Alþýðublaðið - 07.09.1968, Page 1
UTVARPSVIKAN
8. -14. sept.
Sigrún og Oríon í sjónvarpinu
SIGRÚN HARÐARDÓTTIR heitir ung og efnileg söngkona. sem naumast er þörf á að' kynna
fyrir íslenzkum sjónvarpshorf- og heyrendum, — svo eftirminnilega hefur hún gert það sjálf. í
sumar hefur liún t.d. ferðazt með félögum sínum um landið þvert og endílangt og skemmt
landsmönnum með fáguðum og skemmtilegum söng sínum. Þá er heldur ekki ýkja langt síð.
an hún kom fraíta í íslenzka sjónvarpinu og heillaði augu og eyru.
Mánudaginn 9. september kl. 20.30 fáum við enn einu sinni að heyra í Sigrúnu Harðardótt
ur, sem þá syngur í sjónvarpinu við undirleik hljómsveitarinnar Óríon. Hljómsveitina skipa
þeir Eysteinn Jónasson, Stefán Jökulsson og bræðurnir Sigurður Ingvi og Snorri Örn Snorra-
synir. Myndin hér að ofan er af Sigrúnu og Orion.
)