Alþýðublaðið - 21.08.1968, Blaðsíða 10
Framhald af bls. 7.
og þ>á oftast illa.
Skömmu eftir að ég hafði
ásamt félaga mínum komið í hót-
elið vorum við sóttir til bústaðar
landsstjórans. Var mér tekið sem
gömlum kunningja og ég kynntur
fyrir ýmsum leiðandi mönnum
héraðsinns.
Staðgengill hans, herra Cherif
d'Ouzzane Moulay Driss, ók síð-
an með okkur um borgina og
umhverfið. Skoðuðum við fyrst
fagra höll byggða fislétta og
nærri svífandi, en bygging þessi
er nú tækniskóli, sem rekinn er
undir ítalskri stjórn og með
nokkrum tilstyrk frá Ítalíu. Síð-
an litum við inn í stóru moskuna
svo nefndu, en þetta guðshús
Múhameðstrúarmanna er talið
svo heilagt, að aðeins Moslem-
trúaðir.mega stíga þar fæti eftir
að hafa þvegið sér um hendur,
andlit Og fætur samkvæmt ná-
kvemum fyrirmælum kóransins.
Ekið var í norðaustur úr borg-
inni að Malabata-nesinu, en það-
an er gott útsýni yfir víkina,
sem Tanger liggur við, svo og
yfir sundið til Gibraltar og Alg-
eciras. Landið allt er hæðótt, og
skiptast á grasi grónar brekkur
og pálmalundir, þar sem naut-
gripir, kindur og hestar eru á
beit, en kameldýr 9áum við eng-
in þar.í norðvestri frá Tanger
er allbrött klettaströnd og mjóir
sandar. Dvöl þar getur verið
hættuleg vegna þess að brimið
af öldum Atlanzhafs skellur
stundum á óvænt og af ógurlegu
afli, og er fátt um mannaferðir
þgr. í nánd við Spartel-nesið
fórum við í klettahelli, sem
líkist kirkjuhvelfingum. Staður-
inn er kenndur við Herkúles og
hafa þar verið höggnir myllu-
steinar frá fornri tíð, og sést
þess enn merki. - Er við fengurn
okkur mint-te á frægu Frakk-
landstorgi í miðbænum, kom að
alskeggjaður öldungur, sem
burstaði skóna okkar á meðan
og fékk fimmkall fyrir, en þetta
þykja konungleg laun.
Þegar við stutta dvöl verð
ur sunaum gestum ljóst, að
þetta þjóðfélag hlýtur að vera
laust við ýms þau vandamól
samlífs, sem virðast ræna oKk
ur svefnfriði:
Búðir eru opnar fram undir
imiðnætti, allt eftir því sem
eigendum þeirra þyfcir henta
bezt- engra reglna sýnist vera
þörf. Mætti taka þessu sem
idæmi um frjálst framtak.
Böm leika sér mörg úti við
fram á nótt og virðist ekki
verða meint af.
Erlendum gestum er af orð
fimum Aröbum ekki aðeins
boðið ,upp á leiðsögn um borg
ina, heldur umbúðalaust einnig
upp á miðlun félagsskapar til
að iðka gleði af ólíkustu tagi,
jafnvel endurgjaldslaust ef
trúa má silíkum tilboðum. Ann
ars ganga konur margar enn-
þá með slæður, en unga kyn-
slóðin er þar eins og í flestum
löndum mun frjálslegri.
Járnbraut liggur frá Tanger
suður í landið, en svo kynlega
ber við, að aðeins ein lest fer
á sólarhriing, kl. 3 eftir há-
degi, en til syðstu járnbrautar
stöðvar eru tæpar 1000 km.
Þar sem frétzt hafði, að ég
hefði litfilmur meðferðis frá
íslandi, bauð herra d'Ouazz-
ane yfir tuttugu leiðandi
mönnum -úr héraðinu heim til
sín næsta kvöld. Býr hann á
33’ LOW13CY MOOEL K0.TCX4CTT
RCA VttíTOR ífífi i*io«
Hiiin vinss&Iiu RCA sjónvarpstæíki
fyrMiggjandi í mörguim gerðum.
Vönduð — stílhrein.
— 2ja ára ábyrgð.
Allar nánari fupplýsingar veitir
R.C.A umboðið.
Georg Ámundason & Co.
Laugjavegi 92 — Sími 15485.
21. ágóst l96»! - AÍÞÝBU8LAÐIÐ
herrasetri í gömlum spönsk-
um stíl ofar snarbrattri kletta
strönd með fallegt útsýni yfir
hafið og Arababorgina gömlu.
Salurinn var mjór og langur,
prýddur dýrmætum teppuin á
gólfi og veggjum, og sátu gest
irnir á lágum bekkjum. Boðið
var upp á mint-te og kökur.
Sem kunnugt er, er algjörlega
óþekkt að neyta áfengis með
Arabaþjóðum, sem þó kunna
að vera glaðir og njóta, lífsins.
Þar sem sýningarmanni tókst
ekki að láta tal myndarinnar
heyrast, varð ég að skýra helztu
atriði þess, sem fyrir augu
bar, og var góður rómur gerð
ur að þessari landkynningu.
Mér til undrunar var ég spurð
ur, hvað eldfjaUinu nýja, hon
um Surti, liði, og mér tjáð, að
sjónvarpinu þar í landi væri
akkur í að fá kvikmynd af
Surtsey. — Læt ég hér nöfn
og störf nokfcurra þeirra
fylgja, sem sóttu boðið —
þeim mun örugglega þykja
heiður að fá að sjá nöfn sín í
íslenzku dagblaði:
Cherif d‘ Ouazzane Moulay
Driss, gestgjafi, Cav. Uff. Lor
enzo Zoccola, forstjóri inn-
fcaupastofnunar, sem sýndi
filmurnar frá íslandi, Abdes-
lem Ouazzani, aðalfjárhirðir
Tanger héraðs, Mustafa Ab-
dellah, fylfcisumboðsmaður upp
lýsingamálaráðuneytisins, Fou
ad Benzekri, einkaritari land-
stjérans í Tanger, Bertault
Raymond, aðalsaksóknari í
Tanger, Cherif d‘ Ouazzane Mo
hammed Aziz, forstjóri út-
varps og sjónvarps í Tanger,
Rekionak Mokhter, forseti
löggjafarsamkundu Tanger-
fylkisins, Hazzan Saidi, aðal-
fjárhaldsmaður borgarráðsins,
Francisque Girard-Saint Rei-
my, skólastjóri, Belhoussim
Drissi, formaður fornminja-
safnsins i Norður Marokko,
Paul Vauquier, ritari forn-
fræðifélagsins, Tatari Moham-
ed, formaður verzlunarráðsins,
Alaout Ismaili Abdenahman,
borgarráðsmaður.
Síðasta dag fékk ég mér bað
í sjónum. Ströndin glampar í
sólinnd, hún er slétt, sandur
inn örfínn. Verðir gæta bess,
að fólk fari um ströndina að-
eins í sundfötum og hefi ég
hvergi orðið var við jafn mik
ið hreinlæti og reglusemi. Að
vísu voru ekki enn komnir
margir gestir á staðinn, sjór-
inn mældist 20 stiga heitur,
en það þykir þar um slóðir
kalt, í endaðan júni er ferða-
mannastraumur varla byrjað
ur. Var mér hugsað til bað-
strandar við Torremolinos ná
lægt Malaga, þar sem aðeins
örfáir gestir synda — þeim
er heldur ekki ljóst, að skolp
ið frá þorpum og hóteium er
látið renna í sjóinn. Var mér
brátt orðið Ijóst, af hverju hó
tetín á Spáni auglýsa eigin
útisundlaugar, þótt þau iiggi
fast við sjávarströndina.
Þeir ferðamenn, sem gista
Spán á vegum ferðaskrifetofu,
og búa £ reynd i einskonar ný-
lendum, komast Mtið ! snert-
ingu vdð óbreytta Spánverja.
Það er sem ósýnilegu-r veggur
aðskilji þá frá þelm. höv.
Göfubardagar
í Vestur - Berlín
í Berlín kom fyrir skömmu til átaka milli kröfugöngumanna úr
þýzka þjóðernissinnaflokknum NPD) og Vestur-Berlínarbúa sem
andvígir eru nazistum. Átökin brutnst út þegar kröfuganga þjóð-
ernissinna varð fyrir áreitni af hálfu andstæðinga þeirra en þjóð
emissinnar voru að mimuist þess að sjö ár voru liðin frá því að
Berlínarmúrinn var byggður.
Þjóðernissinnar báru kröfuspjöld sem á var letrað m.a.s
„Þýskaland fyrir Þjóðverja“, „Betur dauðir en raúðir“ og
„Bonn hefur brugðizt — von okkar er NPD“.
Bifreiðaeigendur athugið
Ljósastiiilingar og allar aHmiennar bifreiða-
viðgerðir.
BIFREIÐAVERKSTÆÐI N. K. SVANE
Skeifan 5. — Sími 34362.
Auglýsingasíminn er 14900