Alþýðublaðið - 22.11.1968, Blaðsíða 8
OPNAN spyr
IRENE
FORSYTE
fyrr sn sjónvarpið lýkur við
að sýna myndina.
Hvað snertr gagnrýni á
sjónvarpið þá gæti ég nefnt
það, að ég vildi gjarnan sjá
fleiri fræðsluþætti, erlenda og
innlenda, en að sama skapi
færri glæpamyndir.
Danska blaðjð Aktuelt grerði fyrir skömmu könnun á því hvað
Danir fylgdust vel með kvikmyndinni um sögu Forsyteættarinnar.
en verið er að sýna kvikmyndina í danska sjónvarPinu um þessar,
mundir. Það kom í ljós að áhugi Dana var ekki nærri ejns mikilij
og td. Svía og Englendinga. Af 60 manns, sem leitað var svars
Jhjá, var aðeins þriðjungur sem horfði á myndina að staðaldri og
helmingur sem alls ekki fylgdist með. Okkur datt í hug að hafa
samband við nokkra aðila og bera upp eftirfarandi spurningar:
1. Fylgizt þér að staðaldri með Sögu Forsyteættarmnar í sjón-
varpinu?
2. Ætti að sýna kvikmyndina á öðrum tíma?
3. Hvað viljið þér gagnrýna í sambandi yið sjónvarpið?
Einar Bjornsson, fulltrúi:
Já, ég fylgjzt alltaf með, og
hef mjög gaman af. Reyndar
fannst mér hún hálf leiðingleg
í byrjun, en það breyttist
fljótt. Myndin er framúrskar-
and; vel leikin.
Ég er ekkert óánægður með
sjónvarpið og borga gjaldið
fyrjr það með glöðu geðj.
Bjarni Konráðsson, læknir:
— Já, ég horfi ailtaf á Sögu
Forsyteættarinnar. Þetta er
mjög merkileg sag-a, fyrir utan,
ihvað hún er vel leikin.
Það er nú margt að athuga
við sjónvarpið. Ejnn þulurinn
er t.d. ákaflega feiminn, hann
þyrfti að lagast. Mér finnst líka,
iað þeir menn, sem eru illa máli
farnir, ættu ekkj að koma fram
í sjónvarpinu, og ég vil líka
gagnrýna iþað, sem margir
segja, þegar þeir eru spurðir
einhvers: Ég mundi segja. —
Margar þýðingar eru illa gerð-
ar, beinlínis villandi. í þýðing-
um úr ensku koma varla fyrir
túlka myndir, þeir hafa oft ekki
vit á efninu. Og Kristján
Eldjárn mætti koma oftar, hann
er mjög viðkunnanlegur í sjón
varpi.
hvaða degi myndin er sýnd —
ég hef reyndar ekki hugmynd
um á hvaða dögum hún er sýnd.
Ég hef enga gagnrýni á reiðum
höndum — horfi svo lítið á sjón-
varpið. ,
Kristín Guðmundsdóttir, ihn.
anhússarkitekt: „
— Já alltaf. Enda er ég alltaf
(heima á kvöldin. Þó sá ég ekki
fyrsta þáttinn. Þetta má þó ekki
skjlja svo, að ég sé háð sjón-
varpinu, það er langt í frá. Ég
iofa börnunum alltaf að horfa
á Sögú Forsyteættarinnar, en ég
held, að hún sé meira fyrir
stelpur. Strákunum finnst allt
of mikið af kossum í myndinni.
'Mér finnst nú fréttirnar lang
beztar. Annars finnst mér sjón-
varpið hafa versnað frá iþví í
fyrra. Kannski er það bara
vegna þess, að maður er farinn
að verða leiður á því. Svo finnst
mér, að forsetinn okkar eigi að
koma oftar fram í sjónvarpinu.
Ragnar Jónasson, Kennara
skólanemandi:
— Ég horfi stundum á hana,
fylgist svona með þræðinum.
Nei, ég mundi ekki horfa oftar
á Sögu Forsyteættarinnar, þótt
hún væri á öðrum dögum. Mað-
ur er oft að læra á þessum
tíma, og verður að láta Það
ganga fyrir. Margt af þessu er
nú léttmeti, en ég hef gaman
af að horfa á ýmislegt, Mér
finnst, að það væri hreint ekki
svo vitlaust að korna með starfs
fræðslu í sjónvarpið. Þá þarf
ekki að fara með krakkana á
vinnustaðína, aðeins kvikmynda
vélina og kvikmyndatökumann-
Þórunn Valdimarsdóttir,
hjá Verkakvennafélaginu
Framsókn:
Ég fylgist ekki með mynd-
inni núna vegna anna, en ég
gerði það í byrjun. Ég verð
vör við að fólk hefur mjög
mikinn áhuga á myndinn:. Ég
vil að sjónvarpið flytji meir
af fræðandi efni og það mætti
gjarnan taka upp kennslu í
dönsku og almennum reikn-
ingi, því að alltof margir gagn
fræðingar virðast ekki hafa
fengið nærri því nóga kennslu
í þessum fögum. Svo má bæta
dagskrána á laugardagskvöld-
um. Mér er líka kunnugt um
að margt eldra fólk hefur gam
an af kvikmyndum eins og
Lassý og Hrói höttur og mætt'
gjarnan hafa þá þætti eftir
kvöldmat, svo að fullorðna
fólkið geti líka horft á þá.
þéringar, en þær eru föst venja
í ensku. Sarna er að segja um
þá, sem oft eru fengnir til að
Rósa Ingólfsdóttir, teiknari
Sjónvarps:
Ég hef fylgzt með sögunni
frá upphafi og finnst hún í
senn spennandj og afburða
vel leikin. Ég ætla að fylgjast
með áfram, er til dæmis ákaf
lega spennt að sján næsta þátt.
Ég vil alls ekki lesa söguna
Villijálmur Knudsen, kvik-
myndatökumaður: Nei, ég fylg-
ist ekki með að staðaldri, en
bef haft nokkuð gaman af þátt-
um sem ég hef séð. Þó finnst
mér efnið ekki höfða nógu mik-
ið til mín. Það er alveg sama á
8 ALÞYÐUBLAÐIÐ 22. nóvember 1968
i