ séð, hefur hirðisbréf páfans kveðið skil- merkilega á um það, sem allt of lengi hefur verið óljóst. — Yðar eigin samvizka? — Samvizka mín býður mér að hlýða páfanum, sem er æðsta yfirvald kaþólsku kirkj- unnar. Vald hans er bindandi fyrir mig. — Teljið þér, að allir starfs- bræður yðar séu á sama máli og þér? — Þeir eru áreiðanlega til, sem höfðu álitið, að páfinn tækj aðra ákvörðun. Og fyrir þá hlýtur það að vera erfitt að verða allt í einu að beygja sig. En þeir verða! — — Er þá skírlífi eina mögu- lega leiðin til takmörkunar barneigna? — Já, það er nú einmitt það, sem páfinn hefur sagt? — Það eru u.þ.b. 27.000 kaþ- ólikkar í Danmörku. Álítið þér ekki, að hirðisbréf páfans muni valda klofningi hjá þeim? — Nei □ Blöð kaþólskra þögul. „Kaþólskt vikublað kemur út í 3350 eintökum. Ritstjóri þess, Helge Christensen, segir: — Eftir viku kemur út varn- arrit fyrir umboðsbréf páfa. — Munuð þér minnast á það í leiðara? — Nei, það munum við ekki gera. — Teljið þér ekki, að hirðis- bréfið muni skaða álit kaþ- óisku kirkjunnar út á við? — Ef til vill meðal þeirra, sem ekki eru kaþólskir. ■— En mér virðist, að það, sem sagt hefur verið hér í Danmörku hingað til, sé alveg furðulega vægt. — Yðar eigin skoðun? — Páfinn er nú einu sinni páfinn. Og mér finnst eins og honum, að það verði fyrst og fremst að hafa hina þjóð- félagslegu hlið málsins hug- fasta. □ Gömul svör við nýjum vandamálum. Martin Drouzy og Fritz Flor- in, eru ekki hræddir við að verða „bannfærðir”. Sá fyrr- nefndi segir: — Ég held, að þetta vandamál sé ekki svo brýnt. Og við stöndum ekki einir. Að minnsta kosti þrír kardínálar fóru þess á leit við páf- ann, að hann sendi umburðar- bréf sitt ekki út. —■ Þér eruð óánægðir með umburðarbréfið? — Ég álít það mikilvægt. En hér eru gömul svör við nýjum spurningum. Áður fyrr var lak- mörkun barneigna aðeins per- sónuleg ábyrgð íyrir hverja fjölskyldu. Nú er það ábyrgð gagnvart öllum heiminum. — Hvað segir liinn almenni kaþólikki? Kaþólskur maður í nútíma þjóðfélagi einblínir ekki á, hvort yfirlýsing kemur frá páf- anum. Hann lítur á rökin. Og mér virðast rök páfa tiltölulega veik. — Óttist þér klofning? — Já, en ég held, að bréf páfa — eins og svo margt ann- að — muni fljótt falla í gleymsku. Að minnsta kosti mun ég ekki afsala samvizku minni.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.