Alþýðublaðið - 15.12.1968, Qupperneq 14

Alþýðublaðið - 15.12.1968, Qupperneq 14
14 JÓLABLAÐ ALÞÝÐUBLAÐSINS 1963 Flóki Framliald af bls. 9. íslenzkrar myndlistar eins og þeirrar sem við sjáum í Þjóð minjasafninu. Svo hef ég sterkar taugar til Sólons ís- landuss. — Eru myndirnar þínar ekki ódýrar miðað við gæði, Flóki? — Jú, en það er nú vegna þess, að mér f nnst, að mynd ir eftir Alfreð Flóka ættu að vera á hverju heimili. — Einkum hjá stórum barna- fjölskyldum. Þær hafa visst uppeldislegt gildi. — Heldurðu ekki, að fólk segi eftir að hafa lesið þetía viðtal, að þú sért með stór- mennskubrjálæði? — Ég verð að viðurkenna- að eft'r öllum sólarmerkjum ætti ég að þjást af því, en ég' vil taka fram, að um það er alls ekki að ræða. Það er gott á þessum erfiðu tímum að geta baðað sig í vitundinni um e'gin mikil- leik. — Hver heldurðu, að séu ákjósanlegustu skilyrðin fyr ir myndlistarmenn? — Það er tvímælalaust klausturl'fnaður, þar sem hægt er að helga s:g ljstinni og lifa meinlætalifnaði. Það næstákjósanlegasta er gott hjónaband, og ég er svo lánsamur að vera í þe'rri að- stöðu. — Ja, iþu ert giftur danskri konu. — Já, hún heitir Annette — Trúir hún á þig sem höfuðsnilling? — Að sjálfsögðu. Hún hef- ur gagnrýninn smekk og lík- ■an mínum. Ég geri aldrei svo teikningu, að ég leiti ekki álits konu minnar á henni. — Ertu lífhræddur? — Með afbrigðum. Dauð- inn er alltaf á hælunum á mér. — Jahérna. Hefurðu alltaf verið svona? — Frá því ég man eftir mér. Ég þorði aldrei að fara í leikfimi. Ég hélt ef ég steypti mér kollhnís, þá yrði það sá síðasti. • — Gerir þetta þig ekki þunglyndan? — Nei, ég þekkj ekki þung- lyndi. Ég þekki hræðsluna. Dauðinn kitlar mig og er mér hvatning. Ég er ekki sammála Indverjanum, sem sagði, að maður. sem hugsar um dauðann daglega, sé dauður. Sandemose segir, að ást og dauði séu hin e'nu verðugu viðfangsefni og öflug ustu lífgjafarnir. En ég er hræddur. Það hvarflar oft að mér, að verra taki við eftir dauðann. Ég er hræddur við tóm ð. Mér leiðist þunglynt fólk; ég er ekki þunglyndur. — Hvernig viltu hafa fólk? — Gott, indælt, normalt. Fólk, sem dáist að mér og myndunum mínum. — Hver er aðallesning þín? — Ég met Karen Bljxen mest af síðustu tíma rithöf- undum. Á árunum ’59 og ’60 eigraði ég eins og ástfangið ungmenni um Rungstedlund í von um að sjá henni bregða fyrir. — Og hvað gerðist? — Ég sá hana aldrei. — Hvaða fleúri höfunda lestu? — Ég hef dálæti á Poe og Baudelaire. Ég hef gert marg ar myndir við „Hrafninn“ og eins af andliti Poe’s. Ég les líka m kið Huysman. Hann skrifar um dýrljnga. Ég er hrifinn af dýrlingum. — Ertu á móti snobbi? — Nei, hreint ekki. Það er visst andrúmsloft í krjngum snobbara, sem er örvandi fyr ;ir listamanninn. Snobbarar eru nauðsynlegir. Það er bara alltof lít.ð um þá. Og: Steinríkjr bisnissmenn eru beztu listgagnrýnendumir. - St. Sig. Kátt er .. . Framhald af 7. síðu. bændum sínum fyrir jólin að fá eitthvert nýtt fat svo þeir færu ekki í ólukkans jólaköttinn né að hann tæki jólarefinn þeirra, og þegar börnum og hjúum tókst bæði að fá nýja flík, nógan jóla- ref og þar á ofan jólakerti og það sem mest var í varið, að þurfa ekki að fara í jólakött- inn, var ekki kyn þó kátt væri um jóljn til foma. Um jólagleði barna er þetta kveðið: „Það skal gefa börnum brauð að bíta í á jólunum, kertaljós og klæðin rauð svo komist þau úr bólunum, væna flís af feitum sauð sem fjalla gekk ó hólunum. Nú er hún gamla Grýla dauð; gafst hún upp á rólunum.” Enn má telja það jólanótt. inni til gildjs að þá voru úti- setur á' krossgötum einna tið- astar og vikivakar almennast haldnir.” (Jón Áraason, þjóðsagnaritari). i ISLENZK VEIÐARFÆRI FYRIR ISLENZKAR FISKVEIÐAR MARLIN pe botnvörpur úr flétt uðu garni fyrir togara og togbáta. MARLIN pe f 1 éttað netagarn MARLIN ppkaðlar. MARLIN ppf og PEV t einaefni fyrir þorskanet. TREVIRA pp fiskilínur. ENNFREMUR: Saumgarn, bindigarn, umbúðagarn. íslenzk framleiðsla úr be tíu fáanlegu hráefnum. MARLIN er skrásett vöruheiti. FATASKAPAR - NÝ GERÐ EFNI. TEAK verð). ALMUR — EIK (sama Hæð: ........... 240 sm. Dýpt:............. 65 — Breidd: ..........110 — — ....... . 175 — — ........ 200 — — 240 — Þessir nýju skápar eru ætlaðir til flutn- ings, ef þörf krefur. Þeir pakkast vel til lengri flutninga, og eru mjög auðveldir í samsetnin^u. Þá munum við einnig smíða skápana í öðrum stærðum og Viðartegundum eftir sérstakri pöntun viiðskiptaman’na. Biðjið um nánari upplýsingar. HÚSGAGNAVERZLUN AXELS EYJÓLFSSONAR Skipholti 7, Reykjavík — Sími 10117-18742.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.