Alþýðublaðið - 18.12.1968, Page 1

Alþýðublaðið - 18.12.1968, Page 1
Miffvikudagur 18- desember 1968 — 49- árg. 263. tbl. Nýtt slys í gærmorgun: Sjö vinnuslys í Straumsvík á mánaðartíma Reykjavík — VGK. Vinnuslys í Straumsvík eru orðin svo til daglegt brauð. í gærmorgun féll maður 4 metra niður á steingólf við vinnu sína. Herðablaðabrotnaði mað- urinn við fallið. Frá því 5. september í haust hafa orðið 8 alvarleg vinnuslys í Straumsvík, þar af 2 dauðaslys. 7 þessara slysa hafa orðið í nóvember og desember. 8 slysanna urðu með þeim feætti að menn féllu v,ð vinnu sína. Það er mál manna að ör yggiseftirlit í Straumsvík sé mjög lélegt, enda bera ofan greindar tölur það með sér. Enginn viðunandi bifreið er fyrir hsnd f Straumsvík tU að flytja slasaða á sjúkrahús og enginn kann að meðhöndla slasaðan mann á réttan hátt. Slysið í gær varð með þeim hætti, að maður úr Reykjavík var að lyfta hlera, sem huldi op á steinsteyptum palli, um 4 metra frá gólfi- Um le ð og maðurinn lyfti lileranum gekk hann 2 skref áfram, en v,ð það féll hann niður um opið Fra-flihald á 14. síðu. I ungíiö sótt heim \ Þannig hugrsar bandarískur teiknari sér geimfar þremcnn ingranna, sem eiga aff leggja af staff til tiuiglsins n.k, laugar ( dag, en gert er ráff fyrir aff geimfarið fari talsvert nærri 1 l tunglinu, snúi stefni aff yfirborði þess og taki allmarg-ar 1 myndir. Alls á geimfariff aff fara tíu hringj runhverfis tungl / iff. (UPI-mynd). 4 Mjólkursölustríð í Garðahreppi Rcykjavík — HEH. Mijtil reiði er ríkjandi meðal íbúa Garðahrepps vegna þeirrar ákvörðunar forstjóra Mjólkursamsöl unnar að banna alla mjólkursölu þar í hreppi á sunnu dögum. Tvær verzlanir í Garðahreppi hafa mjólk á boðstólnum, og eru báðar þessar verzlanir opnar á sunnudögum, en þær þafa til þess heimild sveitar- stjórnar. Nú verða viðskiptavinir, sem í verzlanir þessar koma á sunnudögum, að láta sér nægja að horfa á mjólkurhyrmirnar í kæliskápunum, þar eð for stjóri þeirrar stofnunar, sem einkaleyfi hefur á dreifingu mjólkur á Stór-Reykjavíkursvæðinu, bann ar, að hún sé seld a helgum dögum. Telur forstjór- inn, að sala mjólkur á sunnudögum valdi Mjólkur- samsölunni aulcakostnaði. Hins vegar finna neytend ur þessi rök léttvæg, þar sem verzlanirnar fá enga mjólk aðsenda á sunnudögum. Fyrír um það bjl tveimur vik. um kom sölustjóri Mjólkursam- sölunnar í verzlanirnar tvær í Garðahreppi, en þær eru útibú Kaupfélags Hafnfírðinga og svo- nefndur Boðabíll. Tilkynnti sölu stjórinn, að forstjóri Mjólkur. samsölunnar hefði ákveðið að banna alla sölu á mjólk á sunnu dögum. Á miðvikudag gengu þeir Ól- afur Einarsson, sveitarstjóri í Garðahreppi, Höskúldur Jóns- son, dehdarstj'óri í f.iármálaráðu neytinu, og Steinar Berg Björns son, fulltrúi í fjármálaráðuneyt inu, á fund Stefáns Björnssonar, forstjóra Mjólkursamsölunnar, og báðu þeir um skýringar á þessari ákvörðun um sölubann \á mjólk á sunnudögum. Allir þessir menn eru búsettir í Garða hreppi. Að sögn Höskulds Jónssonar eru helztu rök forstjórans þau, að sala á mjólk á sunnudögum valdi miklum aukakostnaði. Hins vegar telur Höskuldur forstjór- ann ekki hafa lagt neitt fram, sem sýni, að Mjólkursamsalan hafi haft aukakostnað af dreif ingu mjólkur í Garðahrepp tfl þessa. Höskuldur benti á, að hér væri um að ræða fyrirtæki, sem trú- að væi-i fyrir því að dreifa við- kvæmum varningi til neytenda Mjólkursamsalan hefði fengið þennan rétt með lagasamþykkt, sem gerði ráð fyrir því, að fyrir tækið afhenti neytendum miólk og mjólkurafurðir á hverjum degi og veitti hina fulkomnustu þjónustu í því efni. Þá sagðj Höskuldur, að þeir þremenningar, sem á fund for- stjórans gengu, hefðu viljað kom ást að samkomulagi við Mjólkur samsöluna og hefði forstjórina lofað að taka mál;ð til athugun- ar. En engar efndir í því efni voru sýnilegar s.l. sunnudag. Höskuldur sagði ennfremur: „Það er ljóst, hvernig þessi mál munu þróast í framtíðinni og er því full ástæða t-1, að neytendur hafi vakandi auga með þeim fyrirtækjum, sem styðjast við einkasöluákvæði, og tilhneigingu siíkra fyrirtækja til að pina neytendur í stað þéss að þjóna þeim”. Hann sagði ennfremur: „Við viðurkennum fúslega, að mjólk- ursaian á sunnudögum hefur dregizt saman. Þrátt fyrir það þykir okkur ófært, aS aðeins ein mjólkurverzlun skuli vera opin á sunnudögum fyrir alla Reykja vík og Reykianessvæð;ð. Okkur þætti eðlilegra, ef mjólk væri Eramhald á 2. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.