Alþýðublaðið - 04.08.1968, Page 11

Alþýðublaðið - 04.08.1968, Page 11
Opinber skýrsla, sem tekin var saman með leynd, hefur Ijóstrað upp í smáatriðum um fjögurra ára baráttu Fullveldisnefndar Mississippiríkis til að hrjá og koma óorði á mannréttindahreyfinguna í ríkinu, að því er segir í The New York Times. Skýrslan sýnir fram á leyni- lega andstöðu Mississippis við kynþátta-krossferðir, eins og t. d'. ,,Frelsissumarið” árið 1964, hina pólitísku áskorun Demókratíska frelsisflokksins, og gönguför James Merediths 19*66. Þátttakendur í aðgerðum gegn kynþáttamisrétti voru oft kærð- ir, af ónafngreindum aðilum, fyrir að vera kommúnistar. — Negrar voru hvattir til að fara eitthvað annað. Heilt njósnakerfi sá embættismönnum fyrir upp- lýsingum um fyrirætlanir and- stæðinga kynþáttamisréttis. Skýrsla Fullveldisnefndarinn- ar, sem nær til baráttunnar gegn „fjandmönnum ríkisins og undirróðursmönnum” frá 1964 til ársloka 1967, var í nóvember sl. búin til dreifingar sem trún- aðarmál til helztu embættis- manna ríkisins og vissra trúverð- ugra þingmanna. Blaðið skýrir frá því, að ein- tök af skýrslunni hafi fyrir skömmu fengizt í Atlanta og New York. Skýrslan sýnir tugi leynilegra aðgerða til að drepa á dreif að- gerðum svertingja. Til dæmis má geta þess, að 1964 heimsóttu leynilögreglu- menn nefndarinnar hverja ein- ustu af 82 sýslum ríkisins til að gefa hugmynd um, hvernig sýslumenn skyldu „bregðast með beztum árangri við væntanlegri innrás stúdenta,” er hugðust taka þátt í kynþáttaaðgerðum þá um sumarið. Hafði stofnunin útbúið útdrátt úr lögum ríkisins, sem hundruð mótmælamanna voru síðan hand- tekin samkvæmt af löggæzlu- mönnum ríkisins. Dómstólar ó- giltu síðan fjöldan allan af hand- tökum þessum. Nefndin kom sér upp njósn- urum til að fá upplýsingar um fyrjrætlanir Council of Federat ed Organization, samstarfsnefnd- ar, er stofnuð var til að gangast fyrir mannréttinda-aðgerðum í ríkinu þá um sumarið. „Við vissum fyrirfram hvar þeir fetúdentarrt'r) mundu slá sér niður og mikið af fyrirætl-* unum þeirra og aðferðum,” segir í skýrslunni. „Þessar upplýsing- ar bárust löggæzlumönnum í rík- inu ..... Þrír stúdentanna voru drepnir 21. júní 1964 nálægt Philadelph- ia í Mississippi. Einn hinna hvítu manna, sem síðar voru fundnir sekir um þátt- töku í samsærinu, var Cecil R. Price, 29 ára gamall aðal-vara- sýslumaður í Neshoba-sýslu. Vitni sögðu, að Price hefði fundið ung- linga og fengið þá öðrum til af- töku. Fullveldisnefndin var stofnuð af ríkisþingi Mississippi árið 1956. Henni var fengin veruleg fjárveiting og óvenjulega víð- tækt umboð til að þjóna sem ,,viarðhundur M'ississipi í að- skilnaðarmálum.” í fyrstir var hún notuð, sem krani fyrir fjárhagsaðstoð rík- isins við Hvítra borgara nefnd- irnar, en eftir því sem starf- semi hennar varð margslungn- ari dró úr samskiptum hennar við harða aðskilnaðarmenn og fram komu kröfur um að leggja stofnunina niður. Ríkisstjórinn er officio formað- ur nefndarinnar, og hann, ásamt vara-ríkisstjóra og forseta full- trúadeildar ríkisþingsins, skipar nefndarmenn. Nefndin velur sér svo fram- kvæmdastjóra. Upp á siðkastið hefur nefndin að auki haft sex manna starfslið, þar af þrjá leynilögreglumenn í fullu starfi. Framhald á 14. síðu. Alltaf er að koma til átaka milli ísraelskra hermanna og meS- lima Ei Fatah-skæruliða Araba. Þessi mynd var tekin fyrir skönmm. er ísraelskir hermenn höfðu nýdrepið 13 El Fatahmenn og sjást tveir þeirra hér. Bók gefin út í tilefni Landbúnaðarsýningarinnar: Bættir eru bænda hættir" Tveir ungir framtaksamir men» Óskar Lárusson og Örn Johnson, gefa út nýja bók um íslenzkan landbúnað í tilefni Landbúnað .arslýningarínnar, sem hefst í Örn Johnson og Oskar Lárusson með nýju bókina. Reykjavík innan skamms. Bók- in nefnist Bættir eru bænda hættir og er hin veglegasta. Bók in er skrifuð af 28 þjóðkunnum mönnum, sem draga fram á skemmtilegan hátt helztu at- riði í sögu og þróun íslenzks landbúnaðar. í upplýsingabæklingi, sem fylgir bókinni segir: „Baattir eru bænda hættir er gefin út til heiðurs íslenzkri bændastétt og kemur út á Liandbún'aðarsýning unni 1968, sem hefst 9. ágúst. Bókin er mjög fjölbreytt að efni og skemmtileg aflesitrar. Hafa hinir 28 liöfundar lagt mikla vinnu í 'að aflá heimiilda og vandað frágang greina sinna. Bókin ler prentuð á þykk an og góðan pappír og bókband er mjög vandað”. Bókin er prentuð í tveimur litum þar sem teikningar eftir Halldór Pótursson listmátora, sem prýða bókina, eru prenteðar í öðrum lit en megintextinn. Um útlit bókiarinnar og umbrot sá Ástmar Ólafsson og teiknaði hann einnig káputeikningu. — Bókin er sett í Prentsmiðju Guðmundar Benediktssonar, en prentuð hjá Grafík h.f. Hún er innbundin hjá Bókbindaranum h.f. — Allir höfundar bókarinn- ar eru landskunnir hver á sinu sviði, en allir eiga þeir það sam- merkt' að kunna glögg skil á þeim málaflokkum, sem til með- ferðar eru teknir í bókinni. „Bættir eru bændahættir” verður til sölu á Landbúnaðar- sýningunni í íþróttahúsinu í Laugardal sýningardagana og kostar þar 470,00 krónur. Aulc þess verður bókin seld á sama verði í gegnum búnaðarfélögin í einstökum hreppum úti um landið. Þá verður hún einnig fáanleg í bókaverzlunum, en verður þar nokkuð dýrari og mun kosta 537,50 kr. Útgefendur bókarinnar verða með sérstaka sýningardeild á Landbúnaðarsýningunni, sem verður baðstofa. Þór Magnús- son fornl.fræðingur mun fylgj- ast með uppsetningu baðstof- unnar. — Stúlkur klæddar ís- lenzka þjóðbúninginum munu selja bókina í baðstofunni og auk þess gefa sýningargestum upplýsingar um einstaka hluti j. baðstofunni. SkýrsEa sýnir hvernig 4. ágúst 1968 - ALÞYÐUBLAÐJÐ %%

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.