Dagur


Dagur - 08.05.1918, Qupperneq 2

Dagur - 08.05.1918, Qupperneq 2
26 DAGUR. Alþingi. í frumvarpi stjórnarinnar, um al- menna hjálp vegna dýrtiðarinnar, er, í stað lánsheimildanna í núgild- andi lögum,hverju sveitafjelagiheim- ilt að veita úr sveitar- eða bæjar- sjóði, auk venjulegra útgjalda, upp- hæð, er fari ekki yfir 15 kr. á hvern mann, og skal '/s af þeirri upphæð afturkræfur úr landssjóði. »Ef allar sveitir á landinu notuðu sjer rjett þennan að fullu, þá mundi lands- sjóður leggja fram 450 þús. kr. til hjálpar sveitafjelögum. En þar sem sveitafjelögin eiga að leggja 2/a á móti landssjóði, má ganga að því vísu, að um Iandssjóðsstyrk verði ekki beðið nema um fulla nauðsyn sje að ræða«, segir í athugas. stjórn- arinnar. Meginatriðið úr frumv. stjórn- arinnar um fráfœrur ásauðar er á þessa leið: Meðan Norðurálfu- ófriðurinn stendur, heimilast lands- stjórninni að setja með reglugjörð ákvæði um fráfærur ásauðar og til að gera nauðsynlegar ráðstafanir þar að lútandi. — í athugas. stjórnar- innar segir, að feitmetisskortur fari að verða mjög tilfinnanlegur, af því að smjörlíki frá Vesturheimi sje alveg á þrotum og því verði eingöngu að bjargast við innlent feitmeti, en til þess að reyna að framleiða nægilegt af því, sýnist það fyrsta tiltækilega ráðið að áuka fráfærur í landinu. Samkvæmt frv. um skipun barna- kennara og laun þeirra fá forstöðu- menn barnask. í kaupst. 2000 kr. árslaun, kennarar við kaupst. skóla 1500 kr., forstöðumenn barnaskóla utan kaupst. 1500 kr., og kennarar við þá skóla 1200 kr. Farskóla- kennarar 300 kr. auk hlunninda. Laun kennara við kaupst. skóla greiðist að l/s úr landssjóði, en að helmingi til barnakennara utan kaup- staða, Launaviðbót eftir þjónustualdri: Kennarar kaupst. skóla 200 kr. 4. hvert ár upp að 1000 kr. Kenn- arar utan kaupst. 100 kr. 4. hvert ár upp að 500 kr. Farskólakenn- arar 50 kr. 3. hvert ár upp að 300 kr. Allar launaviðbætur greiðist úr landssjóði. Frumv. fylgir langt og ítarlegt álit fræðslumálastjóra. Frumv. um 4000 kr. eftirlaun handa Birni Kristjánssyni flytja 8 þingm. í n. deild. í greinagerð frumv. segir: .......... Rar sem nú mun standa til, að Björn Krist- jánsson láti bráðlega af stjórn bank- ans, en hinsvegar mun ekki um það deilt, að hann hafi staðið prýði- lega í þeirri stöðu, þá virðist sam- ræmi í því, að honum sje veitt hin sömu eftirlaun er ákveðin voru handa fráfarandi bankastjóra 1909. Magnús Gunmundsson flytur frumv. til laga um mótak. Tilgangur þesser, að fyrirbyggja að eigendur mólands geti okrað á því. Skal gjald fyrir mótak fara eftir mati, þar sem viðunanlegir samningar nást eigi. Ringm. Eyfirðinga flytja tillögu til þingsál., er hljóðar svo: Alþingi ályktar að skora á lands- stjórnina að hlutast til um, að úti- bú frá Landsbankanum verði sett á stofn á Siglufirði, svo fljótt sem unt er. Önnur tillaga um útibú í Vest- mannaeyjnm frá sama banka er og fram komin. Sala á Ólafsvöllum og Gaulverja- bæ nær ekki fram að ganga. Talið er Iíklegt að frumv. til laga um bœjarstjórn á Siglufirði falli vegna skilyrða, sem sýslunefnd Ey- jafjarðarsýslu setti þar um. Samtíningur. — Ný skáldsaga, eftir Einar Kvar- an, kemur út í vor. Hún heitir Sambýlið. Frá Jóni Trausta kemur önnur, er heitir Bessi gamti. — Þá er líka Einar Kvaran að snúa á íslensku hinni stórfrægu skáldsögu eftir V. Hugo: »Les Miserables« (Aumingjarnir). — Blaðið Pjóðólfur er farið að koma út i Rvík. Ritstjóri til bráða- birgða Sigurður Guðmundsson mag- ister. — Samkvæmt fyrirskipaðri staf- setningu stjórnarráðsins skal rita t á undan st í sagnorða beygingum, þar sem rót orðsins endar á t eða tt (flutst, af flytja; hitst, af hitta.) — Reykvíkingar ætla að fara að nota gasstöðvarhitann til brauðbök- unar og koma upp bökunarhúsi í sambandi við stöðina.Er það talin al- gerlega ný uppgötvan að nota gas- stöðvarhitann á þennan hátt. Hug- myndina á Jón Jónsson stúdent í Rvík. — í Rvík er nýstofnað fjelag er heitir »Svörður,« og annað fje- lag, er heitir »Surtur«. »Svörður« ætlar að taka upp svörð uppi í Mosfellssveit í sumar, að minsta kosti 1000 tonn af þurrum mó. »Surtur« ætlar að vinna kol úr Duf- ansdalsnámunni. — Páll Einarsson bæjarf. hefir ósk- að þess getið í Degi, að eftir þeim kynnum, sem hann hafi haft af lands- versluninni, á meðan O. Friðgeirs- son veitti henni forstöðu, hafi aT greiðsla á vörum verslunarinnar og reikningar yfir þær verið í mjög góðu lagi. Auðvitað haggar þetta ekkert við þeim meginatriðum, sem fundið var að í síðasta blaði, að hvorki var gerð vörutalning nje endurskoð- un framkvæmd og að O. F. kunni ekki tvöfaida bókfærslu. — Öfundsjúk sál, sem lengi hef- ir verið friðlaus af hjegómagirni, en hefir ekki haft af öðru að seg- ja en sífelt að »falla«, rífur klæði sín í síðasta tbl. ísl. yfir því, að Guðm. á Rúfnavöllum var gerður að heiðursfjelaga Kaupfjelags Eyf., og sjer ofsjónum yfir því, að ritst. Dags skuli vera í stjórn fjelagsins. Vonandi fær þessi sjúklingur nú bata, þar sem hann er kominn í hendur dýralæknis.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.