Alþýðublaðið - 25.08.1968, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 25.08.1968, Blaðsíða 1
\ Sunnudagur 25. ágúst 1968 — 49- árg. 166. tbl- 10 AÐVORUN- ARKERFIÐ BRÁST! Danski varnarmálaráðherr-- ann Erik Ninn-Hansen hefur látið hefja athugun á viðvörun arkerfi danska hersins vegna þess, að fimm klukkustundir liðu frá því innrásin var gerð í Tékkóslóvakíu þangað til danska stjórnin hafði hugmynd um hana. Það voru fréttamenn, sem fræddu ráðhei-rana og herfor- ■ ingjana um innrásina. Ein ástæð . an fyrir þessari handvömm er , talin sú, að viðvörunarkerfið er í beinu sambandi við Atl- 1 antshafsbandalagið og í þeim herbúðum voru engar viðvar- ' anir sendar lit. En strax og ráð herrarnir og herforingjarnir höfðu fengið vitneskju um inn rásina fór viðvörunaz-kerfið í . gang. Herforingjar í danska hern ' um hafa ekki gert neinar sér- ; stakar varúðai-ráðstafanii-, en samkvæmt ósk ríkisstjórnar- innar hafa öll helgai-leyfi her-- manna veiúð afturköliuð. UNGVERJAR líkja CEAUSESCU : VIÐ JOHNSON FORSETA í blaði ungversku stjórnar- rinnar í gær var harkalega ráð- izt á leiðtoga rúmenska kommú nistaflokksins, Nieolae Ceau- sescu, vegna mótmæla hans gegn innrásinni í Tékkóslóva- -kíu. Blaðið spyr, hvernig það sé mögulegt, að kommúnista- flokkur geti snúizt gegn Sovét -ríkjunum, bróður og verndara hinna sósíalistísku landa, og vitna jafnframt í frelsi og kenn ingar Marx og Lenins? Blaðið líkir yfirlýsingu Ceausescus við yfirlýsingu Johnsons Bandaríkjaforseta, og segir, að engum komi á ó- Framliald á bls. 11. WVWWWWWWWWWVWWWWWW»AA/WWWW\/WWVWWVW>AA/WWi»i! Reiðir Pragbúar hæðast óspart að' áhöfn rússnesks skriðdreka á götu í Prag, KOMULAG í MOSKVU Tékkneskt útvarp vill þjóðaratkvæði Síðdegis í gær voru horfur á því, að samn- ingar fækjust á fundum Sovétleiðtoga og samningarnefndar Tékka í Moskvu. Var talið að Rússar gætu fallizt á málamiðlun um mynd un stjórnar og dvöl rússneskra herja í Tékkó- slóvakíu. í einni frétt var sagt, að Dubcek og félagar hans, sem handteknir voru, hefðu tekið þátt í samningaviðræðunum, en aðrar fréttastofnanir drógu það í efa, þar sem þeir væru lýstir svikarar í Moskvu. Samningafundum að ljúka TALIÐ er að haegt miði á samningafundum rúss- néskra og tékkneskra leiðtoga í Moskvu. Svoboda forseti. sem hugðist snúa aftur til Prag á föstudag sat enn á fund um með rússneskum leiðtog- um í gærmorgun. Tass lét þess igetið á föstudag að viðræðurn ar væru hreinskilnar og vin- samlegar. Því var haldið fram í frjálsum útvarpsstöðvum í Tékkóslóvakíu í gær, að Dub- eek og Cernik forsætisráð- herra hafi verið fluttir til Moskvu og taki þeir nú þátt í isamnmgaviðræðunum. Síðdegis í gær byr juðu verka menn að koma fyrir sovézlc- um og tékkneskum fánum við vegi þá, sem liggja út á flug- völlinn í Moskvu, og var það talið merki þess að fundum leiðtoganna væri að ljúka og forseti Tékkóslóvakíu héldi heim innan skamms. Fánarnir jhöfðiu verið teknir niður á föstudagskvöldið, þegar ljóst varð, að umræðurnar héldu áfram á laugardag. Ekki er talið útilokað að málamiðlun náist varðandi nýja ríkisstjórn í Tékkó- slóvakíu og dvöl sovézkra hei'- sveita í landinu. Óstaðfestar fregn:r herma að sovézkir leiðtogar séu fáanlegir til að slaka á kröfum sínum um menn í stjórn Tékkóslóvakíu, þar sem Svoboda forseti þver- neitaði að samþykkja ráðherra ÍIi/3-taj þiann, sem lagður var fyrir hann í Prag. Þjóðaratkvæði Útvarpið 1 Prag skoraði í gaer á íbúa Tékkóslóvakíu að láta fara fram þjóðaratkvæði til þess að það komi í ljós, hve stór hluti landsmanna óski eftir því að erlendu herirnir hverfi úr landi. Auk þess skyldu menn ákvarða, hvort Fi-amhald á bls. 11. Siðustu fréttir Rétt áður en blaðið fór í prentun kl. 2 í gær bárust þær fréttir frá Tékkó- slóvakíu um Wien að Ludvik Svobcida, forsetí, hefði náð heiðarlegu samkomulagi í Moskvu. í annarri frétt sem höfð er eftir Gustav Husak, varainnanríkisráðherra T ék- kóslóvakíu, segir, að Dubcek taki aftur við embætti flokks leiðtoga. Þá upplýstS sendi- ráð Tékkóslóvakíu í London að Dubcek væri á lt'ið heim til Tékkóslóvakíu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.