Alþýðublaðið - 21.09.1968, Síða 1

Alþýðublaðið - 21.09.1968, Síða 1
ÚTVARPSVIKAN 22.-28. SEPTEMBER 1968 Laugardagskvikmyndin: „Lykill a5 leyndarmáli" Næstkomandi laugardags- kvöld, hinn 28. þessa mánað ar, flytur íslenzka sjónvarpið bandaríska kvkmynd, sem Útvarpsdagskrá Alþýðublaðs- ins leyfir sér að mæla óhik að með. Er það eitt af meist araverkum hins ókrýnda kon ungs leynilögreglumyndanna Alfreds Hitchcock, og nefn- ist á frummálinu ,,Dial M for Murder,“ en á íslenzku „Lyk ill að leyndarmáli," Myndin er gerð árið 1954 eftir sam- nefndu lejkriti rithöfundar- ins Frederich Knott, sem vakti heimsathygli og var þýtt á fjölda tungumála. Le kritið var sýnt hér í R- vík árið 1955 við fádæma hrifningu og mikla aðsókn. Þá var kvikmyndin og sýnd í Austurbæjarbíói sama ár og hefur hún án efa orðið mörgum kvikmyndahúsgest- um minnjsstæð. Aðalhlutverk í kvikmynd- inni „Dial M for Murder“ eða „Lykill að leyndarmáli‘‘ eru í höndum heimsþekktra leik ara, þeirra Ray Milland, Grace Kelly (síðar furstafrú af Monaco) og Robert Cumm ings. Óþarft er að kypna þessi nöfn nánar, slíkri frægð hafa þau náð í kvikmynda- heiminum, hvert um sig. Sem dæmi um vinsældir kvikmyndarinnar má geta þess, að í Danmörku var hún á sínum tíma sýnd v ð metað sókn; í stórblaðinu Politiken var hún nefnd „meistaræ verk“ og B. T. veitti henni fjórar stjörnur í kvikmynda gagnrýni sinni. Svo kemur rúsínan í pylsu endanum: Grace Kellý var kjör n bezta leikkona ársins 1954 fyrir hlutverk sitt í „Di al M for Murder.“ Nægir þetta eða hvað? Grace Kelly var kjörin bezta leikkona ársins 1954 fyrir leik sínn „Lykill að leyndar- máli.“ Eins og nafnið bendir til, er ,,Lykill að leyndarmáli“ 'sakamálamynd af betra tag- inu, — bráðskemmt leg og spennandi — en líklega er ráðlegast að segja ekki meira. Sjón eru sögu ríkari. t

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.