Alþýðublaðið - 23.01.1969, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 23.01.1969, Blaðsíða 7
23. janúar 1969 — ALÞYÐUBLAÐIÐ Fræðslunámskeið BSRB Síðastliðinn sunnudag efndi Bandalag starfsmanna ríkis- og bæja til fræðslunámske.ðs á Akranes'.. Til ráðstefnunn- ar hafði verið boðið ölium meðhmum BSRB á Akranesi og í Mýra- og Borgarfjarðar- sýslu og mættu um 40 manns, sem telst góð þátttaka'. Krist ján Thorlacius, formaður BSRB, flutti erindi um starf og skipulag BSRB, Haraldur Steinþórsson, varaformaður BSRB, flutti erindi um samn ingsrétt og kjarasamnrnga op nberra starfsmanna Hann flutti einnig erindi um rétt indi og skyldur opinberra starfsmanna, í veikindafor föllum Guðjóns B. Baldvins- sonar. Ráðstefnunni stjórnaði Einar Ólafsson fyrir Iiönd fræðslunefndar bandalagsins, en fundarritari var Guðmund ur Bjöi’nsson, Akranesi. í ráði er að efna til slíkra fræðslunámskeiða í Keflavík og á Akureyri innan tíðar. Ráðstefnan var haldin að Hótel Akranesi. Á myndinni eru talið frá vinstri: Haraldur Steinþórs- son, Kristján Thorlacius, Ein ar Ólafsson og Guðmundur Björnsson. Félag myntsafnara stofnað Á fundi í Norraena Fliísinu 19. janúar, var gengið endalega frá stofnun Myntsafnarafélags Islands. Fundarstjórar voru Helgi Jónsson Inisgagnasmiður, einn eh.ti og merkasti safnari á Islandi og Bjarni Guðmundsson póstafgreiðslum. Sigurður Þorláksson verzlunar- maður mælti fyrir stofnun félagsins og lýsti aðdragandá þess og verk- efnurn. Tilgangur félagsins er að styðja og efla, sem fræðigrein myntsöfn- un í þeim skilningi, sem á alþjóða- máli er lagr í orðið NUMISMATIC þ. e. myntfræði. Þar undir heyrir mynt, pappírspeningar, minnis- peningar (Medals) og einkamynt (Tokens). Að efla og glæða áhuga á myntsöfnun, almennj, gagnkvæm- um kynnum og viðskiþtum sé kom- ið á milli félagsmanjia, og þau efld. Tilgangi sínum hvggst félagið ná með upplvsinga og útgáfustarfsemi — sýningum, fyrirlestrum, fræðslu og kynningarfundum, viðskipta og uppboðsfundum. Einnig með sam- ciginlegum innkaupum á því, sem að söfnun og félagsstarfinu til- hevrir. Eitt af fyrstu verkefnum fé- lagsins er að safna gögnum í mvnt- sögu Islands og titgáfa handhókar uni sama efni. Myntsaga Islands er í algjörum rústum og verður að leita gagna heimsálfa á 'milli til þess að hægt sé að fullgera slík.t verk. Allar upplýsingar um þelta efni eru vel þegnar af félaginu og væntir það sér góðs samstarfs við banka, söfn og einstaklinga í þess- um tilgarigi. í stjórn voru kosnir: Sigurður Þ. Þorláksson, verzlunarmaður, Fornhaga 11, Sigurjón Sigurðsson kaupmaður, Bólstaðarhlíð 68, og Olafttr Guðmundsson, lögreglumað- ur, Rergþórugötu 57. — Til vara: Helgi Jónsson húsgagnasmiður, Sogavegi 112, og Snær Jóhannes- son, birgðavörður, Reynimel 41. Endurskoðendur voru kosnir: Vilhjálmur Vilhjálmsson, verzlun- armaður, Hvassaleiti 187, og Indr- iði Indriðason, fulltrúi, Stórholti 17. I félaginu eru menn úr öllum landshlutum og einn frá Bandaríkj- unum, sem aldrei hefur til Islands komið, svo áhugamenn eru ekki bara islenzkir, enda öllum 18 ára og. eldri heimi! þátttaka í félaginu, cf mvntfræðilegur áhugi er fyrir hentli. Einnig gcta söfn, félög og stofnanir fengið aðild að félaginu, ef þau telja sér slíkt skylt. Samþvkkt var á fundinum, að allir þeir, sem í félagið gengju fvr- ir 1. marz 1%9, teldrist tij stofn- félaga. Þá flytur félagið öllum sem þátt t.óku í stofnun félagsins sínar beztu þakkir,. en.; sérstakar þakkir færir það Ivar Eskeltmd forstöðumanni Norræná luissins fyrir þátt lians í þessu máli. Þess má geta, að reynt verður að ■ hafa régUdega fundi allt árið, ef kostur er. Sigurður Þ. Þorláksson. HÖFUM OPNAÐ IJTIBU AÐ GRENSÁSVEG 12 Sími 38650. Kúlulegasalan h.f. Auglýsingasíminn er 14906 SÓLARKAFFI ísfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni, verður haldið að Hótel Sögu Súlnasal, sunnudaginn 26. janúar kl. 8,30 s.d. Aðgöngumiðar verða seldir í anddyrj Súlnasals, laug ardaginn 25. janúar kl. 4—7 ». h. Jafnhliða verða borð tekin frá gegn framvísun aðgöngu miða. STJÓRMN. i Viðskiptafræðingar - Lögfræðingar Kaupstaður úti á landi óskar að ráða viðsk'pta fræðing, hagfræðing eða lögfræðing, til að veita forstöðu innheimtudeild kaupstaðarins. Þeir sem áhuga hafa á þessu sendi blaðinu fyrir 31. þ.m. nafn sitt ásamt kaupkrÖfu merkt „Viðskiptafræðingur - Lögfræðingur". Farið verður með umsóknirnar sem trúnaðar- mál. j 1 « I ■ ■ ■ 4 i KIRKJUKVÖLD í NESKIRKJU dagana 24., 25. og 26. janúar. Einsöngur, tvísöngur, kórsöngur, ávörp og ræður. S'amkomurnar hefjast með orgelleik hvert kvöld', kl. 8,20. — ALLIR VELKOMNIR — NEFNDIN. lí I! Félag bifvélavirkja, Félag járniðnaðarmanna, | ! Félag blikksmiða, Sveinafélag skipasmiða: s'ameiginlegur Fræðslufundur I verður haldinn sunnudaginn 26. janúar 1969, kl. 14,00 í Lindarbæ uppi. Sigurður Líndal hæstaréttaritari flytur erindi um: Vinnulöggjöfina og lög varðantli réttindi launafólks. Mætið vel. Stjórnir félaganna. AUGLÝSINGASÍMI ALÞÝÐUBLAÐSINS 14906

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.