Alþýðublaðið - 07.09.1968, Síða 6

Alþýðublaðið - 07.09.1968, Síða 6
PÁLL LÍNDAL, BORGARLÖGMAÐUR: Staðreyndir um Landsbókðsafnsins FYRIR skömmu var stuttlega á það bent' opinberlega, að ekki hefði komið fram í ræðu, sem menntamálaráðherra flutti á 150 ára afmæli Landsbóka. safnsins, hver hefði látið í té lóð þá', þar sem gert er ráð fyrir byggingu nýs safnahúss, þ. e. byggingar fyrir Landsbóka- safn og Háskólabókasafn sam- eiginlega. Þetta varð til þess, að ýmsir álitu, að hér væri um að ræða lóð, sem ríkið hefði þeg- ar ráð á. Svo var þó engan veg. inn, heldur lóð, sem borgarráð Reykjavíkur ákvað að gefa kost' á' í tilefni af hinu merka af- mæli. Að sjálfsögðu bar ráð- herra engin skylda til að nefna þetta, en vegna misskilnings, sem risið hafði, þótti rétt að geta þessa. Hér var líka um að ræða ráðstöfun á sjðustu lóð Reykjavíkurborgar á Melunum undir stórbyggingu, að stærð 15000 ferm. Hún takmarkast í stórum dráttum af Birkimel, Hringbraut, íþróttavellinum og lóð Hótel Sögu. Þeir, sem þekkja til lóðaverðs i Reykja- vík geta farið nærri um verð. mæti þessarar lóðar og munu telja, að um sé að ræða álitlegt framlag borgarinnar til bóka- safnsmála landsins í heild. Ekki fæ ég séð, að á neinn sé hallað, þótt bent só á þetta, enda var algerlega áreitnislaust greint frá staðreyndum. Svo er ekki að sjá, að allir telji að skýra megi frá slíkum staðreyndum, því að mikið upp- þot varð hjá Alþýðublaðinu af þessu tilefni og sett upp feit- letruð rammagrein, þar sem ó. maklegar hnútur eru í garð borgaryfirvalda. Er þar haldið fram, að lóðarumsókn mennta- málaráðuneytisins v/safnahúss- ins hafi legið óafgreidd hjá borginni, hvorki meira né minna en ellefu ár. Er lesendum ætiað að botna á þá leið, að sennilega væri húsið risið, ef þetta tómlæti hefði ekki komið til. Ella væri hnútan ástæðu- laus. Blöðum hættir því miður oft til þess að rjúka upp með full. yrðingar, sem sér eiga litla stoð eða enga, af því að þau hirða ekki um að leita upplýsinga hjá réttum aðilum. Ef blaðið hefði Ieitað fyrir sér hjá þeim, sem gerst mega vita, þ. e. háttv. ráð- herra eða ráðuneyti hans eða borgarskrifstofunum, hefði ekki þurft að koma til þessa frá- leita misskilnings. Sannleikurinn er nefnilega sá, að umrædd lóðarumsókn ráðuneytisins var endanlega af- greidd haustið 1961, og það í á. heyrn alþjóðar, þ.e.a.s. á 50 ára afmælishátíð Háskólans. Með bréfi 1957 og 1959 hafði ráðuneytið óskað þess, að safna- húsbyggingu yrði úthlutað lóð á tilteknu svæði sunnan íþrótta- vallarins á Melunum. Um þær mundir voru umræður um stækkun háskólalóðarinnar vegna framtíðarþarfa Háskól- ans. Varð það niðurstaðan, að Reykjavíkurborg gaf Háskólan- um á 50 ára afmæli hans 1961 kost á eða fyrirheit um 100 þús. fermetra land í nágrenni þáverandi lóðar Háskólans, þar með talið allt land, sem borgin hafði þá til ráðstöfunar á Mel- unum, sem svo eru kallaðir. Innan marka þessa lands var einmitt sú lóð, sem ráðuneytið hafði sótt um undir safnahús. Þar sem háskólinn heyrir undir ráðuneytið og safnahúsið er vissulega háskólastofnun, töldu borgaryfirvöld, að með þessari miklu gjöf, væri lóðar- umsókn ráðuneytisins afgreidd, enda ekkert til fyrirstöðu af þeirra hálfu að staðsetja safna- húsið á þeim stað, sem um var beðið. Ég leyfi mér að halda þvj fram, að ráðuneytið hafi einnig litið svo á, ella hefði það áreiðanlega gengið eftir frekara svari. Nú víkur sögunni austur í bæ. Þegar sýnt var, að stefnt yrði að stofnun nýs miðbæjar austan^. Kringlumýrarbrautar, hófust viðræður um það, að ríkisút. varpið, sem fengið hafði fyrir mörgum árum fyrirheit um lóð á Melunum, fengi á staðinn lóð þar eystra. Varð um það sam- komulag fyrir ekki mjög löngu. Er nú unnið af kappi að skipu- lagningu nýja miðbæjarins, og má vænta þess, að ekki muni líða mjög langur timi, þar til hægt muni að hefja þar bygg- ingar. Við þetta Iosnaði lóð, sem margir hafa sótt eftir. Meðal þeirra, sem þar komu til, var landsbókavörður, er taldi þessa lóð henta mun betur en lóð í miðbænum nýja, sem nefnd var sem möguleiki. Var málið rætt í skipulagsnefnd og borgarráði óformlega og samstaða þar um, að rétt væri að gefa kost á lóð. inni undir safnahús. Með bréfi, dags. 27. maí sl. sótti mennta- málaráðuneytið um lóð á Melun- um undir safnahús Var málinu vel tekið og það afgreitt af rétt. um aðilum, en rétt þótti að bjða með formlega tilkynningu, þann. ig að hún kæmi fram á 150 ára afmæli Landsbókasafnsins, en hún var í bréfi borgarstjóra til menntamálaráðuneytisins, dags. 31. júlí s.l., og fól í sér úthlutun þeirrar lóðar, sem áð- ur getur. Þetta er nú orðið lengra mál en ætlað var, en að gefnu til- efni frá Alþýðublaðinu hef ég ekki talið annað fært en verja nokkru rými til að skýra það. Oft er kvartað um, og það með réttu, að almenningur fylgist' lítið með gangi opinberra mála og séu embættismenn ekki mik- ið fyrir að upplýsa þau. Ég hef því talið skyldu mína að bæta úr> þessu takmarkaða sviði með því að upplýsa tvær staðreynd. 1. að Reykjavíkurborg hefur sýnt Landsbókasafni ís- lands virðingu sína og þökk á 150 ára afmælinu með því að úthluta undir safnahús einni eftirsóttustu og verðmestu lóð í Reykja- vík. i 2. að umsókn menntamála- ráðuneytisins frá 1957 og 1959 um lóð undir safnahús var fullsvarað árið 1961, og aldrei síðan gengið e'ft:r frekari svörum við því er- indi, sem þá var flutt. í sjálfu sér skiptir ekki öllu máli, hver lætur hvað í té, þegar x hlut á slík merkisstofnun, sem Landsbókasafn er ásamt Há- skólabókasafni. Aðalatriðið er, að allir þeir, sem bókum unna, en það eru vonandi allir ís- lendingar, leggi sig af alefli fram, þannig að sem fyrst megi rísa hin mikla menningarstofn- un, safnahúsið nýja á Melunum. íþróttir Framhald 'af bls. 7. HÁSTÖKK : 1. Ólafur Guðm. K 2. Bjarni Guðm. K 1,64 1,59 KÚLU^VARP : 1. Jens Kristjánsson, D 11,25 2. Páll Ólafsson, D 10,62 KRHJGLUKAST: 1. Jens Kristjánsson, D1 37,49 2. Páll Ólafsson, D 33,17 SPJÓTKAST: 1. Bjarni Guðm. K 42,48 2. Páll Ólafsson, D 34,10 LANGSTÖKK : 1. Páll Ólafsson, D 6,00 2. Bjarni Guðm. K> 5,95 Stig féllu þannig: Umf. Dagsbrún 87 stig Umf. Kormákur 59 stig Umf. Víðir 10 stig Umf. Dagsbrún varðveitir næsta ár bikar, sem Verzlun Sig. Pálmasonar á Hvamms. tanga gaf til þéssa móts. F. h. íþróttanefndar. PÁLL ÓLAFSSON, Reykjaskóla. Aga Khan og flóttamannahjálpin HINN 3. desember 1965 var Sadruddin Aga Khan prins ein- róma kjörinn forstjóri flótta. mannahjálpar Sameinuðu þjóð- anna af Allsherjarþinginu. Kjör- tími hans tók til skeiðsins frá 1. janúar 1966 til 31. desember 1968. Þegar Sadruddin tók við embættinu, lýsti hann því strax yfir, að hanin, mundi starfa í sama ópólitíska mannúðaranda og fyrirrennarar hans (Hollend- ingurinn dr. G. J. van Heuven Goedhart frá 1951 til 1956, og Svisslendingarnir dr. August Lindt 1956—1961 og Felix Schnyder 1961—1965). í rúm þrjú ár hafði Sadrudd. in prins verið aðstoðarforstjóri flóttamannahjálparinnar, þegar hann var kjörinn í embætti for- stjórans. Á því skeiði tók hann fyrst og fremst þátt í starfsemi flóttamannahjálparinnar í Af- ríku og Asíu þar sem stöðugt voru að koma upp ný aðkallandi vandamál. Um þetta leyti var eitt af meginverkefnum flótta- mannahjálparinnar stórfelld að stoð við flóttamenn frá_ Alsír i Túnis og Marokkó, og var sú aðstoð veitt í samráði við Al. þjóðarauðakrossinn og samsvar- andi samtök í löndum Múham- eðstrúarmanna, Alþjóða-hálf. mánann. Sadruddin prins átti veigamikinn þátt í samningavið- ræðunum sem leiddu til þess, að flóttamannahjálpin var beðin að starfa með fulltrúum frönsku stjómarinnar og bráðabirgða- stjórnarinnar í Alsír í sérstakri nefnd, sem hafði eftirlit með heimsendingu 180 þús. þessara flóttamanna. Það gerðist á miðju ári 1962 í sambandi við Evian.sáttmálann. Sem aðstoðarforstjóri flótta- mannahjálparinnar átti hann þátt í að undirbúa heimkomu flótamannanna og stóð í stöðugu sambandi við ríkisstjórnirnar í Marokkó og Túnis og við alsír. sku leiðtogana. Hið mikilvæga hlutverk, sem flóttamannahjálp inni var fengið í þessu sam- bandi, fyrst í beinni aðstoð við flóttafólkið, en einkanlega með. an á heimsendingu þess stóð, hafði í för með sér fyrstu meiri háttar viðurkenningu utan Evr- ópu á ópólitísku mannúðar. stal'fi 'flóttamannalijájpnrinnar, Eftir þetta starfaði Sadrurrín sama ópólitíska omamnúðaraínda Mið. og Vestur-Afríku, þar sem flóttamannahjálpin hefur mörg járn í eldinum. Árið 1964 ferðaöist hann til landa Rómönsku Ameríku. — Skýrslur hans um hin alvarlegu vandamál margra aldurhniginna flóttamanna, sem fluttust yfir hafið, þegar þeir voru ungir og heilsuhraustir, en voru nú orðn- ir gamlir og lifðu við alvarlegan skort, leiddi til þess að flótta- mannahjálpin jók starf sitt í þessum heimshluta. Árið 1965 heimsótti Sadrudd- in Finnland, Noreg og Svíþjóð og dró athygli stjórnvalda í þessum löndum og ýmissa einkaaðilja líka að hinu nýja á. standi í Afríku og Asíu, sem krafðist aukins átaks af hálfu flóttamannahjálparinnar. Áður en Sadruddin prins varð aðstoðarforstjóri flóttamanna- hjálparinnar hafði hann þegar árið 1959 starfað fyrir stofnun- ina í tilefni af alþjóðlega flótta- mannaárinu. Hann gerði veru. legt átak til að fá allmörg lönd: í Asíu til að taka þátt í mjög velheppnuðu verkefni, þar sem yfir 70 ríki gáfu út sérstök flóttamannafrímerki í tilefni ársins og létu ágóðann renna til flóttamannahjálparinnar. Árið 1960 var Sadruddin prins útnefndur Isérlegur ráð- gjafi forstjóra Menningar- og vísindastofnunar Sameihuðu þjóðanna (Unesco) vegna fram- kvæmdar áætlunar um að bjarga fornminjum Núbíu und. an væntanlegu stöðuvatni sem Asúan.stíflan myndaði. Sadruddin prins, sem fædd- ist árið 1933, er sonur hins látna Aga Khans. Hann lauk prófi í stjórnvísindum frá' Har- vard.háskóla árið 1954 og lagði síðan stund á málefni Miðaust- urlanda sem sérgrein um þriggja ára skeið. i Starfsemi flóttamannahjálparinnar — og von hennar Flóttamainnahjálp Sameinuðu (þjóðanna, sem hefur aðalaðset- ur í Genf, var sett á laggirnar sem bráðabingðastofnun af Alls- iierjarþingtnu og 'átti að starfa í iþrjú ár frá 1. janúar 1951. Síðan hefur Allkherjarþingið endurnýjað umboð hennar þri'svar —■ fimm ár í isenn — og rennur þriðja tfimm-ára Iskeiðið út í árslok 1968. Mesta flóttarriainnavandamálið á stanfssviði ‘stofnunarinnar var frá upphafi í Evrópu í kjölfar seifini 'heiirnsstotrjaldar. Nú er það fyrst og fremst Atfríka sem hrópar á hjálp. Talið er að í Afríku séu eins og stendur 850^000 flðttamc^in. Af þeim ’hafa 500.000 notið aðsfcoðar flótta mann aiij álparinnar til að hefja nýtt líf. Sáttmálinn frá 1951 um stöðu flóttamanna telur xipp réttindi flóttamanns í griðlandinu, t. d. að því er varðar trúfrelsi, að- gatng að dómstólum, launuð störf, ókeypis skólagöngu og félagslegt öryggi. Nú þegar hafa 53 riki gerzt aðilar að þessum sá^ttmála, og grundvaillaratriði Framhald á bls. 11. g 7. sepí'. 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.