Alþýðublaðið - 18.12.1968, Page 15

Alþýðublaðið - 18.12.1968, Page 15
18. desember 1968 ALÞYÐUBLAÐIÐ 15 Glugga- og dyrabéftingar Þéttum opnamega glugga úti og svalahurðir. Varanleg þétting — nær 100%. Þéttura í eitt skipti fyrir öll með ,.Slottslist- en“. Ólafur Kr. Sigurðsson og Co. Sími 83215 — 38835. BIFREIÐAEIGENDUR Tökum að okkur réttingar, ryðbætingar, rúðuísetningar o.fl. Tímavinna eða fast verðtilboð. Opið á kvöldin og um helgar- Reynið viðskiptin- — RÉTTINGAVERKSTÆÐI KÓPAVOGS Bcrgarholtsbraut 39, sími 41755. Rússarnir réðust áð okkur. Þeir sögðu, að þetta væri allt saman „hugarórar amerísku kapítalistanna.” Ég skildi ekki, livers vegna sníkjudýrin höfðu ekki ráðizt fyrst á Rússana. — Kannski þeir hafi annars gert það. Þegar ég hugsaði mig betur um, skildi ég, að það skipti svo sem engu máli, á hverja þjóð þejr hefðu ráðizt fyrst. Ég sá Karlinn aldrei þessa dagana. Eg fékk öll fyrirmæli frá Oldfield, fulltrúa hans. Þess vegna vissi ég ekki, að María hafði verið leyst frá störfum sem sérlegur gæzlumaður forsetans. Ég mætti henni einn daginn. — María! öskraði ég og hrasaði. Hún brosti þessu fallega brosi sínu og gekk til min. —• Sæll elskan, hvíslaði hún. Hún spurði mig ekki, hvað ég hefði verið að gera og skammaði mig ekki fyrir að hafa ekki talað við hana og minntist ekkert á það, hvað það væri langt síðan við hefðum liitzt. María lætur ekk; slíka smá- muni á sig fá. Það var annað með mig. Eg mjálmaði: — Dásamlegt! Ég hélt, að þú breiddir enn ofan á for- setann um helgar. Hvað hef- urðu verið hérna lengi? Hve- nær ferðu? Viltu í glas? Ertu með glas? Eg hringdi á glas handa mér, en þá kom eitt á borðið. — Hvernig komst þetta liingað? — Ég bað um það um leið og þú komst inn. — Hef ég sagt þér, að þú sért dásamleg, María? — Nei. — Þá geri ég það núna. Þú ert dásamleg. — Þakka þér fyrir. — Hvað ertu í löngu fríi? spurði ég. — Gætirðu ekki feng- jð sumarieyfið núna? Það er ekki hægt að ætíast til þess, að þú sért á vakt tuttugu og fjóra klukkutíma á sólarhring, viku eftir viku. — Ég fer beint til Karlsins og segi honum....... — Ég er í sumarleyfi, Sammi. — .... hvað ég heid um hann .... Hvað? — Ég er í sumarleyfi. — Ertu í sumarleyfi? Hvað færðu langt frí? — Þangað til kallað verður á mig. Það fær enginn lengra frí núna. — En hvenær fórstu í fri? — í gær! Og í gær var ég að flytja fyrirlestra íyrir þessa fínu menn, sem nenntu naum- ast að hlusta á mig! Ég reis á fætur: — Hreyfðu þig ekki. Eg kem að vörmu spori. Ég þaut inn á skrifstofuna. Oldf eld leit upp og urraði; — Hvað viltu núna? — Slepptu þessum sögum mínum. — Hvers vegna? — Ég er fárveikur. Ég hef átt sjúkraleyfi inni lengi. Nú ætla ég í frí. — Þú ert eitthvað veikur í höfðinu. — Já, það er rétt. Eg er veik- ur í höfðinu. Ég heyri raddir. Fólk ofsækjr mig. Mig • dfeymir að ég sé aftur á valdi snlkju- dýranna. Og þaö var sannleik- ur. — Það liefur aldrei þótt neinn gallj í okkar deild. Hann - beið eftir því, að ég rifist. — Fæ ég frí eða ekki? Hánn fletti blöðunum, fann eitt og reif það. — Allt í lagi. Hafðu símann með þér. Við köllum á þig, ef við þörfnumst þín. Snautaðu út. Ég snautaði út. María leit upp þegar ég kom inn og brost-i aft- ur til mín. — Hirtu drasHð’ þitt, sagði ég. — Við erum að fara héðan. Hún spurði ekki, hvert við værum að fara. Hún stóð bara á fætur. Ég greip glasið -henn. ar og hellti sumu í mig og sumu á borðið. Við vorum komin á' göngubrautirnar, þegar hún spurði: — Hvert erum við að fara? — Hvar viltu gifta þig? — spurði ég. — Sammi, við höfum rætt það mál fyrr. — Og nú giftum við okkur. Hvar? — Sammi, elsku hjartað mitt, SERVÍETTU- PREÍÍTUN SÍMI S2-1ÖL ég geri það, sem þú vilt að ég geri. En ég er enn andvíg því. — Hvers vegna? — Komdu með mér heim, — Sammi. Ég elda mat handa okk- ur. — Þú færð að elda mat, en ekkj þar og við giftum okkur fyrst. — Ekki þetta, Sammi. — Áfram með þig, vinurinn, sagði einhver. — Hún fer að gefast upp. Ég leit umhverfis mig og sá, að við vorum að leika fvrir fullu húsi. Ég bandaði frá mér og hróp- aði: — Hafið þið ekkert skárra að gera en glápa á okkur? Far- ið á fyllirí! — Ég hefði þegið hennar boð. — Ég tók um handlegginn á Maríu og sagði ekki e!tt orð í viðbót fyrr en við vorum setzt inn í leigubíl. — Þá spurði ég fýlulega: — Hvers vegna viltu ekki giftast mér? — Ég er þín, þú þarft engan sáttmála þess efnis. — Vegna þess að ég elska þjg, asninn þinn. Hún þagði Iengi; ég hélt, að ée hefði móðgað hana. — Hún hvíslaði svo lágt, að ég heyrði naumast til hennar: — Á það hefurðu aldrej minnzt fyrr, Sammi. —Ekki það? Ég hlýt að hafa gert það. — Nei, ég er viss um, að þú befur aldrei gert það. Hví gerð- irðu það aldrei? — Það veit ég ekkj. -Mistök, eeri ég ráð fyrir. Eg veit ekki rétt vel — hvað það er að elska. — Ég ekki heldnr hún, — en mér finnst dásamlegt að hej'ra þig segja það. Segðu hað aftur. Sammi. — Hvað? Allt í Iagi. -— Eg elska big, María. — Ó, Sammi! Hún þrýsti sér að mér og titraði og skalf. Ég hristi hana ögn. — Hvað með þig? — Mig? Eg elska þig. Sammi. Ég hef elskað þig síðan .... — Síðan hvað? Ég bjóst við því, að hún myndi segja, að hún hefði elskað mig frá því, að ég tók hennar stað, þegar spyrja átti snikjudýrið spjaranna úr, en f þess stað sagði hún: — Ég hef elskað þig, síðan þú slóst mig. Bifreiðaeigendur athugið Ljósastillfcigar og allar almennlar bifreiða- viðgerðiir. BIFREIÐA~V ERKSTÆÐI N. K. SVANE Skeifan 2 — Sími 34362. ÓDÝRIR SKRIFBORÐSSTÓLAR Fallegir, þægilegir og vandaðir. Verð aðeins kr. 2.500,00. G. Skúlason og Hlíðberg hf- Þóroddsstöðum Sími 19597. ATHUGIÐ Geri gamlar íiurðir sem nýjar, skef upp. olluber og lakka. Olíuber ^einnig nýjar hurðir og viðarkiæðningar utanhúss. Fjarlægi mál.ningu af útihurðum og harðviðarlita þær- GUÐMUNDUR DAVÍÐSSON. SÍMI 36857- HÚSGÖGN Sófasett, stakir stólar og svefnbekkir. — Klæði gðmul Ijös- gögn. — Úrval af góðu áklæði, — meðal annars pluss í mörgum litum- — Kögur og leggingar- BÓLSTRUN ÁSGRÍMS. Bergstaðarstræti 2. — Stmi 16807. Loftpressur - grötur Tökum að okkur múrbrot og sprengingar og einnig gröfur tll leigu- Vélaleiga Simonar Símonarsonar, sími 33544-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.