Alþýðublaðið - 19.02.1969, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 19.02.1969, Blaðsíða 6
6 ALÞYÐUBLAÐIÐ 19. febrúar 1969 \ „Mikilhæfir listamenn“ eru margir kallaðir, cg sennilega fæstir meö réttu- Róbert Arnfinnsson, leikari, er líkast til einn fárra íslendinga, sem rís undir því nafni- Ég ræddi við Róbert í Þjóðleik- húsinu einn eftirmiðdaginn, þegar hann var rétt að koma af æfingu á „Fiðlaranum". Af sviðinu kom hann kófsveittur og kappklæddur, enda nýstiginn upp úr flensunni, og þá ekki að undra, þótt hann væri svolítið þreytulegur. „Af tilviljun..„Stælingar sannfæra engan“ rnann aldrei í friði“. ■— Af hverju ertu leikari, Róbert? — Þessi var nú erfið. Hann hugs- ar sig um. — Af tilviljun. — Hvernig varð sú tilviljun til ? — Ég ætlaði í Loftskeytaskólann, en daginn, sem ég ætlaði ^ð byrja í honum, gripu örlögin í taumana, og ég lagðist -veikur. Ég veiktist alveg bölvanléga af hettusótt og átti lengi í henni. Þá hafði ég náttúr lega dregizt mikið aftur úr í nám- inu, svo mér var eindregið ráðlagt að gefa námið upp á bátinn þann veturinn. En svoleiðis var í dentíð, að Loft- skeytaskóh'nn var bara starfræktur á fjögra ára fresti, og ég hefði orðið að bíða af mér það tímabil. Ég hugsa með mér, anskotinn, að ekki sé hægt að ganga um og naga á sér neglurnar þennan tíma. Þá rifjast upp fyrir mér, að einu sinni sem oftar, þegar ég hafði ver- ið að spila á dansleik, höfðu Lárus Pálsson, Lárus Ingólfsson og Sigrún Magnúsdóttir troðið upp með núm- er úr óperettunni Nitouche. Lárus Pálsson hafði spurt mig, hvort ég gæti ekki kombinerað mitt spilirí á ballinu við það að spila undir hjá þeim. Nú, það var auðsótt mál. Og við þetta dettur mér í hug að fara og tala við þennan Lárus. Hvering mér datt það í hug, vitandi ekki skapaðan hlut um leikhús, veit ég hreint ekki. F.n svona æxlaðist, að ég fór til I.árusar og hann tók mér ósköp notalega. F.g var hjá honum í skóla hálfan þann vetur og allan næsta, fékk stadistahlutverk hjá Leikfélaginu. Sagði já herra og nei herra pg svoleiðis. Svojjgaf Lárus mér meðmæli til að Jæra f Danmðfku, 'ég kWli' hétFn, og við það er í rauninni ekki miklu að bæta; ég hef starfað óslitið síð- an. ■ — Attu þér eitthvert óskahlut- verk? — Nei, og hef aldrei átt, svarar Róbert í lágri, viðfeklinni tónteg- und sinni. — Aldrei gengið með neinn Hamlet í maganum. F.n manni þykir vænzt um þau hlutverk, sem mestra átaka krefj- ast. Því meira, sem verk heimtar af manni, því meiri hluti, sem verk verður af manni sjálfum, þeim mun vænna þykir manni um það. Og það er sama, hvaða hlutverk er, það er aldrei hægt að vinna það samvizkusamlega með aðfengnum hjálpargögnum — stælingum — það verður alltaf falskt. Efnivið í hlutverk er ekki hægt að sækja í aðra námu en sjálfan sig. Svo er bara spurningin, hvernig æðarnar liggja í þessari námu. Fólk hefur í sér flesta þætti mann- lífsins, bara missterka. I-eikari verð- ur að leita að viðkomandi þætti í sjálfum sér í hvert skipti, draga hann fram og .spila á strenginn. Það er kannski alltaf hægt að herma eftir, en það sannfærir eng- .an, maður sannfærir hvorki sjálfan sig né aðra undir neinum kringum- stæðum. — Þitt erfiðasta hlutverk, hvert hefur það verið? — Púntila. Það getur verið, að ellin ráði því, en Púntila er tvímæla- lnust físískt erfiðasta hlutverk mitt. Hann er alltaf eins og spennt fjöður, yfirspenntur eðá úndirspenntur. Og það, sem er erfitt líkamlega, reynir þá á hausinn líka. - — Þú 'tTéfur fén^ífT Síffu'rtáfflp-' ann. — Tá, það var ’56, fyrir Góða dátann Svejk. — Fjnnst þér sjálfum, að þar hafi þér tekizt bezt upp? — .Nei, segir Róbert og bætir síðan við ákveðnari: — Nei, það lield ég ekki. Eg get ósköp lítinn dóm lagt á það sjálfur, hvenær mér tekst bezt til. F.n rrianni þykir auðvitað •misgaman að vinna að hlutverkum. Ymis hlutverk hef ég haft sérstakt -yndi af að vinna, eins og Eddie Carbone í Horft af brúnni og Jón í Nashyrningunum. Og maður vonar alltaf, að maður geri jrau hlutverk bezt, sem maður er að vinna að í það og það skiptið. Svo eru til hlutverk, sem eru varla þess virði að spreða í þau vinnu. Eg vil nú ekki vera svo hlut- drægur að nefna nein. En’ ég hef jró nokkur í huga. — Heldurðu að leikarar geti lif- að sig um of inn í hlutverk sin? — Það hefur stundum verið sagt. Eg held jrað sé tóm helvítis della, að leikarar gcti eitthvað breytzt eft- ir hlutverkunum, sem þeir leika. Ef þeir geta lifað sig inn í hlut- verk, geta þeir alveg eins lifað sig út úr Jtví og þá inn í sitt eigiö sjálf. — Eru leikarar ekki hræddir við að hlutverkum þeirra „slái saman“? — Það gctur verið hætta á því, að leikurinn verði áþekkur í ein- hverjum tveimur hlutverkum eða yfirleitt. Það getur skotið upp koll- inum. F.n maður verður jrá að treysta á samstarf og heiðarleik góðra og gamalla kollega í gegnum árin; að þeir geri rnanni viðvart. — Af þeim kynnum, sem þú hefur haft af kvikmyndaleik, gæt- irðu þá hugsað þér að hafa hann að aðalstarfi? — Nei. En }?að gæti verið ágætt til tilbreytingar, ein kvikmynd af og til. Það er gjörólíkt að leika í kvik- mvnd og á sviði. I leikhúsinu er bvggt upp frá grunni, en í kvik- mynd er atriðunum blandað saftian og þau tekin bara í einhverri röð. Fyrst er kannski tekið jrriðja atriði og svo áttugasta. Þá verður maður að standa klár á ástandinu; átta sig alv.eg á því, hvað maðurinn hef- ur verið að gera í millitíðinni og hvað hann er að gera núna. Þetta er eins og að láta reita sig í tætlur; plokka sig eins og hænu. — Hvaða kosti finnst þér hafa að vera leikari? — F.nga. . F.n höfuðkostur við störf er auð- vitað sá, að maður geti lielgað sig }?eim, ef maður er á annað borð þannig gerður, að þau eiga við mann. — Á það við þig að leika? — O, ég veit ekki. Eg fæ stundum köst og vil þá vaða beint út í hafsauga og gefa allt upp á bátinn. Þetta heyrir sennilega bara til svciflum í eigin persónu; að vera stundum upp á móti því, sem manni er í raun kærast. — Hvað viltu segja um hlutverk þitt { Fiðlaranum? ■ Frairihald'á ' blíi.' 10.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.