Alþýðublaðið - 15.12.1968, Page 13

Alþýðublaðið - 15.12.1968, Page 13
JÖLABLAÐ ALÞÝÐUBLAÐSINS 1968 13 JÓLAHJÖRTU OG FURÐUFUGLAR Hjörtun búum við til úr tveim- ur hringmynduðum, jafnstórum glanspappírsblöðum. Þau eru brotin í miðju og gengur annað blaðið lítið eitt utan um hitt og límt fast.— Síðan er hanki sett- ur á og þá eru hjörtun tilbúin. — Fuglarnir eru gerðir úr blá- um eða rauðum pappír, en stinn- ur verður hann að vera og eins litur beggja megin. Haus, búkur og lappir eru klippt út úr sama blaði, en vængirnir eru úr papp- ír, sem öðruvísj er á litinn og límdir á kroppinn. í stélið er notaður silkipappír og silfur- pappír, sem klipptur er í ræmur og gerður úr þeim skúfur, sem er svo notaður fyrir stél og fest- ur við búkinn með tvinna. Teikn ið augu og nef á fuglinn. Festa mætti hann á jólatréð með títuprjóni, Svanurinn er þannig búinn til, að hann er klipptur út úr pappa, sem þarf að vera hvítur báðumegin. — Gerð er smárffa á búkinn, en gegnum hana á að stinga vængnum, sem er klipptur til úr fellingapappír. Endar hans eru skástýfðir. Lím- ið vænginn fastan. Rautt og svart þarf að máia á nefið. Svaninn mætti hengja á jólatréð, eða þá láta hann standa á litlu spegilglerj á borðinu. í UMSJÁ GAUTÁ HANNESSONAR SERVIETTUSKREYTING Brjóttu hvíta servíettu eins og sýnt er á myndinni. — Klipp- ið til rauðar jólasveinahúfur og gerið rifu á þær fyrír brodd- inn á servíettunum (sjá mynd).- Síðan teiknið þið glaðiegt andlit á réttum stað. Þegar svona serv- íettur eru komnar á alla diskana, lifnar mikið yfir jólaborðinu.— SVARTI-PETUR Ja, hann var kallaður „svarti Pétur” þessi gaukur, sem þið sjáið hér á myndinni.— Hann slapp eitt sinn út úr búrj sínu og það reyndjst erfitt að koma honum inn aftur. Við skulum samt reyna.— Haldið blaðinu nolckuð frá . augunum og færið það svo varlega og nær. þar 'til nefbroddurinn snertir strik- Iið. Þá er gaukurinn kominn inn í búrið á ný.—

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.