Alþýðublaðið - 20.12.1968, Síða 10
10 ALÞYÐUBLAÐIÐ 20. desember 1968
\
s
i
}
}
s
I
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
í
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
SpjaSia® við Ólöfu Jónsdótfur um barnabækur: I
Veit ekkert yndislegra en börn
Ólöf Jónsdóttir er börnum
og unglingum að góðu kunn.
Hún hefur lesið verk sín fyr
ir þau í barnatíma útvarps-
ins og einnig hafa komið út
eft.r hana tvær barnabæk-
ur. Önnur þeirra er nýút-
komin hjá Ægisútgáfunni;
hún heitir DularfulL njósn-
arinn.
Dularfulli njósnarinn fjall
ar um tápmikla stráka.
Gunna og Palla, sem lenda í
æv.ntýralegustu hlutum, er
hefjast með skemmtiferð í
Heiðmörk.
Vjð forvitnuðumst um það
hjá Ólöfu, hvert upphaf ð að
hennar ritferli hefði verið.
— Fyrst kom út eftir mig
bók ’61, sem heitir Hejm-
sókn. Hún inniheldur þrjú
æv.ntýri, auk þess sögur og
ljóð. Barnabókin Glaðir
dagar kom út ’66, svo að Dul
arfulli njósnarinn er mín
þriðja bók, En áður hafði ég
flutt erindi í útvarp, ferða-
þætti og annað og ritað grein
ar í blöð og tímar.t.
— Hvernig undirtektir hef
ur upplestur þinn hlotið og
annað, sem frá þér hefur
farið?
— Ég hef haft því láni að
fagna, að mér hefur einlægt
verið vel tekið hjá fólkinu
Það gleður og lyft r undir.
Ég hef nú þegar fengið áskor
anir úr ýmsum áttum um að
halda áfram að skrjfa um
Gunnar og Palla-
— Ertu kannski með nýja
barnabók í smíðum?
— Já, hún kemur út á
næsta ári; drengjabók. Mynd
irnar í hana eru þegar full
gerðar, þær hefur Halldór
Pétursson teiknað. Hringur
Jóhannesson teiknaði mynd-
ir v.ð Dularfulla njósnarann.
Þú mátt geta þess, að á
Þorláksmessu les ég upp i
útvarpið smásögu eftir mjg,
sem héitir Elnstæðingurinn.
Þar fer ég alveg út í drauma.
— Hefurðu meiri ánægju
af að skr fa fyrir börn en
fullorðna?
— Ejginlega. Ég er barn-
anna. Mér finnst ég geta lif
að mig !nn í þeirra hugsan-
ir. Ég veit ekkert yndislegra
en börn. Þau eru eins og
blóm, sem þarf að hlúa vel
að, en það er allt of lít ð gert
af því.'Það vefður að fara
gætilega með þau. Þau eru
ejns og óharðnaður leir í
höndum fullorðna fólksins;
það er þess að móta hann.
Mér finnst mæður gera of
m;kið að því að vinna úti:
stundum er það af neyð,
stundum ekki.
En opinberlega hef ég ekki
bar zt fyrir betri skjlyrðum
fyrir börn; á það kannski
ekki eftir. Maður ve_t ekki.
— St. S.
Verðlaun fyrir umbúðir
Reykjavík. — vgk.
Dónuiefnd umbúðasamkeppni
þeirrar, er Iffnkynningin 1968
Félag ísl. iffnrekenda og Lands-
samband iffnaffarmanna gekkst
fyrir, hefur lokjff störfum. 54
umbúffir bárust til samkeppninn
ar, en af þeim hlutu 5 merki
samkeppninnar og 13 viffurkenn
ingu.
Samkeppni þessi var auglýst í
júní s.l. og var til hennar stofn
að til að leggja áherzlu á, hvem
þátt vandaðar umbúðir eiga í að
styrkja samkeppnisaðstöðu ís-
lenzkra iðnaðarframleiðslu, við
sambærilegar erlendar vöruteg
undir. Samkeppnin náði tii allra
gerða umbúða, jafnt flutninga
umbúða sem útstillinga- og
neyzluumbúða. Rétt til þátttöku
hofðu allir íslenzkir not-
endur og könnuðir um-
(búða. Þátttaka var Iþó háð
Iþeim skilyfðum, að umbúðimar
voru framleiðendur, hann-
aðar eða framleiddar af íslenzk-
um aðilum og hefðu komið á
markað hér eða erlendis.
Dómnefnd skipuðu eftirtaldir
menn: Stefán Snæbjörnsson
húsgagnaarkitekt frá Félagi ísl.
iðnrekenda, Leifur Guðmunds-
son forstjóri frá Fél. ísl. stór-
kaupm., Hörður Ágústsson list-
málarj frá Félagi ísl. teiknara,
Sveinn Björnsson framkvæmda-
stjóri frá Iðnaðarmálastofnun
íslands, Pétur Sigurðsson kaup-
maður frá Kaupmannasamtök-
um íslands, Hafsteinn Guð-
mundsson prentsmiðjustjóri frá
Landssambandi iðnaðarmanna
og frú Sigríður Pétursdóttir
húsfrú frá Neytendasamtökun-
um.
Urval úr Marx og Engels
Reykjavík. — g.a.
BÓKAÚTGÁFAN HEIMS-
KRINGLA hefur gefið út úr-
Pappírs-
kiljur
Máls og
menningar
"Timnn
e=4=íkiuur
í þessum bókaflokki verða aðeins
bækur í vasabroti og með pappírs-
kili, en slíkar útgáfur hafa náð vin-
sældum víða um lönd
Útbreiðsla þeirra byggist á því að
iþær eru ódýrar og handhægar í dag
legri önn. Pappírskiljunum er ætlað
að koma íslenzkum lesendum í nán-
ari snertingu við þjóðfélagslega
strauma og hræringar samtímans.
Þær munu fjalla um margvísleg efni,
félagsfræði, alþjóffamál, nútímasögu,
stjórnmál og stjórnmálakenningar,
sálarfræði, kynlíf. menningu. listir.
— Nýjum kynslóðum fylgja ný við-
horf og endurmat á eldri sannindum.
Þessi nýju viðhorf geta orðið afl til
breytinga, ef um þau skapast frjáls
legar umræður.
Að þessu vill Mál og menning stuðla
með útgáfu á pappírskþjum sem
geyma og vekja gagnrýni.
Tvær fyrstu bækurnar
era komnar út: ,
PETER L. BERGER:
Inngangur að
félagsfræði
Hörffur Bergmann og
Loftur Guttormsson þýddu.
DAVID HOROWITZ:
Bandaríkin
og þriðji
heimurinn
Hannes Sigfússon þýddi.
Verff hvorrar bókar
kr. 193.50.
MÁL OG
MENNING,
Laugavegi 18.
valsrit tveggja frumkvöðla sós-
íalismans, þeirra Marx og Eng-
els, í tveimur bindum og er
útgáfan helguð hundrað og fimm.
tíu ára minningu Karls Marx.
Við útgáfu úrvalsrita þessara
er að mestu leyti farið eftir
Karl Marx und Friedrieh Eng-
els: Ausgewahlte Schriften in
zwei Banden, Dietz Verlag Ber-
lin 1951, en íslenzka útgáfan er
sett í Druckhaus Freiheit, Halle,
og prentuð og bundin í Leipzig-
er Volkszeitung, Leipzig. Þýð-
endur eru Ársæll Sigurðsson, Ás-
geir Blöndal Magnússon, Ásgrím.
ur Albertsson, Brynjólfur
Bjarnason, Eyjólfur R. Árnason,
Franz A. Gfslason, Guðmundur
Ágústsson, Hjalti Kristgeirsson,
Hjörleifur Guttormsson, Jóhann
Páll Árnason, Jón Ingi Hannes-
son, Magnús Torfi Ólafsson, Sig-
fús Daðason, Sigurður Ragnars-
son, Sverrir Kristjánsson og Þór
Vigfússon. Útgáfunefnd af-hálfu
forlagsins skipuðu þeir Einar
Olgeirsson, Eyjólfur R. Árnaspn
og Kristinn E. Andrésson. Úr-
valsrit Marx óg Engels eru ifm
níu hundruð blaðsíður að stserð
og virðist. frágangur -góður.
BARNA
VÍSUR
Bókaútgáfan Hrafnar hefur
gefið út bamabók, sem eflaust
á eftir að verða vinsæl, því að
hún hefur að geyma barnavís
ur Ómars Ragnarssonar. Bókin
er í skemmtilegu broti og fjör
lega myndskreytt af Þorsteini
Eggertssyni. Vísurnar í bókinni
enu: Ligga, ligga lá. Hí á þig,
Stjáni blái, Aha, sei sei, já já,
Hott hott á hesti, Lítið lag, Ó,
grýla, Sumarið kom í dag, Sum
ar og sól, Sjö litlar mýs, Ég er
að bakia, Mömmuleikur, Lok,
lok og læs, Þegar Gáttaþefur
mjssti nefið, Ég er svoddan jóla
sveinn, Minkurinn í hænsnakof
anum, Allir hanar gala og að
lokum Litla jólabarn.
Ritgerðasam-
keppni Sátt-
málasjóðs
SVO SEM KUNNUGT er stóð
Sáttmálasjóður fyrir athöfn í
Kaupmannahafnarháskóla hinn.
1. desember síðastliðinn.
Formaður sjóðsins, prófessor
Arne Moe Nygaard, tilkynnti þar,
að sjóðurinn hefði ákveðið að
efna til í-jtgerðasamkeppni, sem
danskir og Islenzkir ríkisborgar-
ar gætu tekið þátt í. Ritgerðar-
efnin eru þrjú:
1. Rannsóknír á þessari öld á
íslenzkri tungu og bók-
menntum.
2. Efnahagsbróun á íslandi
síðan 1918.
3. Móbergið á íslandi.
Ritgerðirnar eíga að hafa
borizt skrifstofu Dansk-Islandsk
Fond, Laksegade 19, 1063 Köb-
enhavn K. fyrir 1. desember
1970.
Fyrir beztu úrlausn á hverju
þessara þriggja verkefna verða
vejtt verðlaun, 10 þúsund dansk-
ar krónur.
Ný barnabók
Reykjavík. — g.a.
ALÞÝÐUBLAÐINU hefur bor-
izt ný bók frá útgáfufyrirtækinu
Hilmi h.f.; nefnist hún „Silas og
hesturinn hans” og er eftir Cecel
Bödker, þýðinguna gerði Loft-
ur Guðmundsson rithöfundur.
„SJlas og hesturinn lians” hlaut
fyrstu verðlaun í barnabóka-
samkeppni dönsku Akademíunn-
ar árið 1967. Bókin er 151 blað-
síða að stærð, einkar vönduð að
frágangi.