Alþýðublaðið - 12.11.1968, Side 1
ÞriSjudagur 12. nóvember 1968 — 49. árg- 233- tbl-
BandaríkjadoElar kostar núna 88 krónur
Seðíabanki íslands tilkynnti í gær nýtt stofngengi
íslenzku krónunnar og kostar hver Bandaríkjadollar
nú 88 krónur, en kostaði áður 57 krónur. Er þetta
35,2% Iækkun frá því gengi, sem í gildi hefur verið
til þessa. Er ráðgert að gjaldeyrissala geti hafizt á
hinu nýja gengi við opnun bankanna í dag, og
verður þá búið að birta nýja gengisskráningu allra
þeirra mynta, sem hér hafa verið skráðar.
Á blaðamannafundi, sem
bankastjórn Seðlabankans hélt
í gær og bankastjórarnir Jó-
hannes Nordal og Davlð Ólafs-
son sátu, las Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri upp fréttatil
kynningu og greinargerð frá
Seðlabankanum um hina nýju
gengisskráningu. Greinargerðin
er birt í heild á öðrum stað hér
í blaðinu, en fréttatilkynningin
ér á þessa leið:
„Bankastjóm Seðlabankans
hefur, að höfðu samráðj við
bankaráð og að fengnu sam-
þykkj rikjsstjórnarinnar, ákveð
ið nýtt stofngengi íslenzkrar
krónu og tekur það gildi frá
kl. 9 á morgun, hinn 12. nóv-
cmber 1968, Er í dag að vænta
staðfestingar stjórnar Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins á ákvörðun
þessari.
Hið nýja stofngengi er 88.00
íslenzkar krónur hver banda
rískur dollar, en það er 35,2%
12. hóvember, nýja gengis-
skráningu fyrir allar myntir,
er skráðar hafa verið' hér á
landi að undanförnu, en þang
að til slík gengisskráning hef
ur verið birt, helzt sú stöðvun
gjaldeyrisviðskipta er til-
kynnt var af Seðlabankanum
í gær“.
Eftir að fréttatilkynningin
hafði veríð lesin, svaraði seðla-
bankastjórinn spurningum frétta
manna, og lýsti (þá meðal annars
Jóhanes Nordal tilkynnir gengislækkunina í gær uag. Við hlið hans situr Davið Olafsson seðlabanka*
Framhald á 15. síðu. stjóri.
Fyrst og fremst gert til
þess að tryggja atvmnuna
lækkun frá því gengi, sem í
gildi hefur verið. Jafnframt hef
ur verið ákveðið, að kaup-
gengi hvers dollars skuli vera
87.90 krónur og sölugengi
annarra mynta í samræmi við
það. Ráðgert er að Seðlabank
inn birti fyrir opnun bank-
anna á morgun, þriðjudaginn
,,Alþý§uflokkurinn hefur að rækilega athuguðu
máli og að undangengnum ítarlegum umræðum
ákveðið að standa að þeim efnahagsráðstöfunum, er
gengisbreytingin, sem nú hefur verið tilkynnt, er
einn meginþáttur í. Alþýðuflokknum er Ijóst, að hér
er um mikilvæga ákvörðun og erfiðar aðgerðir að
ræða. En hann hefur ákveðið að standa að þessum
ráðstöfimum vegna þess að hann hefur komizt að
þeirri niðurstöðu, að þær ráðstafanir sem nú verða
gerðar, séu vænlegasta leiðin til þess að halda uppi
sem mestri atvinnu, en það hefur ávallt verið meg-
inþáttur í stefnu Alþýðuflokksins, að allar vinnu-
fúsar hendur hafi verk að vinna.“
ÞRÁINN TALINN AF
Reykjavík — HEH.
Vélbáturinn Þráinn NK 70
er nú talinn af. Leit að bátn-
um var hætt í gær. Níu
menn voru á bátnum og þyk
ir nú sýnt, að þeir hafi allir
farizt. Á sunnudag var leitað
á stóru svæði frá Þykkvabæ
og austur fyrir Vík í Mýrdal.
Spýtu, sem merkt var Þráni
NK, rak á land á sunnudag
skammt austan við Markar-
fljót. Er þetta fyrsti merkti
hluturinn, sem finnst úr bátn
um. Landeigendur við suður
ströndina munu fylgjast
gaumgæfilega með öllu því
sem reka kynni á land næstu
daga.
Leit iað vélbátnum Þráni
NK hófst upp úr hádegi á
þriðjudaginn í síðustu viku
og hefur staðið stanzlaust síð
an. Myndir af skipverjunum
níu, sem fórust með vélbátn
um Þráni, eru birtar á bls. 5.
Með þessum orðum ‘hóf dr.
Gylfí Þ. Gíslason viðskiptamála-
ráðherra ræðu sína í umræðun.
um um efnahagsráðstafanirnar á
Alþingj i gær, en frá iþeim um-
ræðum er nánar sagt annars stað-
ar hér í þlaðinu. Ráðherrann
hélt síðan áfram :
„Atvinnuöryggið hefur verið
og er nú í beinni liættu vegna
aflabrests og verðfalls erlend-
is. Það er gegn atvinnuleysis-
vofunni, sem þessum ráðstöfun-
um er fyrst og fremst beint. En
jafnframt hefur Alþýðuflokkur-
inn lagt og mun áfram leggja
sérstaka áherzlu á að róðstafan-
ir verði gerðar er taki tillit til
hagsmuna láglaunafólks og bóta-
þega almannatrygginganna. —
Þetla hefur verið annar megin-
þátturinn í stefnu Alþýðuflokks-
ins.
Flokkurinn gerir sér ljóst að
erfiðir tímar eru fram undan
fyrir islenzka þjóð. En hann telur
það skyldu sína að skorast núi
Frh. & bls, 14.