Alþýðublaðið - 18.12.1968, Side 9

Alþýðublaðið - 18.12.1968, Side 9
18. desember 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9 Fug-Jinn á myndinni er indverskur starri og hann heitir Ted í höfuðið á Edward Heath, brezka stjórnmálamanninum sem heimsótti ísland eitt sinn í boði Biaðamannafélagsins. Ted þessi (fuglinn) fór með sigur af hólmi í mælskukeppni starra og hér er hánn að hjala við blómarós, sem virðist kunna vel að meta blíðmæli fuglsins. UMFERÐARHÁVAÐI VELDUR STREITU í GREIN í Aftonbladet fyrir skömmu er gerð grein fyrir því, að umferðarhávaði í stór- borgum geti leitt til streitu- sjúkdóma. Hávaðinn þröngvar sér inn í hús. truftar svefn borg- ara-. og er óþolandi um daga. Fólk getur af þessu orðið þreytt, bæði á líkama og sál. Varla leiðir hávaði af völdum umferðar af sér beinar skemmd ir á 'heyrn manna, sem vinna innanbúss. En truflist svefn í lengri tíma, getur það leitt af sér streituisjúkdóma. Borgarlæknir í Gautaborg hef ur sagt, að hejlbrigðisráðinu þar berist stöðugar kvartanir vegna umferðarhávaða. Það sem hingað tjl hefur verið reynt VINSÆLASTA kvennablað Frakka, Elle, mun verða til sölu í Júgóslavíu á þremur tungumálum. Þetta kemur til framkv. í marz n.k. Eigendur Elle, France Editi- ons et Publications, létu hafa eftir sér, að það væri fyrsta ópólitíska, vestræna tímarjtið, sem yrði til sölu reglulega í sósíalistísku landi. til úrbóta, hefur ekki gert neitt verulegt "gagn. Hver úrlausnar- tillaga á fætur annarri hefur verið lögð fram, og heilsuvernd- arráð og byggingarnefndir hafa krafizt, að minnsta kosti bráða- 'birgðalausna. En hingað til hef ur það litla þýðingu haft. í einstöku tilfelli hafa heilbrigð-<k isyfirvöld getað sagt sig telja híbýli ófær til íveru vegna um- ferðarhávaða, en óvíst er, að sú staðhæfing gagni fyrir rétti. í Stokkhólmi hefur því feng- izt framgengt, að heilbrigðis- yfirvöld í samráði við lögreglu hafa með höndum hljóðmæling- ar. Ef rnæljr sýnir meira en 90 desíbel. er eigandi ökutækis áminntur. Sanmingar hafa lengi staðið yfir millj stærsta ríkisútgáfu- fyrirtækis Júgóslava, Mindinska Knjiga, og France Editions et Publications. Hin júgóslavneska Elle mun verða gefin út á serbísku með syrillísku letri og á slóvensku og króatísku með rómönsku letri. En hin harða samkeppni á bílam’arkaðinum, hefur haft það í för með sér, að margar verk- smiðjur leggja allt kapp á að hafa bjfreiðar sem hljóðlægst- ar. Og reynslan sýnir, að fuil þörf er á að lækka ganghljóð bifreiða sem allra mest. Bankaskóli Á vegum ríkisbankanna starfar Bankam'annaskólinn, sem hóf starf 1959. og hcldur úrlega jiámske:ð, fyrirlestra og ýmsa aðra fræðslustarfsemi fyj'ir bankamenn. yngri sem eldri. Eiga st'arfsmenn einka banka og sparisjóða einnig aðgang að skólanúm. Frá 1963 hefur það ver ð skil yrði fastráðningar í banka, að starfsmenn lykju prófi frá skólanum. Skólinn er til húsa í nýlegu félagsheíimili Sambands ís lenzkra bankama'nna að Lauga vegi 103. Kennarar eru úr bönkunum, en e nnig leitað til kennara úr Verzlunarsltóla og Kennaraskóla. Skólastjóri er Gunnar H. Blöndal, Búnað arbankanum. Nýlsga lauk aðalnámskeiði ársins fyrir yngri bankamenn. Voru nemendur 63. Fjórir hæstu nemendur á prófi voru all r úr Landsbankanum, þeir Kristlelfur Indrjðason, Þor björg Kristín Jónssonl Elín Á. SJgurgeirsdóttir og Herdís ívarsdóttir. „Elle" smeygði sér innfyrir járntjaldiö JÓLABÆKURNAR 1968 HART í SJÓ sjóferðasögur Júlíusar Júlíussonar skipstjóra. Merkilegur skipstjórnarferill — sagt frá mörgum æsilegum atburðum á sjónum. — Goðafoss-strandið — réttarhöldin. Ásgeir Jakobsson skráði þessa bók, sem er ósvikin sjómannabók. — Verð kr. 367.00. , . ★ LJOS I ROUNNI eftir Stefán Jónsson, fréttamann. — Margt ber á góma, ótrúlegt en satt — kynlegir kvistir — utangarðsmenn — gama.n og alvara. Bók fyrir alla fjölskylduna. — Verð kr. 387,00. KREPPAN OG HERNÁMSÁRIN eftii Halldór Pétursson. — Frásögn verkamanns af krepp- unni miklu og Bretavinnunni. Ógleymanleg lesning um atburði sem mörkuðu djúp spor í þjóðarlíf íslendinga. Bók sem allir ættu -að lesa. •— Verð kr. 365,00. ★ KONGUR VILL SIGLA Skáldsaga eftir Þórunni Elfu, mikjl saga af hinni ungu Völvu Valtýsdóttur — mikil fyrirheit — heitar tilfinn- ingar — dramaitískur férill. Bók hinna rómantísku á öll- um aldri. — Verð kr. 376.25. STÚLKAN ÚR SVARTASKÓGI Skáldsaga eftir Guðmund Frímann. Sönn, skemmtileg sveitalífssaga. Þýzka stúlkan og einkasonurinn á'kotbýlinu — gömlu hjónin — fólkið í dalnum — skýrar lifandi persónur. Bók fyrir alla þá, sem enn unna sinni sveit. — Verð kr. 365.50. 11, líkk lliilil Á SKÖNSUNUM eftir Pál Hallbjörnsson. Sagan gerist við sjóinn — á skönsunnum — róðrar — fiskvinna — skin og skúrir — ástir og ævintýri - kraftmikið lifandi fólk með eld í æðum. Bókin sem þeir lesa með ánægju, sem fengið hafa seltuna í blóðið. Verð kr. 365.50. ★ DULARFULLI NJOSNARINN eftir Ólöfu Jónsdóttur. Gunni og Palli lenda í ótrúleg- ustu ævintýrum. Finna jarðhús — njósnarimi kemur til sögunnar — ferð úr landi — frumskógarævintýri. Hörku spennandi bók um síráka — fyrir stráka á aldrinum 8—12 ára. — Verð kr. 193,50. ★ RAGNIIILDUR eftir Petru Flagested Larsen, Benedikt Arnkelsson þýddi. Ragnhildur giftist ung — ágætis pilti. en óreglusömum og ístöðulitlum. Margir og miklir erfiðleikar mæta ungu hjónunum — freistingarnar liggja í leynj og góður ásetn- ingur verður oft að lúta í lægrj haldi. — Átökin millj góðs og ills eru hörð. Spennandj saga, sem ekki gleymist. — Verð kr. 268.75. ★ SYSTURNAR eftir Denise Robins. Spennandi ástarsaga, sem ekki þarf að kynna, því Denise Robins er orðin meðal vinsælustu ástarsagahöfundur hérlendis. — Kr. 294,00, ★ DAUÐINN Á SKRIÐBELTUM eftir Sven Hazel. Mikil hörkubók. eftir sama 'liöfund og í sama dúr og Hersveit hinna fordæmdu, sem út kom fyrir nokkrum árum og hvarf gersamlega af markaðnum. Ólrúle^r hlutfk' gerast t— óglieyinianlegifr furðufuglar bjrtast. — Margt er ógnvekjandi en það eru líka dauðir menn sem ekki geta brosað að Porta og uppátækjum þeirra félaga. Þetta er ekki bók fyrir viðkvæmar sáljr. —• Verð kr. 344,00. ★ ERFÐASKRÁ GREIFAFRUARINAR Spentnandi leynilögreglusaga — gerist í gamalli liöll og er blönduð ástum og draugagangi. — Verð kr. 236,50. ÆGISÚTGÁFAN

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.